Íþróttablaðið - 01.02.1995, Síða 21

Íþróttablaðið - 01.02.1995, Síða 21
— Hvaða tilfinningu hefur ALFREÐ GÍSLASON, einn leikreyndasti íþróttamaður þjóðarinnar og þjálfari bikarmeistara KA, fyrir HM í handknattleik, undirbúninsnum og öllu sem að keppninni lýtur? „Þótt við höfum ekki reynslu af að halda svona stórmót og mörgum spurningum sé enn ósvarað held ég að keppnin í heild sinni verði glæsi- leg og þjóðinni til sóma. Mér finnst vera unnið mjög vel á mörgum víg- stöðvum og HSÍ er að gera góða hluti. Hvort við ráðum við að halda utan um marga leiki víðsvegar um landið verður að koma í Ijós en það ræðst af framgangi og skipulagningu þeirra sem sjá um einstaka riðla. Ég hef ekki áhyggjur af því að áhorfendur láti ekki sjá sig en þótt útlendingar flykkist kannski ekki til íslands kemur hingað kjarni áhang- enda sem fer á svona stórviðburði og tengist handboltanum á einn eða annan hátt. Færri utlendingar gera það að verkum að íslendingar kom- ast þá líklega á þá leiki sem þeiróska eftir. Breytingarnar á Höllinni eru til góðs og miðað við hvernig frarn- kvæmd mála í bikarúrslitaleiknum var er ég ekki smeykur um að það myndist ekki stemmning og góður Alfreð Gíslason, leikmaður og þjálfari bikarmeistara KA, skorar gegn Val í bikarúrslitaleiknum. Hann telur að Svíar verði heimsmeistarar og að íslend- ingar muni standa sig með sóma á HM. andi þar. Þegar við tókum þátt í B- keppninni íFrakklandi varvíða leikið í húsum sem voru ekki hugsuð sem íþróttahús og var enginn glans í kringum þá keppni fyrr en í úrslita- leikjunum. Við eigum góð íþróttahús og ég treysti íslendingum fullkom- lega til að klára þetta mál með sóma. Það, sem mér hefur fundist slæmt við undirbúning keppninnar, er það hvemig ferðaþjónustan og hótelin hafa brugðist við og mér finnst slæmt að ekki skuli nást samstaða um að lækka verð á gistingu og að öll mál séu leyst farsællega. Gróðasjónar- miðið má ekki verða svartur blettur á keppninni og mér finnst margir hafa hreinlega komið illa fram við HSI. Sömuleiðis finnst mér ríkisstjórnin standa sig illa því þetta er mesti íþróttaviðburður á íslandi á öldinni og óvíst hvort haldin verði önnur Heimsmeistarakeppni í boltaíþrótt- um á komandi öld. At' viðbrögðum sumra ráðamanna þjóðarinnar mætti ætla að um eitthvert Reykjavíkurmót sé að ræða. Fyrir nokkrum árum lof- uðu forsætisráðherra, menntamála- ráðherra og fleiri fínir karlar öllu fögru en núna vilja allir hvítþvo hendur sínar og þykjast ekki kannast við neitt. Gefinn var út veglegur kynningarbæklingur um land og þjóð og keppnina t'yrir nokkrum ár- um og var honum dreit't víða um heim. Núna sitja sumir með hendur í skauti sér þegar við þurt'um á t'jár- magni og öflugum stuðningi að halda. Undirbúningur landsliðsins verð- ur í styttra lagi en þó töluverður mið- að við það sem áður hefur tíðkast. 21

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.