Íþróttablaðið - 01.02.1995, Síða 56
50m skriðsund
ár b.tími heimsafr.skrá
1990 22.87 !Í||ÍÍ
1991 22.78 14. siti
1992 21.91 1-sæti
1993
22.27
2.fsæti
100m skriðsund
1989 51.88 138. sæti
1990 50.71 39. sæti
1991 49.18 1sæti
1992 49.02 1. sæti
1993 48.93 1. sæti
Þess má til gamans geta að íslands-
methafinn í 100 m skriðsundi, Magn-
ús Ólafson, synti á tímanum 52,01 á
Ólympíuleikunum í Seol en Islands-
met hans núna er 51,62, sett á Evr-
ópumeistaramótinu 1991.
ÓLYMPÍULEIKARNIR í
BARCELONA
Eins og flestir sundáhugamenn
vita, þá gekk allt í haginn fyrir Popov
á Ólympíuleikunum í Barcelona.
Hann sigraði í 100 m skriðsundi, á
tímanum 49,02 sek., með sínum ró-
legu, sterku sundtökum. Popov var
aðeins í 6. sæti eftir fyrri 50 metrana.
Hann kom geysilega sterkur síðari
helming sundsins og synti þá á tím-
anum 24,99 sek., aðeins 96/100 úr
sekúndu hægar en fyrri 50 metrana.
100 m skriðsundið var, eins og
flestar sundgreinar Ólympíuleik-
anna, mjög skemmtilegt sund.
Biondi byrjaði sundið hrattog náði
afgerandi forystu sem hann vonaðist
til að nægði sértil sigurs. Hann vissi
að aðrir sundmenn myndu draga
verulega á sig síðari hluta sundsins
en vonaðist til að halda forskoti til
loka sundsins og þar með hljóta gull-
verðlaunin.
Reyndir sundmenn nota gjarnan
þetta bragð til þess að reyna að koma
keppinautum sínum úr jafnvægi. En
þetta heppnaðist ekki hjá Biondi í
þetta sinn.
Þegar kom að 75 metra markinu
var eins og hann synti á vegg. Hann
virtist örþreyttur og það dró verulega
úr hraða hans. Hinir sundmennirnir
geystust fram úr Biondi hver á fætur
öðrum. Enginn synti þó síðustu 25
metrana eins hratt og rússneska rak-
ettan Popov sem kom fyrstur í mark
og vann þar með sín fyrstu gullverð-
laun á Ólympíuleikum.
Popov gerði sér I ítið fyri r og sigraði
einnig í 50 m skriðsundinu og batt
þar með enda á sex ára sigurgöngu
Bandaríkjamannanna, Biondis og
heimsmethafans Tom Jager, í þessari
stystu keppnisvegalengd í sund-
keppni Ólympíuleikanna. Tími
Popovs var 21,91 sek. sem var þá
annar besti tíminn sem náðst hafði í
greininni. Popov var einnig í sigur-
sveit Sovétmanna í 4x100 m skrið-
sundi og vann þar með sín þriðju
gullverðlaun á leikunum.
FRÆGÐ OG FRAMI
Að loknum Ólympíuleikunum í
Barcelona reyndist það létt verk fyrir
Popov og þjálfara hans Gennadi
Toureski að finna styrktaraðila til
þess að fjármagna frekari æfingar og
keppnir. Touretski fékk þjálfarastöðu
í Ástralíu og Popov fylgdi honum
þangað. Nú á hann ekki íerfiðleikum
með að einbeita sér að sundinu ein-
göngu því áætlað er að árstekjur
Popovs vegna auglýsingasamninga
og verðlaunafjár sé á bilinu frá
80.000 - 120.000 Bandaríkjadalir.
(5,7 - 8,5 milljónir króna.) Á síðasta
ári eyddi Popov aðeins 12 dögum í
Rússlandi en dvaldi lengst af í Ástral-
íu við æfingar. Hann ferðaðist einnig
um allan heim til keppni á sundmót-
um.
FRAMTÍÐIN
Markmið hans í upphafi keppnis-
tímabilsins var að bæta heimsmet
Matts Biondi í 100 m skriðsundi í 50
m laug. Matt Biondi sagði þá að ef
einhversundmaðurmyndi sláheims-
met sitt þá yrði það Alexander
Popov.
Biondi þurfti ekki að bíða fram að
Friðarleikum eða Heimsmeistarmóti
til að sjá heimsmet sitt falla. Popov
bætti heimsmetið í 100 m skriðsundi
á sundmóti í Canet í Frakklandi um
miðjan júní sl.
Nú bíða sundáhugamenn Heims-
meistaramótsins með óþreyju, m.a.
til þess að fylgjast með því hvernig
Popov stendur sig þar. Þar mun koma
í Ijós hvort Alexander Popov hefur
sömu yfirburðina í 50 og 100 m
skriðsundi í 50 m laug eins og hann
hefur haft í 25 m lauginni í vetur.
ÍÞRÚTTABIAÐIÐ
Markvisst tímarit!
f
FRÓÐI
bóka & blaðaútgáfa ASKRIFTARSÍMI: 91-812300
56