Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1997, Blaðsíða 20

Íþróttablaðið - 01.04.1997, Blaðsíða 20
Texti: Úlfar Jónsson Myndir: Erling Ó. Aðalsteinsson Mynd 1: Bolti of aftarlega og þyngd of mikil á vinstri fæti. Mynd A: Opin staða. Bolti aftarlega og þyngd á vinstri fæti. — Mynd B: Ferill kylfunnar verður nokkuð brattur til að „klípa" boltann af grasinu. Mynd C: Gættu þess að enda sveifl- una með hendur fyrir framan kylfu- hausinn. Góð ráð fyrir sveifl- una og stutta spilið Eftir langan vetur grillir loksins í sumarið, kylfingum og fleirum til mikillar gleði. Þegar snjóa leysir og grasið grænkar fyllast vellirnir af áköfum kylfingum sem hafa beðið óþreyjufullir eftir að sjá hvíta boltann fljúga. Sá hópur kylfinga, sem hefur nýtt sér þá inniaðstöðu sem er í boði, hefur stækkað ár frá ári. Þeir, sem hafa æft sveifluna vel, stutta spilið og púttið yfir veturinn, standa vel að vígi þegar golfleikur hefst utandyra. Þá fara ekki dýrmætir dagar eða vik- ur í að „finna" sveifluna og fá góða tilfinningu í stutta spilinu. Að þessu sinni ætla ég að fjalla um tvö algeng vandamál sem margir kylfingar glíma við. Annars vegar vandamál sem snýr að golfsveiflunni og hins vegar að stutta spilinu. Vandamál: Röng staða í vippum Ég tek oft eftir kylfingum sem stil- la sér upp fyrir stutt vipp líkt og þeir gera fyrir fulla sveiflu, þ.e. fætur og líkami stefna í átt að flaggi. Einnig er algengt að boltastaða sé of framar- lega og þyngdin of mikil á hægri fæti (mynd 1). Oftast leiðir þetta til óstöð- ugleika í höggunum, þ.e. toppuð högg eða kylfan fer í jörðina fyrir aft- an boltann. Lausn: Færðu boltann aftar, þyngd- ina á vinstri fót og hendur fram Minnkaðu bilið á milli fótanna, stefndu fótum, mjöðmum og öxlum vinstra megin við holuna en kylfu- haus í beina stefnu á skotmarkið. Færðu boltann aftar í stöðuna (nær hægra fæti) og hafðu hendur fyrir framan boltann (mynd A). í þessari stöðu verður auðveldara að hitta boltann rétt. Ferill kylfunnar þarf að vera nokkuð brattur því að í þessum höggum viljum við „klípa" boltann af grasinu, þ.e. hitta hann fyrst og síðan jörðina lítillega. Til að ná þessu fram skaltu leggja kylfu á jörðina / gólfið rétt fyrir aftan hægri fót, horn- rétt miðað við höggstefnuna (mynd A, B). Ef staðan er rétt mun kylfan fara yfir skaftið bæði í aftur- og fram- sveiflunni. Þetta mun færa þér aukna stjórn á flugi og rennsli boltans við lendingu. Gættu einnig að enda ávallt með hendur fyrir framan kylfu- hausinn (mynd C). 20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.