Íþróttablaðið - 01.02.1995, Qupperneq 7
hennar í einu hlaupi eiga eftir að
þróast mjög jákvæðir hlutir. A
hlaupabrautinni geislar hún af sjálfs-
trausti en hún mætti öðlast meira af
því í daglega lífinu. Það er eitthvert
stress eða óöryggi innra með henni,
hún á það til að vera þrjósk og hana
skortir stundum jafnvægi. Ég veit ekki
hvort hún á börn en eitt barn skiptir
hana mjög miklu máli.
Mérfinnstekki ólíklegtað hún hafi
verið að velta því fyrir sér að skipta
um þjálfara eð eitthvað í þeim dúr.
Sömuleiðis skynja ég einhverjar
vangaveltur um skólagöngu og
Þýskaland kemur strax upp í hugann
og það land á eftir að hafa áhrif á
hana í framtíðinni, beint eða óbeint.
Hún þarf að losa um einhverjar
tilfinningar sem tengjast fortíðinni.
Hún er á réttri braut en góðir hlutir
gerast hægt."
-----------------•--------------------
„Þetta er athyglisvert," sagði
Martha Ernstdóttir sem býr í Noregi
og er að læra til hómópata auk þess
sem hún æfir við góðar aðstæður.
Hún á eitt barn. „Ég hafði ekki ráð-
gert að fara í nám hérna en núna er
ég á 1. ári í þriggja ára námi og ég
stefni vitanlega að því að Ijúka því.
Ég er mjög bjartsýn á árið hvað varð-
ar hlaupin, mér líður vel og ég hef
aldrei verið í svona góðu formi. Ég
hef ekki sett mér neitt markmið hvað
varðar tíma en ég stefni á bætingu.
Um þessar mundir er ég í 7. sæti í
mótaröð víðavangshlaupa og þarf að
vera ein af 12 efstu til að öðlast þátt-
tökurétt á heimsmeistaramótinu í
víðavangshlaupi í mars. Stærsta
mótið í ár verður líklega heimsmeist-
aramótið í frjálsíþróttum sem verður
í Gautaborg í ágúst en í október
verður heimsmeistaramót í hálf-
maraþoni. Ætli ég taki ekki þátt í
einu maraþonhlaupi í lok keppnis-
tímabilsins. Mér finnst líklegt að ég
einbeiti mér að maraþonhlaupi eftir
nokkur ár."
EYDÍS KONRÁÐSDÓTTIR sundstúlka
„Hún hlýtur að
vera fyndin“
„Þessi persóna er rosalega miktl
tilfinningavera og það.kæmi mér
ekki á óvart þótt hún hefði einhvern
tímann verið sígauni. Mér finnst að
hún eigi að leita til útlanda því þar
er ákveðinn stuðning að fá. Ég sé
Bandaríkin íþessu samhengi, þjálf-
ara, sundlaug og það sem hugur
hennar stendur til.
Ég skynja einhverja spennu hjá
hen n i og ég fæ h nút f magan n þegar
ég upplifi þetta. Hún má ekki láta
fólk stjórna sér í daglega lífinu —
hún er engin gólftuska. Hún þarf að
véra ákveðin og standa fast á sínu.
Sundið er hennar hjartans mál og þar
gerir hún góða hluti en þegar íþrótta-
ferlinum lýkur á hún sömuleiðis eftir
að skara fram úr á sviði þar sem hún
vinnur með fólk. Stundum efast hún
um eigin getu en hún má ekki leyfa
sér það. Ég veit ekki í hve mörgum
gremum hún keppir en ég tel að hún
muni náenn betri árangri ef hún ein-
beitir sér að einni grein.
Þetta er mjög góð manneskja og
hlýtur stundum að vera fyndin. Ég
ímynda mér að það hljóti að vera
gaman að skemmta sér með henni.
Ég skynja að hún geti stundum verið
mjög úrill á morgnana."
---------------•-----------------
Eydís brosti þegar hún sá hvað um
hana var sagt en hún var ekki sam-
þykk því að hún væri stundum úrill á
morgnana. „Nei, ég hef aldrei hugs-
að neitt sérstaklega um sígauna,"
sagði hún svo aðspurð. „Ég er ekkert
farin að íhuga það hvort ég fari eitt
eða annað til að æfa eða læra í fram-
tíðinni en ég fer líklega til Flórída í
Bandaríkjunum í vor ásamt Ólymp-
íuhópi Sundsambands íslands. Þegar
ég var yngri stefndi ég að því að
verða fornleifafræðingur en ég er á
náttúrufræðibraut í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. Ég hef áhuga á mjög
mörgu en veit samt ekki hvað ég ætla
að leggja fyrir mig. Einhvern tímann
sagðist ég vilja vinna í hvítum
sloppi."
7