Bændablaðið - 02.07.2020, Qupperneq 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 20208
FRÉTTIR
Heildarsala á kjöti dregst saman
– en kindakjötssalan eykst
Sala á íslensku kjöti dróst saman
um 7,5% í maí en þá voru seld
rúmlega 2.176 tonn. Þá hefur
verið samdráttur í heildarkjötsölu
yfir heilt ár sem nemur 2,4%. Á
sama tíma var aukning í sölu á
kindakjöti.
Sala á alifuglakjöti er meiri en
allt annað, en af því voru seld rúm
748,3 tonn í maí. Í öðru sæti var
sala á svínakjöti sem nam tæplega
637,9 tonnum. Kindakjöt var í þriðja
sæti en af því voru seld rúm 424,2
tonn. Af nautgripakjöti voru svo seld
tæp 347,4 tonn og tæp 18,3 tonn af
hrossakjöti.
Samdráttur í kjötsölu en samt
aukin kinda- og hrossakjötssala
Ef litið er á sölu yfir 12 mánaða
tímabil lítur dæmið aðeins öðruvísi út.
Þar kemur fram að 4,2% samdráttur hefur
orðið í sölu á alifuglakjöti, en seld voru
tæp 9.390 tonn. Um 4,2% samdráttur
í sölu á svínakjöti, en því seldust rúm
6.514 tonn. Þá var 1,8% samdráttur í sölu
á nautgripakjöti með heildarsölu upp á
tæp 4.721 tonn. Um 1,6% aukning hefur
hinsvegar orðið í sölu á kindakjöti og af
því seldust tæp 7.060 tonn. Einnig var
0,6% aukning í sölu á hrossakjöti, en af
því seldust tæp 696 tonn. /HKr.
Niðurstöður vöktunar Matvælastofnunar á súnum:
Aukning salmonellusmita
í alifuglum og svínum
– en ekki fleiri salmonellusýkingar í fólki
Matvælastofnun (MAST) hefur
birt niðurstöður úr vöktun á
súnum fyrir síðasta ár, en það
eru sjúkdómar eða sýkingavald-
ar sem smitast milli manna og
dýra. Fjöldi sýna úr alifuglum og
svínum með salmonellusmit jókst
nokkuð á síðasta ári miðað við
árið á undan og mun skýringuna
vera að finna í endurteknum
smitum fárra búa þar sem erfitt
hefur verið að losna við tiltekna
stofna bakteríunnar.
Sýkingatilfellum salmonellu í
fólki hefur hins vegar ekki fjölgað.
Skýringar Matvælastofnunar á því
eru að eftirlit með salmonellu og
kampýlóbakter á fyrri stigum mat-
vælakeðjunnar sé öflugt á Íslandi
sem skili neytendum auknu mat-
vælaöryggi. Mikil aukning var í
sýkingum fólks af völdum eitur-
efnamyndandi E. coli (STEC), sem
aðallega má rekja til hrinu sýkinga
á ferðaþjónustubýli á Suðurlandi
síðasta sumar. Fram til þessa mun
tíðni þessarar sýkingar hafa verið
mjög lág í fólki hér á landi, eitt
til þrjú tilfelli á ári. Telur MAST
að niðurstöður faraldsfræðilegrar
rannsóknar á hrinunni og skimana
sem framkvæmdar voru 2018 og
2019 fyrir STEC í kjöti á markaði
benda til að bakterían sé hluti af
örveruflóru íslenskra nautgripa og
sauðfjár. Er mælt með frekari rann-
sóknum á algengi STEC í búfé og
skerpa á fyrirbyggjandi aðgerðum
í sláturhúsum og kjötvinnslum til
að minnka líkur á að STEC berist
í kjötið.
Engar breytingar á algengi
kampýlóbakter
Engar marktækar breytingar komu
fram á algengi kampýlóbakter í fólki
eða í alifuglum og afurðum þeirra.
Kampýlóbakter greindist í þremur
sýnum af frosnu kjúklingakjöti á
markaði (2,1% sýna), bæði af inn-
lendu og erlendu kjöti. Í öllum til-
fellum var um að ræða mjög litla
bakteríumengun eða undir grein-
ingarmörkum.
Vöktun á salmonellu í eldi og
á sláturhúsum, samkvæmt lands-
áætlunum, lágmarkar að mati
Matvælastofnunar hættuna á að
smit berist með alifugla- og svína-
kjöti í fólk. Heilgenarannsóknir
sem framkvæmdar voru á árinu
styðji þá niðurstöðu. Eitt sýni úr
innlendu svínakjöti á markaði
reyndist vera með salmonellu –
og telur Matvælastofnun að það sé
áminning um að stöðugt sé þörf á
því að vera á varðbergi og hvetja til
réttrar meðhöndlunar á matvælum
hjá neytendum.
Aðrar hættulegar bakteríur
Í umfjöllun MAST um niðurstöður
vöktunarinnar kemur fram að aðrar
matarbornar bakteríur, fyrir utan
salmonellu og kampýlóbakter,
valda sjaldnar sjúkdómi í fólki en
í ljósi þess að um mjög alvarlega
sjúkdóma geti verið að ræða sé
eftirlit með þeim bakteríum ekki
síður mikilvægt.
Ein slík er listería, sem finnst
reglulega í þekktum áhættuafurð-
um og framleiðsluumhverfi þeirra.
Sérstaklega fylgst með
matvælafyrirtækjum
Greint er frá átaksverkefni sem hófst
á síðasta ári, sem felst í sérstöku eft-
irliti með matvælafyrirtækjum sem
framleiða matvæli tilbúin til neyslu,
með áherslu á reyktar og grafnar
lagarafurðir, osta og kjötálegg. Farið
er sérstaklega yfir sýnatökuáætlun
fyrirtækja og fyrirbyggjandi aðgerðir
þeirra gegn listeríu. Þá segir í um-
fjölluninni að við að innflutnings-
eftirlit með dýraafurðum frá löndum
utan EES séu reglulega tekin sýni
til greininga á salmonellu, listeríu
(L. monocytogenes) og E. coli. Á
árinu 2019 hafi sýni verið tekin úr
sendingum af hrognum, soðinni
rækju, mysudufti, kjötafurðum (til-
búnum kjúklingaréttum) og gælu-
dýrafóðri, en þau hafi öll verið nei-
kvæð. /smh
Tilraunaverkefni um heimaslátrun sauðfjárbænda:
Ótakmarkaður fjöldi bænda getur tekið þátt
– Opnast gífurleg tækifæri, að mati formanns Landssamtaka sauðfjárbænda
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra og
Guðfinna Harpa Árnadóttir,
bóndi á Straumi í Hróarstungu
og formaður Landssamtaka
sauðfjárbænda, undirrituðu
þann 18. júní samkomulag um að
tilraunaverkefni um heimaslátrun
hefjist næsta haust. Markmiðið
er að leita leiða til að auðvelda
bændum að slátra sauðfé heima
til markaðssetningar, þannig að
verklagið sé í samræmi við reglur
um heilbrigði og dýravelferð.
Verkefninu er því ætlað að auka
möguleika sauðfjárbænda á bættri
afkomu og sterkari tengingu beint
við neytendur.
Ragnheiður Lára Brynjólfsdóttir,
sauðfjárbóndi í Birkihlíð, er í
undirbúningshópi verkefnisins.
Hún segir að rétt um 40 bú hafi sótt
um þátttöku í verkefninu, þó ekki
hafi formlega verið auglýst eftir
þátttakendum. „Það besta er að allir
komast að sem vilja. Það eru engin
fjöldatakmörk, við og ráðuneytið
viljum að sem flestir verði með.
Eins þarf fólk ekki að vera með neina
sérstaka aðstöðu, bara gera þetta eins
og það hefur gert.
Það er verið að vinna í því að
útbúa auglýsingu, við höfum aðeins
sagt frá þessu á Facebook-síðum
og fólk er líka duglegt að hringja
og spyrjast fyrir um þetta,“ segir
Ragnheiður Lára.
Aðkoma dýralækna
„Bændurnir og aðstoðarfólk, ef
eitthvað slíkt er til staðar, mun sjá
um slátrunina sjálfa en dýralæknar
koma í lífskoðun og síðan í skoðun
eftir slátrun. Það er verið að skoða
möguleika á að þar sem ekki fást
dýralæknar geti verið mögulegt að
nota fjarfundabúnað, sem er mjög
spennandi kostur og myndi spara
mikinn akstur og tíma.
Í verkefninu er lagt upp með að
það muni helst ekki leggjast neinn
kostnaður á bændurna við að taka
þátt í þessu verkefni. Við viljum
að sem flestir taki þátt til að fá
sem breiðasta grunn og ekki skiptir
máli hvernig aðstæður eru,“ segir
Ragnheiður Lára.
Útbúin gæðahandbók
Samkvæmt upplýsingum úr
atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytinu er fyrirhugað að bændur
sjái sjálfir um heimaslátrunina
en opinbert eftirlit verði í
höndum dýralækna á vegum
Matvælastofnunar. Ekki liggur
endanlega fyrir nákvæmlega hvaða
gæðaþáttum verður fylgst með
en meðal annars verður sýrustig í
vöðva skoðað strax eftir slátrun – og
næstu klukkustundir þar eftir – auk
þess sem tekin verða örverusýni. Þá
verður útbúin gæðahandbók þar sem
nauðsynlegar upplýsingar úr slátrun
verða skráðar af þátttakendum.
Ekki verður heimilt að selja
kjötafurðirnar sem koma út úr
verkefninu. Áætlað er að niðurstöður
verkefnisins liggi fyrir í árslok 2020,
en það er ráðuneytið sem fer með
stjórn verkefnisins og tekur saman
niðurstöður.
Opnast gífurleg tækifæri
Guðfinna Harpa Árnadóttir, formaður
Landssamtaka sauðfjárbænda,
fagnar því að þetta verkefni sé að
fara í gang. „Öll undirbúningsvinna
hefur verið unnin af bændum í
aðgerðarhóp verkefnisins. Án þeirra
frumkvæðis væri þetta verkefni ekki
orðið til. Aðkoma ráðuneytisins
sýnir glöggan vilja stjórnvalda
til þess að gera þetta mögulegt.
Landssamtök sauðfjárbænda hvetja
alla sauðfjárbændur til þátttöku í
verkefninu. Með því að færa stærri
hluta virðiskeðjunnar til bænda opnast
gífurleg tækifæri til nýsköpunar,
vöruþróunar og bættrar afkomu
bænda,“ segir hún. /smh
Þröstur Heiðar Erlingsson og Ragnheiður Lára Brynjólfsdóttir eru sauðfjár-
bændur í Birkihlíð og reka eigin kjötvinnslu. Mynd / HKr.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STARTARAR í flestar
gerðir dráttarvéla
Léttar bryggjur við vötn
Auðveld uppsetning – úrval fylgihluta.
KrÓli ehf. Strandvegur 2, 210 Garðabæ
s. 690 1155
koh@kroli.is www.kroli.is
,,Þingvallavatn 2020”