Bændablaðið - 02.07.2020, Page 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 2020 17
Úthlutun úr menningarsjóði
sem tengdur er nafni Jóhannes
ar Nordal, fyrr ver andi seðla
bankastjóra, fór fram í níunda
sinn fyrir skömmu. Markmiðið
með styrk veiting unni er að styðja
viðleitni einstak linga og hópa
sem miðar að því að varðveita
menningar verðmæti sem
nú verandi kyn slóð hefur fengið
í arf.
Meðal þeirra sem hlutu styrk
að þessu sinni er Fræðafélag um
forystufé á Svalbarði í Þistilfirði.
Það hlaut 1,5 milljóna króna styrk
til að skrá allt forustufé í landinu í
miðlægan gagnagrunn, fjarvis.is.
Tilgangurinn að skrá
ættir forystufjár
Daníel Hansen, forstöðumaður
Fræðaseturs um forystufé, segir að
styrkurinn geri fræðafélaginu kleift að
láta klára og endurbæta gagnagrunn
fjarvis.is þannig að hann aðgreini
forustufé frá öðru fé í landinu. Í
kjölfarið af því verða upplýsingar
um allt forustufé á landinu skráðar og
gerðar aðgengilegar. Daníel segir að
skráningin muni skrá ættir forustufjár
eins langt aftur og hægt er.
„Forustufé er hluti af íslenskum
menningararfi sem okkur ber að
varðveita og safna upplýsingum
um og varðveita. Ættrakningin
nær mislangt aftur eftir svæðum,
yfirleitt 30 til 40 ár, en í sumum
tilfellum nær hún 100 ár aftur í
tímann.“
Daníel segir að forustufé sé
aðeins til á Íslandi og að það hafi
verið viðurkennt sem sérstakur
fjárstofn árið 2017 og að skráningin
sé fyrsta skrefið í ferli þar sem
óskað er eftir að forustufé fari á
skrá hjá UNESCO sem dýrategund
í útrýmingarhættu.
Aðrir styrkhafar
Aðrir sem hlutu styrk að þessu
sinni er Krumma films ehf., til
þess að varðveita kvikmyndaðar
heimildir sem rekja sögu homma
og lesbía á Íslandi. Sölvi Björn
Sigurðsson fékk einnig styrk til
vinnslu bókar um ævi afa síns,
Magnúsar Ásgeirssonar, sem var
afkastamikill og virtur þýðandi á
fyrri hluta 20. aldar.
Alls bárust 29 umsóknir í ár
og hlutu þrjú verkefni styrk úr
sjóðnum. Úthlutunarnefndina
skipa Hildur Traustadóttir, fulltrúi
bankaráðs Seðlabanka Íslands,
og er hún jafnframt formaður
nefndarinnar, Páll Magnússon,
ráðuneytisstjóri í mennta- og
menningarmálaráðuneyti, og
Guðrún Nordal, forstöðumaður
Stofnunar Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum. /VH
Boðið verður upp á eins árs nám í faggreinum fiskeldis. Markmiðið með náminu er að auka við sérþek-
kingu nemenda á þáttum sem öll fyrirtæki í fiskeldi eru að vinna að. Til þess að ná því fram verður farið
í líffærafræði fiska, markmið ræktunar í fiskeldi, vatns- og umhverfisfræði, sjúkdóma og heilbrigði fiska,
fóðrun fiska og næringarfræði, gæðastjórnun (HACCP), tæknimál í rekstri skoðuð og farið vel yfir
öryggismál.
Námið stendur sem sjálfstætt námsframboð, en gengur jafnframt að fullu til eininga og samsvarar þá
einnar annar í námi á námsbraut Fisktækniskóla Íslands í Fisktækni, með sérstakri áherslu á fiskeldi.
Nemendum gefst kostur á að koma í raunfærnimat í Fisktækni í samstarfi við Austurbrú og Fræðslu-
miðstöð Vestfjarða. Raunfærnimat er ferli þar sem metin er þekking og færni á ákveðnu sviði, svo sem
reynsla af starfi, námi eða félagsstörfum. Einnig býður Austurbrú og Fræðslumiðstöð Vestfjarða upp á
nám í kjarnafögum (íslensku, ensku, stærðfræði og upplýsingatækni) í janúar 2021.
Nánari upplýsingar um raunfærnimat og nám í kjarnafögum ásamt náms- og starfsráðgjöf hjá
Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Austurbrú
Sími 456 5025 • saedis@frmst.is • www.frmst.is
Sími 470 3800 • austurbru@austurbru.is • www.austurbru.is
Námið fer fram í fjar- og staðlotum á svæðinu
Inntökuskilyrði
Grunnskólapróf. Mat á reynslu og þekkingu úr sjávarútvegi.
Skráningarfrestur er til 10. ágúst 2020. Námið byrjar í september 2020.
Nánari upplýsingar um námið og skráning er hjá Fisktækniskólanum
Fisktækniskóli Íslands • Víkurbraut 56 • 240 Grindavík
Sími 412 5966 • klemenz@fiskt.is • www.fiskt.is
Grunnnám faggreina í Fisktækni-fiskeldi
Boðið verður upp á námið á Austurlandi og Vestfjörðum
LÍF&STARF
Menningarsjóður Jóhannesar Nordal:
Fræðafélag um forustufé hlaut 1,5 milljóna króna í styrk
Daníel Hansen, forstöðumaður
Fræða seturs um forustufé.
Sölvi Björn Sigurðsson, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Daníel Hansen, Jóhannes Nordal, Ásgeir Jónsson og Hildur
Traustadóttir. Mynd / Seðlabanki Íslands
Bænda
16. júlí
Sími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
41,9% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
21,9% 41,9%
á landsbyggðinni
á höfuðborgarsvæðinu
29,2%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2019. Aldur 12-80 ára.
Hvar auglýsir þú?