Bændablaðið - 02.07.2020, Side 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 202014
HLUNNINDI&VEIÐI
FRÉTTIR
Verkefnið Future Kitchen er eitt þeirra verkefna sem Matís stýrir og starfar að. Það er styrkt af EIT Food, undirstofnun
Evrópusambandsins. Mynd / Algaennovation
Matís stýrir Evrópuverkefni:
Skordýraborgarar
og smáþörungar
Sjálfbærni er hugtak sem mikið er
í umræðunni þessa dagana og er
það í fullu samræmi við sjálfbærn-
imarkmið, eða heims markmið,
Sameinuðu þjóðanna fyrir allar
þjóðir heims fyrir árið 2030.
Flestum er orðið ljóst að betur má
ef duga skal þegar litið er til sjálf
bærrar nýtingar auðlinda jarðar, svo
tryggja megi mögu leika framtíðar
kynslóða til að eiga þess kost að nýta
þessar auðlindir sér til næringar og
lífs. Eitt af því sem þarf að vinna að
er endurhugsun fæðukerfisins, þar
sem matvælatækni og matvælavís
indi eru lykill í því að finna leiðir
til að nýta betur, á sjálfbæran hátt,
vannýttar en ríkulegar auðlindir
jarðarinnar.
Evrópuverkefni sem Matís stýrir
Um þetta snýst Evrópuverkefni sem
Matís stýrir og starfar að í samstarfi
við framsækin fyrirtæki, stofnanir og
háskóla í Evrópu. Verkefnið miðar
að því að vekja fólk til umhugsunar
um og jákvæðra viðhorfa til nýrra
sjálfbærra fæðuleiða og það hvernig
tækni og vísindi eru nauðsynlegur
þáttur þar.
Verkefnið kallast Future Kitch en
og er eitt þeirra verkefna sem Matís
stýrir og starfar að, sem styrkt er
af EIT Food, undirstofnun Evrópu
sambandsins.
Gagn og gaman
Rakel Halldórsdóttir, sérfræðingur
hjá Matís, segir að í verkefninu
sé upplýsingum um fæðuleiðir,
sem nýttar eru á sjálfbæran hátt,
miðlað í myndbandaformi. „Þar er
skemmtimennt (e. infotainment)
notuð til að koma upplýsingunum
til ungs fólks, helsta markhóps ver
kefnisins, á áhugaverðan og einnig
skemmtilegan hátt, meðal annars
með notkun sýndarveruleikamynd
banda.“
„Future Kitchen“
„Á þessu ári hefur þegar verið
gefið út Future Kitchen sýndar
veruleikamyndband sem sýnir
sjálfbæra ræktun smáþörunga í sér
hönnuðu ræktunarkerfi innanhúss
hjá fyrirtækinu Algaennovation á
Íslandi, en fyrirtækið nýtir jarð
varma til ræktunarinnar. Annað
sýndarveruleikamyndband, sem
væntanlegt er fljótlega, sýnir
ræktun skordýra til fæðu, en
svissneska fyrirtækið Essento
gerir skordýraborgara sem grill
aðir eru úti við í góðra vina hópi
í myndbandinu.“
Að sögn Rakelar eru bæði skor
dýr og smáþörungar næringar rík
fæða og ríkuleg auðlind á jörðu.
„Talið er að milli 30.000 til ein
milljón tegundir smáþörunga fyr
irfinnist á jörðinni, en einungis
innan við 10 tegundir eru nýttar til
fæðu eða í fæðubótarefni í dag. Þá
má geta þess að auk þess að vera
næringarbomba eru smáþörungar
hin raunverulega uppspretta hinna
mikilvægu Omega3 fitusýra, en
fiskur fær þessar nauðsynlegu
fitusýrur úr smáþörungunum. Að
auki er framleiðsla smáþörung
anna hjá Algaennovation kolefnis
neikvæð, í stað þess að menga
losar framleiðslan súrefni út í
umhverfið.“
Sýndarveruleiki
Sýndarveruleikamyndböndin má
horfa á í þar til gerðum sýndar
veruleikagleraugum, en einnig
á tvívíðum skjá með því að
hreyfa bendilinn um skjáinn (eða
hreyfa skjásíma/spjaldtölvu til og
frá). Myndböndin eru aðgengi
leg á Youtubesíðu Matís og á
FoodUnfolded.com. /VH
Rakel Halldórsdóttir, sérfræðingur
hjá Matís.
Norðlenska styður við
aukna svínarækt
Eigendur að Syðri-Bægisá hlutu
umhverfisverðlaun Hörgársveitar
fyrir árið 2020.
Umhverfis og skipulagsnefnd
sveitarfélagsins sér um umhverfis
verðlaunin og tók ákvörðun sína í
upphafi árs, en sveitarstjórn Hörgár
sveitar færði ábúendum verðlaunin
og nýtti til þess 10 ára afmælisdag
Hörgársveitar.
Ábúendur á SyðriBægisá eru þau
Ragnheiður M. Þorsteinsdóttir og
Helgi Bjarni Steinsson og stunda þau
kúabúskap á jörð sinni. Nýtt fjós var
tekið í notkun þar sumarið 2018. Það
er vel tækjum búið og vinnuaðstaða
eins og best verður á kosið. /MÞÞ
Norðlenska breytti fyrirkomulagi
við innkaup á svínakjöti á árinu
þannig að dregið var aðeins úr
slátrun en aukin innkaup á inn-
lendum skrokkhlutum eins og
framleiðslunni hentar á hverjum
tíma.
Svínakjöt er mikilvægt hrá
efni inn í vinnslur Norðlenska og
undirstaðan í stórum vöruflokkum
eins og áleggsvörum. Fram kemur
í fréttabréfi fyrirtækisins að mikil
samkeppni sé í svínakjötsafurðum
þar sem fáir stórir og stækkandi
aðilar eru ráðandi á markaði.
„Ljóst er að með aukinni sam
þjöppun í svínarækt og úrvinnslu
þyngist róðurinn frekar fyrir minni
aðila og því er afar áhugavert fyrir
Norðlenska að taka með einhverj
um hætti þátt í og styðja við aukna
svínarækt á starfssvæði félagsins,“
segir í fréttabréfi Norðlenska. /
MÞÞ
Hlutafé aukið í Norðlenska
Samþykkt var heimild til stjórn-
ar Norðlenska að auka hlutafé í
félaginu um allt að 200 milljónir
króna á síðasta aðalfundi. Stjórn
mun væntanlega freista þess að
auka hlutaféð á þessu starfsári.
Á aðalfundinum var kosin ný
stjórn Norðlenska. Úr stjórninni
fóru Óskar Gunnarsson og Erla
Björg Guðmundsdóttir. Í þeirra
stað komu ný í stjórn Guðrún Tinna
Ólafsdóttir og Ingvi Stefánsson.
Aðrir í stjórn eru Sigurgeir
Hreinsson, Rúnar Sigurpálsson
og Gróa Jóhannsdóttir. Á fyrsta
fundi stjórnar var Rúnar kjörinn
formaður, Sigurgeir varaformaður
og Gróa ritari. /MÞÞ
Tómas Ellert Tómasson, bæjarfulltrúi í Árborg (t.h.), og Guðmundur Marías
Jensson, formaður Stangaveiðifélags Selfoss, þegar veiðin hófst formlega
í ánni að morgni 24. júní.
Reiknað með góðri veiði
í Ölfusá í sumar
„Okkur líst mjög vel á sumarið,
áin lítur vel út og veiðin fer vel af
stað hjá okkur, þetta verður gott
veiði sumar,“ segir Guðmundur
Marías Jensson, formaður Stanga-
veiðifélags Selfoss.
Veiði í Ölfusá hófst formlega
miðvikudaginn 24. júní klukkan
07.00. Um leið fengu félagsmenn
og gestir þeirra að skoða nýtt og
glæsilegt veiðihús félagsins, sem
verður formlega tekið í notkun í
haust. Tómas Ellert Tómasson,
bæjarfulltrúi í Árborg, hóf
veiðisumarið í Ölfusá með aðstoð
formannsins. /MHH
Nýja veiðihúsið við Ölfusá á Selfossi er glæsilegt í alla staði og er það
tæplega 90 fermetrar að stærð. Byggingastjóri hússins var Agnar Pétursson,
húsasmíðameistari og félagi í stangaveiðifélaginu.
Hörgársveit:
Bændur á Syðri-Bægisá fengu umhverfisverðlaun
Axel Grettisson, oddviti Hörgársveitar, Ragnheiður M. Þorsteinsdóttir og
Helgi Bjarni Steinsson, bændur á Syðri-Bægisá, og Jón Þór Benediktsson,
formaður skipulags- og umhverfisnefndar Hörgársveitar.