Bændablaðið - 02.07.2020, Síða 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 202012
FRÉTTIR
Engin áform á borðinu um Álftafjarðargöng:
Súðavíkurhlíð lokaðist nær 40 sinnum
á fyrstu þremur mánuðum ársins
Í Súðarvíkurhreppi við Ísa
fjarðar djúp búa nú um 200
manns, en hreppurinn nær yfir
mjög stórt landsvæði. Hann nær
frá Súðavíkurhlíð í norðri og inn
í botn á Ísafirði, innsta firðinum
við Ísafjarðardjúp. Samgöngur
eru því eðlilega ofarlega á blaði
hjá Súðvíkingum.
Súðavík er komið í ágætar
vegasamgöngur við aðra lands
hluta og samfellt bundið slitlag
er á veginum frá Reykjavík til
Súðavíkur. Þá er nú unnið að
endurbótum og breikkun vegar
ins í Seyðisfirði og Hestfirði. Það
tekur samt um einn og hálfan til
tvo klukkutíma að aka á milli enda
í sveitarfélaginu. Þá ber að geta
þess að vegurinn til Ísafjarðar,
þangað sem Súðvíkingar sækja
að mestu sína þjónustu, liggur um
Súðavíkurhlíð sem oft er lokuð á
vetrum vegna snjóflóða eða yfir
vofandi snjóflóðahættu. Gripið er
til lokana þegar snjóalög eru í hlíð
inni og í samræmi við veðurspár
og mat á snjóflóðahættu.
Ekkert að frétta af jarðgöngum
Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri
Súðavíkur hrepps, segir engar fréttir
vera af gerð jarðganga sem leysi
af veginn um Súðavíkurhlíð og
Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði sem
líka geti lokast vegna snjóflóða.
Jarðgöng séu ekki á vegaáætlun
og algjör óvissa um framvindu
þess máls.
„Það var verst að missa Álfta
fjar ðar göng út úr samgönguáætlun.
Þótt málinu hafi eitthvað verið
hreyft á Alþingi hefur það ekki
fengið neinn sérstakan hljómgrunn.
Hátt í 40 lokanir
á þrem mánuðum
Það voru hátt í fjörutíu lokanir á
Súðavíkurhlíð á fyrstu þrem mán
uðum ársins, allt að sólarhring í
hvert skipti og stundum lengur.
Það þýðir að fólk hefur verið
einangrað hér í marga daga
og ekki getað sótt þjónustu á
milli byggðarlaga. Samt hafa
menn hugmyndir um að hér á
norðanverðum Vestfjörðum eigi
að vera eitt byggðarlag í átaki
um sameiningu sveitarfélaga.
Hér háttar enn svo til að við
verðum jafnvel að senda sjúklinga
á milli staða sjóleiðina með
björgunarskipi,“ segir Bragi.
Hann segir að þrátt fyrir ýmsa
erfiðleika hvað samgöngur varðar,
þá sé gríðarlega gott að búa í
Súðavík og mikil samheldni sé
meðal íbúa. /HKr.
Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri
Súðavíkurhrepps.
Unnið við að fleyga sprungið og hættulegt berg á Súðavíkurhlíð á dögunum. Myndir / Haukur Már Harðarson
Vegurinn um Súðarvíkurhlíð útheimtir mikla viðhaldsvinnu á hverju ári í
viðleitni við að tryggja öryggi vegfarenda. Mynd / SÞT
www.volkswagen.is
Nýja T6.1 línan er mætt
Sendibílar, pallbílar, smáir vinnubílar og stórir
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000
Skoðaðu úrvalið á
www.hekla.is/volkswagensalur