Íþróttablaðið - 01.02.1995, Qupperneq 53
48,1% skota sinna. Malone er einn af
þeim leikmönnum sem hvað oftast
komast á vítalínuna og því var mjög
mikilvægt fyrir hann að ráða bót á
þessu vandamáli sínu. Þjálfari hans,
hinn skrautlegi Frank Layden, bað
hann um að æfa vítaskotin vel á
sumrin því að hann gæti orðið einn
besti leikmaður NBA ef hann vildi.
Malone fór að ráðum þjálfara síns og
bætti sig mjög mikið á milli ára.
Hann komst upp í 70,0% vítahittni á
sínu þriðja ári.
Stockton átti hins vegar aldrei f
neinum erfiðleikum með sinn leik.
Hann sýndi strax sinn undraverða
hæfileika tiI að dreifa spiIi og var með
5,1 stoðsendingu á sínu fyrsta ári
þráttfyrir að spila aðeins 18 mínútur í
leik. Ástæðan fyrir því að hann spil-
aði svo lítið var sú að Rickey Green
var byrjunarliðsleikstjórnandi.
Green var einn besti ieikstjórnandi
deildarinnar á sínum tíma og var
byrjunarmaður í Stjörnuleik árið sem
Stockton kom í deildina.
Stockton í
byrjunarliðið, Malone
í Stiörnuleikinn
Þao varð fljótlega Ijóst að Stockton
varhárrétti maðurinntil aðtakaviðaf
Green. Hann sýndi sig og sannaði og
sömu sögu var að segja af Karl Mal-
one sem komst fyrst í stjörnuleikinn
1988. Á sínu fyrsta tímabili í byrjun-
arliðinu gérði Stockton sér lítið fyrir
ogsetti nýtt NBAmetfyrirfjöldastoð-
sendinga áeinu tímabili. Isiah Thom-
as átti gamla metið, 1123 og Stockton
gerði sér lítið fyrir og bætti það um
fimm. Hann komst í annað úrvalslið
deildarinnar og samvinna félaganna
varð heitasta umræðuefni NBA-
spekinga vestan Atlantsála. Eftir það
hefur Stockton ávallt leitt deildina í
stoðsendingum og verið með efstu
mönnum í stolnum boltum.
Malone var með 27,7 stig að með-
altali á tímabilinu 1987-'88 og komst
í hóp stigahæstu manna deildarinn-
ar. Honum áskotnaðist einnig sá
heiður að veljast í úrvalslið NBA-
deildarinnar árin '89-'94. Hann hef-
ur verið álitinn besti kraftframherji
deildarinnar um árabil og telst einn
sá besti í þeirri stöðu fyrr og síðar.
Allir nýir framherjar eru bornir sam-
an við hann þar sem Malone markaði
tímamót í körfuboltasögunni. Hann
er gífurlega sterkur líkamlega en hef-
urauk þess yfirað ráða miklum hraða
sem skilað hefur ófáum körfunum í
hraðaupphlaupum, jafnan eftir send-
ingar frá Stockton.
Fóstbræðurnir til
Barcelona
Stærsti körfuboltaviðburður sög-
unnar var ferð „Draumaliðsins" á Ól-
ympíuleikana í Barcelona 1992. í
bandaríska landsliðinu voru bestu
körfuboltamenn NBA komnir saman
í fyrsta sinn og var úr mörgum stór-
kostlegum leikmönnum að velja.
StocktonogMalonevoru báðirvaldir
til fararinnar eftir að Utah Jazz hafði
áttsittbesta tímabil 91-'92. Þarfengu
þeir mikla athygli en hvorugur hafði
notið þeirrar frægðar sem þeir áttu
skilið. Bæði Stockton og Malone eru
sannkallaðir sveitastrákar sem höfða
ekki til MTV kynslóðarinnar eins og
Magic, Jordan og Barkley. Þeir þykja
báðireinstaklega hógværirog þá sér í
lagi Stockton sem enn er oft ruglað
saman við boltastráka og kórdrengi.
Það að vera staðsettir í Salt Lake City,
minnstu NBA-borginni, ýtti heldur
ekki undir fjölmiðlaumfjöllun.
Utah hefur á undanförnum árum
verið með mjög sterkt lið en aldrei
náð að komast í úrslitaleikina. Liðið
var nálægt því árið '92 og átti góðan
möguleika '94 en tapaði þá í úrslita-
hrinu Vesturdeildarinnar, fyrir Port-
land '92 og meisturum Houston í
fyrra. Oft hefur verið sagt að liðið
vanti einn burðarás í viðbót til að
dæmið geti gengið upp og nú virðist
því skilyrði vera uppfyllt. Nýja stjarn-
an í Utah, skotbakvörðurinn, Jeff
Hornacek, passar vel inn íhópinn því
hann er, rétt eins og félagar hans,
hógvær og banhungraður í titil. Tím-
inn erfarinn að styttast því Maloneog
Stockton eru engin unglömb lengur;
Stockton á sínu ellefta ári í deildinni
og Malone á sínu tíunda.
Liðinu hefur vegnað vel f vetur og
vakti fimmtán leikja samfelld sigur-
ganga þess á útivöllum verðskuldaða
athygli.
Samvinnan
Eins og áður sagði er samvinna fé-
laganna einstök. Flestar sóknir Utah
Jazz byggjast upp á því að Stockton
komi boltanum inn á Malone sem á
að klára dæmið. Þetta vita allir and-
stæðingar liðsins og því er enginn
hægðarleikur að framfylgja þessari
leikáætlun. Stockton þarf að byggja
sóknirnar upp og velja réttan tíma til
að losa sig við knöttinn. Hraði og
leikskilningur Stocktons gerir það að
verkum að honum reynist þetta leik-
ur einn. Margir telja Stockton vera
besta leikstjórnanda allra tíma. Hann
þykir hafaalla þá kosti til að bera sem
prýða eiga sannan leikstjórnanda.
Hann hefur frábæra knattmeðferð,
getur sent knöttinn á marga mismun-
andi vegu, er líkamlega sterkur og
getur þar að auki truflað vörnina með
að skjóta sjálfur.
Malone er óstöðvandi sóknarafl.
Hann á auðvelt með að koma sér í
stöðu inni í teignum og getur þar að
auki bakkað langt út til að skjóta
langskotum. Þessi fjölhæfni beggja
leikmanna hefur orðið til þess að
engum hefur tekist að finna töfra-
formúlu til að stöðva þá, og það mun
engum takast.
Leiktímabil Stoðsendingar Stockton* Stig Malone* Stolnir boltar Stockton* Fráköst Malone*
1985- '86 1986- '87 1987- '88 1988- '89 1989- '90 1990- '91 610 ( 7,4) 670 ( 8,2) 1128 (13,8) 1118 (13,6) 1134 (14,5) 1164 (14,2) 1 1 OC. 11 1 7\ 1203 (14,9 1779 (21,7 2268 (27,7 2326 (29,1 2540 (31,0 2382 (29,0 V)7'> Í7R 0 ) 157 (1,9) ) 177 (2,2) ) 242 (3,0) ) 263 (3,2) ) 207 (2,7) ) 234 (2,9) ) 244 (3,0) 718 ( 8,9) 855 (10,4) 986 (12,0) 853 (10,7) 911 (11,1) 967 (11,8) 909 (11,2)
1992- '93 1993- '94 1994- '95 1 1 iU ^ 1 ■J f / ) 987 (12,0) 1031 (12,6) 460 (12,1) 2217 (27,0 2067 (25,2 967 (25,3 ) 199 (2,4) ) 199 (2,4) ) 86 (2,3) 919 (11,2) 940 (11,5) 375 ( 9,9)
Eftir 38 lei *Fremri talar ki. er heildarfjöldi á ímabili, tal an í sviga er meö altal.
53