Bændablaðið - 02.07.2020, Síða 15
Bændablaðið | Fimmtudagur 19. mars 2020 15
Dráttarvélar,
rúllusamstæður,
sláttuvélar og
heytætlur.
Austurvegi 69 // 800 Selfoss // 480 0400 // jotunn.is // jotunn@jotunn.is
Allar nánari upplýsingar
veita starfsmenn
Ríkiskaupa í síma 530 1400
eða í gegnum netfangið
fasteignir@rikiskaup.isBorgartúni 7c, 105 Reykjavík | Sími 530 1400 | www.rikiskaup.is
RÍKISKAUP
AUGLÝSA EFTIRFARANDI EIGN TIL SÖLU:
BJARNARBRAUT 8, BORGARNESI – SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Um er að ræða 629,4 m2 skrifstofuhúsnæði á 1. hæð við
Bjarnarbraut 8, Borgarnesi.
Eignin skiptist í tvö skrifstofurými, annars vegar 361,8 m2
og hins vegar 267,6 m2. Samtals 629,4 m2.
Gengið er inn um bjarta tengibyggingu sem er í sameign.
Eignin er kjörin til þess að leigja út einstök rými.
Gott aðgengi er að húsinu og rúmgóð steypt bílastæði fylgja
en stæðin eru ekki sérmerkt.
Frekari upplýsingar um eignina má finna á heimasíðu Ríkiskaupa:
www.rikiskaup.is.
Verð: 99 mkr.
Bænda 16. júlí
LEKTOR
Í UMHVERFISFRÆÐUM
LBHI.IS/STORF
VERKEFNISSTJÓRAR
Í KORNRÆKT OG
FÓÐURJURTUM
Laust er til umsóknar 100% starf lektors í umhverfisfræðum með áherslu á sjálfbæra
landnýtingu við deild Náttúru og skóga hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ).
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ
» Byggja upp alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir á sérsviði sínu, birta ritrýndar vísindagreinar,
afla rannsóknarstyrkja og taka virkan þátt í alþjóðlegu og innlendu samstarfi
» Leiðbeina nemendum í rannsóknaverkefnum og kenna námskeið á grunn- og framhaldsstigi.
Lektor hefur tækifæri til að þróa námskeið í grunn- og framhaldsnámi
» Taka virkan þátt í störfum deildar eftir því sem þörf krefur
HÆFNIKRÖFUR
» Doktorspróf í plöntuvistfræði, vistkerfisfræði, vistfræði landnýtingar, vistþjónustu, jarðvegsfræði
eða öðrum greinum er nýtast við starfið
» Góð tölfræðikunnátta og geta til að vinna úr viðamiklum gögnum er kostur
» Þekking og reynsla af rannsóknum er tengjast sjálfbærni og landnýtingu, þ.m.t. af notkun
landupplýsingakerfa, er æskileg
» Umsækjandi hafi kynnt rannsóknir sínar á viðurkenndum vettvangi og hafi skýra framtíðarsýn
í þeim efnum
» Reynsla af kennslu og geta og vilji til fjölbreyttrar þekkingarmiðlunar á fræðasviðinu
» Aðild að rannsóknarverkefnum og öflun rannsóknastyrkja í samvinnu við aðra
» Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum
» Íslenskukunnátta er æskileg
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Nánari upplýsingar veita Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri, gudmunda@lbhi.is
sími 433-5000 og Isabel C Barrio, deildarforseti Náttúru og skógar í síma 869 3876, isabel@lbhi.is.
Upphafleg ráðning verður til fimm ára í samræmi við lög um opinbera háskóla nr. 85/2008. Að þeim tíma liðnum verður
tekin ákvörðun um framhaldið. Gert er ráð fyrir að umsækjandi hefji störf sem fyrst og eigi síðar en 1. janúar, 2021.
Athygli er vakin á því að samkvæmt reglum LbhÍ er rektor heimilt að veita framgang í starf dósents eða prófessors strax
við nýráðningu ef umsækjandi uppfyllir viðkomandi hæfnisviðmið.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla
nr. 85/2008 og reglna um nýráðningar og framgang akademískra starfsmanna við Landbúnaðarháskóla Íslands frá 20.
september 2012.
Launakjör eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um
réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Laust er til umsóknar störf tveggja verkefnisstjóra í kornrækt annarsvegar og fóðurjurtum
hinsvegar við Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ). Starfsmennirnir yrðu hluti af teymi LbhÍ
sem sinnir rannsóknum, nýsköpun og fræðslu á sviði jarðræktar.
STARFSKYLDUR
» Sinna rannsóknum í jarðrækt með áherslu á kornrækt / fóðurjurtir
» Sækja rannsóknarstyrki í erlenda og innlenda sjóði
» Leitast eftir samstarfi/samvinnu við annað vísindafólk
» Sækja sér faglega þekkingu á ráðstefnum, samráðsvettvangi erlendis og innanlands
» Kennsla á grunn- og framhaldsstigi og leiðbeining nemenda
» Kynna niðurstöður rannsókna á ritrýndum vettvangi og fyrir almenningi
» Vera virkur þátttakandi í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan skólans
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
» Framhaldsnám (MSc/PhD) á háskólastigi í búvísindum, líffræði, plöntuvistfræði eða skyldum
greinum
» Þekking á lífeðlis- og erfðafræði plantna
» Þekking á kynbótum og/eða ræktun nytjajurta á norðlægum slóðum æskileg
» Áhugi á kennslu og miðlun þekkingar
» Getu til að vinna sjálfstætt og sem hluti af hóp
UMSÓKNARFRESTUR
» 15.08.2020
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Nánari upplýsingar um starfið veita Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri,
gudmunda@lbhi.is sími 433-5000 og Þóroddur Sveinsson forseti deildar ræktunar og fæðu,
thorodd@lbhi.is, sími 843-5331
Launakjör eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um
réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
» 10.08.2020UMSÓKNARFRESTUR
Starfsstöðvar skólans eru þrjár: Keldnaholt í Reykjavík, Hvanneyri í Borgarfirði og Reykir í Ölfusi