Bændablaðið - 02.07.2020, Page 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 20202
Heildarfjöldi greiddra gistinátta
í maí síðastliðnum dróst saman
um 89% samanborið við maí
2019 samkvæmt tölum Hagstofu
Íslands. Þá fækkaði gistinóttum
á hótelum um 88% og um 86%
á gistiheimilum.
Þá var 84% fækkun á öðrum
tegundum gististaða (farfugla
heimilum, orlofshúsum o.s.frv.).
Ekki var hægt að áætla erlendar
gistinætur á stöðum sem miðla
gistingu í gegnum Airbnb og
svipaðar síður.
Í lok mars tóku mörg hótel þá
ákvörðun að loka tímabundið. Í
apríl voru 75 hótel lokuð, en í
maí var enn lokað á 47 hótelum.
Framboð gistirýmis minnkaði
um 26,5% frá maí 2019, mælt í
fjölda hótelherbergja, sem skýrist
af lokunum hótela.
Gistinóttum fækkaði milli
ára úr 660.000 í 76.000
Greiddar gistinætur ferðamanna
á öllum gististöðum voru um
76.000 í maí en þær voru um
660.000 í sama mánuði árið áður.
Um 87% gistinátta voru skráðar
á Íslendinga, eða um 66.000, en
um 13% á erlenda gesti, eða
um 10.000 nætur. Gistinætur
á hótelum og gistiheimilum
voru um 51.300, þar af 37.100
á hótelum. Gistinætur á öðrum
tegundum gististaða voru um
24.000.
Heildarnýting herbergja á
gisti stöðum á landinu var 55,7%
í maí 2019, en sú nýting var
einungis 8,9% í maí 2020, sem
er um 46,8% samdráttur.
Nýting hótelherbergja á
höfuðborgarsvæðinu 5,3%
Samdrátturinn var langmestur
á höfuðborgarsvæðinu, eða um
61,3%. Þar fór nýtingin úr 66,6%
í 5,3%, eða um 61,3 prósentustig.
Á þessu tímabili fækkaði
hótelherbergjum einnig vegna
lokunar hótela úr 5.129 í 3.269.
Næstmestur hlutfallslegur sam
dráttur var á Suðurlandi. Þar fækkaði
herbergjum vegna lokana úr 2.232
í 1.672 og nýtingin hrapaði úr 47%
í 11,1%, eða um 35,9 prósentustig.
Á hótelum á Austurlandi fækkaði
herbergjum ekkert vegna lokana,
en nýtingin hrapaði eigi að síður
úr 44,8% í 7,9%, eða um 36,9
prósentustig.
Á Norðurlandi fækkaði hótel
herbergjum úr 21.261 í 996 og
nýtingin féll úr 42,5% í 14,5%, eða
um 28% prósentustig.
Minnst urðu áhrifin á hótel
nýtingu á Vesturlandi og Vest
fjörðum, en kannski ekki úr
háum söðli að detta. Þar fækkaði
hótelherbergjum einungis úr 855
í 833 og herberjanýtingin dróst
saman úr 39,7% í 15,6%, eða um
24,1 prósentustig.
Vegna mikillar fækkunar
brottfara frá Keflavíkurflugvelli
náðist ekki að safna úrtaki fyrir
framkvæmd landamærarannsóknar
Ferðamálastofu og Hagstofu
Íslands í maí. Af þeim sökum
reyndist ekki unnt að áætla fjölda
gistinátta erlendra ferðamanna utan
hefðbundinnar gistináttaskráningar
í maí. Það er á stöðum sem miðla
gistingu í gegnum Airbnb og svipaðar
síður, í bílum utan tjaldsvæða eða
innandyra þar sem ekki var greitt
sérstaklega fyrir gistingu. /HKr.
FRÉTTIR
Bætiefni fyrir lömb og kálfa.
Kemur stöðugleika á jafnvægi
vatns og salta.
- Hjálpar við meltingu mjólkur
- Færir kálfinum sölt, mucin,
umfangsaukandi efni, vítamín,
steinefni og næringarefni sem
hjálpa kálfum að vinna á skitu
- Bætir upp vökvatap
- Jafnar sýrustig
- Inniheldur 2 milljarða af CFU
mjólkursýrubakteríum, allt í
einum poka.
Boviferm Plus
Pantaðu á vefverslun okkar
www.kb.is
Í maí fækkaði gistinóttum um 89% frá fyrra ári
– þá voru 47 hótel á landinu lokuð og herbergjaframboð minnkaði um 26,5%
Í lok mars tóku mörg hótel þá ákvörðun að loka tímabundið og voru 47 hótel lokuð í maí en 75 hótel voru lokuð í apríl.
Framboð gistirýmis minnkaði um 26,5% frá maí 2019, mælt í fjölda hótelherbergja, sem skýrist af lokunum hótela.
Þrátt fyrir að ekki hafa komið upp
smit í dýrum hér á landi í tengslum
við COVID-19 hefur prófi verið
komið upp á Keldum til að greina
slík smit. Þegar smitefni fara yfir
tegundaþröskuldinn eins og gerst
hefur með SARS-CoV-2 veiruna
getur það mögulega leitt til smita
í fleiri dýrategundir.
Vilhjálmur Svansson, dýralæknir
hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í
meinafræði að Keldum, segir að
fljótlega eftir að COVID19 kom
upp hafi stofnunin komið upp prófi
til að greina hugsanlegt smit með
SARSCoV2 í dýrum gerist þess
þörf. Enn sem komið er hefur ekki
verið þörf á að greina hvort smit hafi
borist í dýr hér á landi.
Smit í minkum
„Tilraunasmit í fréttum sem eru
marðardýr og skyld minkum
sýndu eins og fyrr segir að þau
eru vel móttækileg og smita sín á
milli. Því kom það ekki á óvart að
veiran skuli hafa stungið sér niður
á nokkrum minkabúum í Hollandi
og Danmörku.
Smitið hefur að öllum líkindum
borist í minkana úr mönnum og
svo á milli minka og svo úr þeim í
starfsmenn búanna.“
Yfir tegundaþröskuldinn
„Þrátt fyrir að við höfum ekki
fengið sýni til athugunar er vel
þekkt að þegar smitefni fara yfir
tegundaþröskuldinn þá getur
hýsilsviðið orðið mjög stórt meðan
smitefnið er að aðlagast nýjum hýsli
eða hýslum. Kórónaveiran er súna
sem upphaflega er líklega komin úr
skeifuleðurblökum í Kína og smitast
nú auðveldlega manna á milli.
Komið hefur í ljós bæði með
tilraunasmiti og við rannsóknir á
náttúrulegum smitum að nokkur
fjöldi dýrategunda er móttækilegur
fyrir smiti með SARSCoV2
veirunni.
Náttúrulegt smit hefur verið
greint í hundum, köttum, tígris
dýrum, ljónum og minkum. Þá
hafa smittilraunir með veiruna verið
framkvæmdar á hundum, köttum,
svínum, frettum, kjúklingum, öndum
og í einni ávaxtaleðurblökutegund.
Niðurstöður tilraunasmita hafa
sýnt að dýrategundir eru misnæmar
fyrir smiti með veirunni. Þannig
fannst lítil veiruframleiðsla í
tilraunasmituðum hundum, svínum,
kjúklingum og öndum og smit
greindist ekki í dýrum í samvist með
þeim. Aftur á móti voru kettir, frettur
og ávaxtaleðurblökurnar næm fyrir
veirunni og gátu smitað út frá sér.
Það er því í samræmi við
þessa niðurstöðu að mestur fjöldi
náttúrulegra smita sem greind hafa
verið í dýrum hafa verið í köttum og
minkum. Ekki er vitað hve SARS
CoV2 smit í köttum er algengt en
kettir geta bæði verið einkennalausir
og sýnt einkenni. Samkvæmt
mótefnamælingu í köttum í Wuhan í
Kína fundust mótefni gegn veirunni í
tæplega 15% kattanna sem skoðaðir
voru.
Enn sem komið er hefur ekki
verið athugað hversu móttækileg
jórturdýr eins og kýr og sauðfé er
fyrir smiti en við vitum að MERS
kórónaveiran finnst í úlföldum
Svín eru aftur á móti lítt mót
tækileg fyrir veirunni og hafa ekki
smitað áfram í tilraunasmitum,“
segir Vilhjálmur.
Gæludýr hafa ekki þýðingu
fyrir dreifingu á smiti
Vilhjálmur segir að til þessa
hafi Alþjóðadýraheilbrigðis
málastofnunin ekki talið að gæludýr
hafi þýðingu fyrir dreifingu á smiti.
„Hvað sem því líður þá erum við
tilbúin til að greina smit í dýrum
vakni grunur um slíkt,“ segir
Vilhjálmur Svansson, dýralæknir á
Keldum. /VH
COVID-19 og smit í dýrum:
Dýr mismóttækileg fyrir smiti og
misjafnt hvort þau smita áfram
Vilhjálmur Svansson, dýralæknir
hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í
meinafræði að Keldum.
Auðhumla lækkar verð
fyrir umframmjólk
– Ætti ekki að ógna búum í þokkalegum rekstri
Auðhumla hefur tilkynnt um að
verð fyrir umframmjólk verði
20 krónur á lítrann frá 1. ágúst
næstkomandi. Áfram verði greitt
eftir gæðum og verðefnum eins
og áður.
Verðið lækkar úr 29 krónum, en
ástæðurnar eru þungar aðstæður á
erlendum mörkuðum og lágt verð,
samkvæmt tilkynningunni. „Langan
tíma tekur að afsetja vörur á erlendan
markað auk þess sem COVID19
hefur mikil áhrif“, segir í tilkynningu
Auðhumlu.
Uppbætur verði greiddar eftir að
lokauppgjör ársins hefur farið fram.
Snertir allnokkra bændur
„Lækkunin snertir auðvitað
allnokkra bændur, þá sem hafa
framleitt meira en þeir eiga
greiðslumark fyrir. Það er hins
vegar þannig að hluti af greiðslum
ríkisins kemur líka á framleiðsluna
sem er utan greiðslumarks. En það er
ljóst að þessi lækkun skerðir tekjur
á hvern lítra, sem nemur þessari
krónutölu – og það hefur auðvitað
áhrif á reksturinn hjá þeim bændum,“
segir Arnar Árnason, formaður
Landssambands kúabænda, spurður
hvort lækkunin muni hafa afgerandi
áhrif á rekstur tiltekinna bænda.
Alls ekki gott ef það kæmu
fleiri slíkar lækkanir
„Þessi lækkun ógnar ekki
rekstrinum á búi sem hefur verið
þokkalega rekið, en afkoman
versnar örugglega sem þessum
tekjum nemur. Þetta eru afleiðingar
af þeim skrýtnu tímum sem eru á
hrávörumarkaði ytra; smjör og duft
hefur lækkað hraðar en sem nemur
styrkingu krónunnar.
Það væri alls ekki gott ef við
fengjum fleiri svona lækkanir,“
bætir Arnar við. /smh
Arnar Árnason.