Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1995, Page 46

Íþróttablaðið - 01.02.1995, Page 46
einna helst yfirbyggða velli í fullri stærð verður stöðugt meiri því ætli ísland ekki að sitja eftir hvað varðar framfarir knattspyrnumanna þarf að grípa til róttækra aðgerða og það fljótt. Reiðhallirnar íVíðidal og Hafn- arfirði hafa verið vel nýttar af liðum í vetur og þykja mikil bylting enda eru allir fegnir að þurfa ekki að ösla snjó og klaka á misgóðum malarvöllum um miðjan vetur. Gervigrasvöllurinn í Laugardal þótti algjör þylting þegar hann vartekinn í notkun fyrir rúmum tíu árum en hann er barn síns tíma og þykirekki lengurhentugursem knatt- spyrnuvöllur. Leikmenn hafa kynnst öðrum tegundum grasvalla sem eru betri og þar sem slysahætta er minni. Á Akureyri er aðstaða til knatt- spyrnuiðkunar á veturna engin og á Norðurlandi er hvorki gervigrasvöll- ur né reiðhöll. Það er kannski engin tilviljun að bæði KA og Þór leika bæði í 2. deild þvf varla er hægt að búast við að leikmenn taki framför- um og standi sig sé ekki boðleg að- staða fyrir hendi. ÞORBERGUR KARLSSON bygg- Alfarið á móti notkun grófs skeljasands sem undirlags ingaverkfræðingur er í mannvirkja- nefnd KSI en hann hefur kynnt sér rækilega hvers konar gervigrasvellir séu bestirogsömuleiðis hvaða undir- lag sé ákjósanlegast undir gras, svo eitthvað sé nefnt. „Eftir mikla yfirvegun ákvað mannvirkjanefnd KSÍ að ganga til norræns samstarfs um reglur fyrir gervigrasvelli en á því hafa Norð- menn haft frumkvæðið," segir Þor- bergur. „Mýkt vallarins skiptir mjög miklu máli og það hvernig boltinn hegðar sér því allt miðast að því að líkja best eftir náttúrulegu grasi. Enn sem komiðerhafaeinungisákveðnar tegundir sandgrasvalla uppfyllt fyrr- nefndar kröfur. Vellirnir í Kópavogi og hjá Leikni uppfylla ekki þessar kröfur. Vellir, sem eru með þykkari stráum og lengra bili á milli stráa en tíðkast hér henta betur til knatt- spyrnuiðkunar og hafa notið mestrar Þorbergur Karlsson byggingaverk- fræðingur er í mannvirkjanefnd KSÍ. Gervigrasvöllurinn í Laugardal þótti bylting á sínum tíma en hann er barn síns tíma. hylli í Noregi, svo dæmi sé tekið. Þegar tekin var ákvörðun um að byggja gervigrasvöllinn í Kópavogi voru menn meðvitaðir um að hann væri ekki það besta sem völ væri á en hann var þó mjög vel viðunandi mið- að við verð og gæði. Verðmunurinn á þeim velli og þeim besta sem völ var á var um 10 milljónir króna en núna er munurinn orðinn sáralítill. Álagið á vellinum hefur reyndar verið meira en tvöfalt meira en gert er ráð fyrir erlendis og nemur um 2500 klukku- stundum á ári." Að tilstuðlan mannvirkjanefndar KSÍ hélt Daninn Martin Petersen fyrirlestur á Islandi árið 1991 um gras- velli og kom hann með nýjar hug- myndir um uppbyggingu á grasvöll- um. Hann var alfarið á móti notkun grófs skeljasands sem undirlag sem tíðkast mjög víða hér á landi. Um 5 sm lag af skeljasandi er þá notað sem undirlag en rannsóknir hafa sýnt að grasræturnar ná alls ekki nógu góðri festu í sandinum. Martin var hrifnast- ur af um 20-30 sm sandlagi blönd- uðu með örlítilli mold og sömuleiðis lagði hann áherslu á að þökurnar væru ræktaðar í sandi. „Á nýja æfingasvæðinu í Kópavogi fórum við eftir ráðleggingum Martins og fengum sérstaklega útvaldar þök- ur á svæðið sem hefur reynst einstak- lega vel. Menn hafa lagt allt of lítið upp úr þessum þáttum hingað til. Þegar norska liðið Bodö Glimt byggði sinn völl fyrir nokkrum árum sóttu þér undirlag til Suður-Noregs því þeim stóð ekki á sama um hvað yrði notað. Undirlagið var því flutt vegalengd sem samsvarar leiðinni frá Rómtil Oslóaren það sýnirað mönn- um er ekki sama hvað þeir nota í vellina. Helstu veikleikar íslenskra valla felst því í röngu undirlagi og of miklu álagi. Sum félög eru að leggja heilmikinn pening í rekstrarkostnaðá völlum en hins vegar er lítið lagt í rannsóknir á því hvað þeim sé fyrir bestu. Það er í raun hægt að spara mikla peninga með því að leita eftir áliti fagmanna og vinna samkvæmt því." — Hvert er þitt álit á hitalögnum undir grasvöllum? „Reynslan hefur sýnt að það er mjög tvíeggjað. Grasið verður fyrr grænna en samt sem áður er völlur- Gervigrasvöllurinn í Laugardal þótti algjör bylting á sínum tíma! inn ekki tilbúinn til notkunar. Að meðaltali má reikna með að upphit- aður völlur sé tilbúinn tveimur til þremur vikum fyrr en venjulegur grasvöllur en á móti kemur að það er ekki sama hvernig hitinn er notaður. Yfirbreiðslur á upphituðum grasvöll- um eru varasamar vegna þess að hitamunurinn getur orðið svo mikill þegar ábreiðurnar eru teknar af. Yfirbreiðslur á venjulegum gras- völlum hafa hins vegar reynst vel, sérstaklega til viðgerða á einstökum blettum. Sömuleiðis er gott að nota net því það dregur hitann ofan í gras- ið og kæling vegna vinds minnkar. Upphitun á grasvelli gerir ekkert gagn að hausti þvf þá er grasið við það að leggjast í dvala. Rétt undirlag og áburðargjöf skipt- irmiklu máli hvað viðkemurendingu grasvalla og sömuleiðis góður rekst- 46

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.