Bændablaðið - 02.07.2020, Page 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 2020 7
LÍF&STARF
Þegar Ríkharður Jónsson hafði gert hina frægu eirsteypu af Matthíasi Jochumssyni orti Matthías:
Matta gerði guð úr leir
sem guðsmenn aðra fleiri,
en Ríkharður mig renndi úr eir,
rausnin var þar meiri.
Einhverju sinni orti Haraldur Briem út af
þeim orðum Matthíasar, að andinn væri
ekki yfir honum:
Mikið er ef Matthías
missir kvæða andann,
sem í átta gramma glas
getur kveðið fjandann.
Þannig hafa prestar á hverri tíð verið
ágætlega hagorðir. Séra Sigurður Norland,
prestur í Hindisvík, var í þeim efnum
afkastamikill og snjall:
Bráðum sneiðist byggðin hér,
borgin seiðir marga.
Tjörn í eyði eflaust fer,
engin leið að bjarga.
Mikið vald var Sigurði gefið yfir brag
háttum. Hér er ort undir afdráttarhætti.
(Vatnsheld sléttubönd):
Hrósa sveigar mættu menn
munað slíkan tvinna,
rósa veigar ættu enn
unað líkan vinna.
Hvetur blíða, margir menn
marka kvíða blandið,
vetur líða argir enn
arka víða landið.
Gramur hvetur köldu kinn
kallar, svíkur frekur.
Rammur vetur öldu inn
allar víkur rekur.
Frauður kvikur hendist hátt,
heitur skefur grunna,
rauður vikur, endist átt,
eitur kefur runna.
Sverða gramir finna fund,
fala svörðinn græna.
Verða ramir inna und,
ala vörðinn ræna.
Í nýlegu bréfkorni frá sr. Skírni
Garðars syni, er að finna nokkrar
stökur frá prestsþjónustu hans í
Rangárþingi. Skírnir hafði á stundum
örlítið sauðfjárhald. Hann hafði glatað
fjárbók prestssetursins í Odda, en fann
síðar ásamt gegningarfatnaði sem lagður
hafði verið í bleyti í þvottabala:
Kindabók prestsins fór á flakk,
ferlega vessa í sig drakk,
nú er hún bæði á ská og skakk,
ei skilst nú lengur það almanakk.
Aðkomulamb uppgötvaðist á
pestssetrinu eitthvert haustið. Lambið
hafði undanvillst og eyrun sviðin hálf
af vegna sólbruna. Eyrnamarkið var því
með öllu ólæsilegt. Því fóstraði Skírnir
lambið með sínu fé. Af þessu tilefni
orti Björgúlfur Þorvarðarson, bóndi
á Hrafnatóftum:
Mark að lesa erfitt er,
eins þó væri ég blindur,
Oddaklerkar eigna sér
eyrnalausar kindur.
Þegar Bjarni Jónsson frá Gröf fagnaði
sjötugsafmæli sínu bárust honum
blessunaróskir fjölda sinna skáldbræðra.
Friðjón Ólafsson var einn þeirra
hagyrðinga sem sendu afmælisbarninu
kveðju, en fannst kveðjan sín klén og bætti
við kveðjuna þessari áréttan;
Skáldanna var mærðin mest,
mæltu hagyrðingar flest,
einhver varð að yrkja verst
og það tókst mér langtum best.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
253MÆLT AF
MUNNI FRAM
Rúningur upp á gamla mátann í Sölvholti
Féð komin í réttina í Sölvholti. Myndir / Páll Imsland
Rúningurinn á fullu.
Það er ekki víða núorðið sem sumarrúningur
á sér stað og það upp á gamla mátann, féð
bundið og rúið með sauðaklippum.
Það gerist samt enn og hér með fylgja
nokkrar ljósmyndir sem Páll Imsland tók af
slíkum atburði sem átti sér stað í Sölvholti,
rétt austan við Selfoss, sunnudaginn 28. júní
síðastliðinn.
Þar er fallegt fé og litskrúðugt, lömbin
komin vel á legg, fjörug og státin og sýna
alls konar liti og afbrigði. Meðfylgjandi eru
myndir af fénu og atburðinum.
Séðyfirhlutaréttarinnarogskrautlegtféð.Þaðerleikurílömbunum.
Sumt rúið og annað órúið.