Íþróttablaðið - 01.04.1997, Síða 44

Íþróttablaðið - 01.04.1997, Síða 44
„Við vorum jarðaðir eftir slæmu leikina," segir Páll Þórólfsson. „ÉQ HEU) m fRAH Mfl £m HfifT Nem t QrsLnmtmA að qera" mikilvægustu leikina eftir og ég vona bara að það komi þá." — Ef þú lítur til baka ertu þá sátt- ur við árangur liðsins? „Ég er sáttur við það að við urðum deildarmeistarar en ég held að eng- inn okkar verði almennilega sáttur fyrr en Afturelding tekur við íslands- meistaratitlinum. Mér finnst oft ein- kennileg sú gagnrýni sem við feng- um í vetur á meðan lið eins og KA og Haukar, sem eru með ekkert síðri mannskap, sluppu við alla gagnrýni. Það var til dæmis alltaf verið að tala um að KA-menn væru bara að bíða eftir úrslitakeppninni en við vorum jarðaðir eftir alla slæmu leikina okk- ar." — Þarna koma saman margir af frægari leikmönnum deildarinnar og öll athyglin er á ykkur. Með þetta í huga er það ef til vill ekki skrýtið að meira beri á tapi hjá ykkur en til dæmis Haukum sem færri vissu hvernig myndu standa sig í vetur. „Það er ef til vill orðið þannig að bara Mosfellingar halda með okkur og það má segja að við séum komn- ir með svipaðan stimpil og KR í fót- boltanum." — Þú ert einn af þessum að- keyptu leikmönnum sem Afturelding hefur krækt í á undanförnum árum. Þú ólst upp og lékst lengi með Fram en yfirgafst liðið þegar það féll í 2. deild. Var ekkert skrýtið að lenda í vandræðum gegn þínum gömlu fé- lögum í úrslitakeppninni í ár? „Framarar hafa unnið mjög vel í sínum málum á undanförnum árum. Við fórum þarna nokkrir frá Fram á sama tíma og það hefur tekið liðið nokkurn tíma að byggja upp sterk lið að nýju. í dag sýnist mér þeir engu þurfa að kvíða því þeir hafa góðan þjálfara og sterkt lið. Þeir veittu okk- ur harða mótspyrnu í undanúrslitun- um en ef ég á að vera alveg hreinskil- inn þá held ég að þeir hafi ekki haft neitt í úrslitaleikina að gera. Bæði við og KA erum með mun sterkari en Fram en það má samt ekki gleyma því að Fram hafa náð mjög góðum árangri í vetur og ég held að liðið megi vera ánægt með stöðu sína þegar upp er staðið." — En hefði þér ekki þótt leiðin- legra að tapa fyrir Fram hcldur en einhverju öðru liði? „Það hefði verið mjög erfitt að sætta sig við tap gegn Fram en það kom aldrei til." — Nú þegar deildinni er að Ijúka fara allir leikmenn að skoða samn- ingana sína en hver er staðan hjá þér? „Ég á eitt ár eftir af samning við Aftureldingu og held að lang flestir í hópnum verði áfram næsta vetur." — Það hefur farið mikið fyrir þér í úrslitakeppninni en þú varst frekar rólegur framan af vetri. Ertu að „toppa" á réttum tíma? „Ég var ekkert ósáttur við mitt gengi í upphafi tímabilsins og finnst ég hafa skilað mínu vel. I úrslita- keppninni hef ég fengið að spila að- eins fyrir utan líka og þar hef ég fundið mig ágætlega. Eg er mjög sáttur við gengi mitt í úrslitakeppn- inni og fyrir utan nokkra leiki í kring- um jólin er ég vel sáttur við spila- mennsku mína í heildina." — Það eru liðin nokkur ár síðan þú fórst fyrst að banka á dyrnar hjá landsliðinu en þér hefur gengið illa að festa þig þar í sessi. í dag virðist þú ekki vera inni í myndinni hjá Þor- birni og aðrir ungir hornamenn komnir fram fyrir þig. Hvernig sérðu framtíðina hjá með landslið- inu? „Ég hef hugsað mikið um lands- liðssæti undanfarin þrjú til fjögur ár en í dag hef ég tekið þá afstöðu að hugsa ekki eins mikið um þetta. Það er erfitt að vinna sér fast sæti liamds- liðinu og ég hef sjaldan fengið þenn- an „sjens" þóttég hafi nokkrum sinn- um verið í hópnum. Ég er ekki að segja að ég hafi unnið fyrir því að fá fast sæti en ég hef verið valinn, með hléum, síðustu þrjú árin þannig að ég stefni bara ennþá á þetta fasta sæti. Ég held að það sé mikilvægast að láta verkin tala og ég veit að Þor- björn er þannig þjálfari að ef leik- maður stendur sig vel fær hann tæki- færi. Hann hefur allt mitt traust til að velja þá bestu hverju sinni og í dag er ég bara ekki meðal þeirra." — Nú ert þú aðeins 24 ára svo bestu árin eru enn eftir í handbolt- anum. Á hvað stefnirðu? „Já. Ég set auðvitað stefnuna á landsliðið en sá leikmaður sem hefur verið tekinn fram fyrir mig að und- anförnu er Björgvin Björgvinsson úr KA en hann hefur verið að leika mjög vel. Ég og Björgvin spiluðum saman í 21 árs landsliðinu fyrir nokkrum árum og þá var ég skrefinu á undan. í dag er Björgvin komin skrefinu á undan svo ég verð einfald- lega að leggja meira á mig og veita honum harðari samkeppni." — Hvernig spáir þú að úrslita- leikirnir gegn KA fari? „Við vinnum þetta 3-1." 44

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.