Bændablaðið - 02.07.2020, Síða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 202018
LÍF &STARF
Miltisbruni
Sigurður Sigurðarson, dýralæknir
á Selfossi, og Ólöf Erla Halldórs
dóttir, kona hans, voru í síðustu
viku að leggja upp í ferð um landið
til að athuga merkin sem sett hafa
verið niður þar sem liggja í jörð
skepnur sem dáið hafa úr miltis
brandi.
Sigurður mun setja saman
skýrslu um málið sem afhent verð
ur Matvælastofnun (MAST), sem
tekur við eftirlitinu. Fær MAST
þar ferskar upplýsingar um stöðu
mála af öllu landinu, en merkingin,
mynda taka og hnitasetning byrjaði
árið 2004.
Nýjar upplýsingar
hafa tafið verklok
„Í nokkur skipti hef ég talið mig hafa
lokið verkefninu, en þá hafa komið
upplýsingar um bæi og staði, sem
hafa gleymst. Þá hef ég enn þurft að
fara á stúfana og safna upplýsingum.
Þetta hefur með öðru tafið verklokin.
Eins gæti farið nú,“ sagði Sigurður
við upphaf ferðar þeirra hjóna á
Vestfirði í síðustu viku.
Áformað er að afhenda sveit
arstjórnum yfirlit yfir bæi á sínu
svæði að lokinni skoðun og einnig
þeim sem hafa merkin í landi sínu.
Skýrslan er því í fjórum eintökum.
Auk þess mun Matvælastofnun koma
henni í kynningu, m.a. á netinu, fyrir
skipulagsyfirvöld, lækna og lögreglu
og almenning.
„Við treystum þeim sem hafa
slík merki í landi sínu að hjálpa til
við að varðveita þau og verja gegn
ágangi skepna og framkvæmdum
manna. Við skorum á alla áhuga
sama menn að láta vita um staði þar
sem smit gæti leynst og ekki eru á
þessari skrá. Ábendingar hafa borist
um fjölda bæja í viðbót, en þegar
upplýsingarnar hafa verið óljósar
eða ótrúverðugar, hafa þeir staðir
verið settir í bið eða útilokaðir.
Merkin eru hvítur sívalur stólpi,
50 cm hár og 7 cm í þvermál á jarð
föstum teini (kambstál). Notaðar eru
plötur úr ryðfríu stáli, sem festar eru
á stólpana með draghnoðum og sjálf
lýsandi límborðar á hvern stólpa.
Sigurður hefur útbúið lista yfir
miltisbrandsstaðina sem hann hefur
merkt.
„Sá listi er ekki gallalaus, sjálfsagt
vantar á listann ýmsa bæi og óvissa
er um suma staðina. Einnig vantar
upplýsingar um það of víða, hvar
grafirnar eru nákvæmlega. Merkið
á slíkum stöðum er þá áminning um
að sýna varúð og hafa augun opin, ef
raska þarf jörð á viðkomandi svæði.
Ég tek gjarnan við ábendingum
og athugasemdum og mun koma
þeim á framfæri eftir atvikum.
Reglugerð mun gera mönnum skylt
að fylgjast með merkjunum á sínu
landi og láta Matvælastofnun vita,
ef þau skaddast eða týnast.“
Um 160 grafir á 130 stöðum
„Grafirnar eru um allt land. Þær
eru um 160 á nær því 130 stöðum.
Mikilvægt er að þekkja og merkja
grafirnar.
Sýkillinn sem veldur miltisbrandi
lifir sem dvalargró nær endalaust
niðri í jörðinni en virðist verða
hættulítill í yfirborðinu í grennd
við grafirnar eftir fáar vikur, líklega
fyrir áhrif sólarljóss og veðrunar.
Þess vegna er mikilvægt að vita hvar
hætta er fyrir hendi og merkja, til
þess að vara við jarðraski, sem gæti
dregið smitefnið upp á yfirborðið.“
Síðast fannst miltisbrandur 2004
„Síðast fannst miltisbrandur hér
á landi árið 2004 á Sjónarhóli á
Vatnsleysuströnd. Þá hafði sjórinn
brotið sjávarkamb, þar sem grafinn
hafði verið stórgripur sem drapst úr
miltisbrandi 1874, eða 130 árum
áður.
Efni úr sjávarkambinum barst
yfir beitiland 4 hrossa sem þar voru.
Þrjú hrossanna drápust skyndilega úr
miltisbrandi en það fjórða veiktist
og var lógað.
Fjörutíu árum fyrr, eða 1965,
fannst miltisbruni á Þórustöðum í
Ölfusi. Þá hafði verið raskað jörð á
mógrafasvæði frá aldamótum 1900,
eða 65–70 árum áður með skurð
grefti og jarðvinnslu. Í grafirnar var
fleygt skepnum sem dóu eða fargað
var miltisbrunaveikum.
Við jarðvinnsluna komu í ljós
dýrabein sem dreifðust yfir hálfan
hektara. Sex kýr drápust úr veikinni
og tveir menn fengu miltisbrunasár
á útlimi en læknuðust.“
Hættulegt mönnum og dýrum
„Smithætta er fyrir flestar dýra
tegundir með heitu blóði og fyrir
fólk. Þrjú mismunandi form eru á
miltisbruna. Innvortis blæð ingar
og drep er algengast hjá búfé.
Lífshættulegar sýkingar í öndunar
færum koma fyrir hjá fólki sem
andar að sér gróum sýklanna. En
útbrot á húð, drepkýli, eru algengust
hjá fólki.
Að minnsta kosti 10 manns hafa
látist af völdum miltisbruna hér á
landi og margir tugir manna hafa
veikst, sem tekist hefur að lækna.
Erlendis dó fólk þúsundum saman
úr miltisbrandi áður fyrr.
Skepnur sem dóu úr miltisbrandi
voru grafnar djúpt og girt í kringum
grafirnar. Ef jörðin er látin óhreyfð,
á stöðum sem merktir hafa verið, þá
er smithættan engin.
Miltisbrunahræ eru ekki lengur
grafin heldur brennd til ösku og/eða
sótthreinsuð í formalíni.
Hóf að merkja miltisbrunagrafir
árið 2004 á eigin kostnað
„Ég fór að undirbúa merkingar á
gröfunum árið 2004. Eftir að ég hætti
störfum hjá yfirdýralækni um 2006
hefur þetta starf, þ.e. öflun upplýs
inga, staðsetning, merking og skrán
ing, að mestu verið sjálfboðavinna
mín, en kostnaður, sem undirritaður
hefur greitt úr eigin vasa vegna þessa
verks er hár. Matvælastofnunin mun
þó greiða útlagðan kostnað.“
Guðni Ágústson og Bílaland
björguðu málum
„Varla er sanngjarnt að láta eftir
launin mín standa undir vinnu okkar
RANGÁRVALLASÝSLA:
(A1 A9)
Yztabæli Eyjafjöllum
(2 staðir), Meiritunga (2
staðir), Kaldakinn (2 Staðir),
(Lýtingsstaðir á skoðun)
VESTMANNAEYJAR:
Einn maður lést (A10)
ÁRNESSÝSLA
Austan Ölfusár: (A11 A25)
Hamrar Grímsnesi (frá 16 og
17. öld)
Úthlíð, Hjálmsstaðir (2 staðir)
Ketilvellir
Eyvindartunga
Lækur
SSýrlækur
Krókur
Eyrarbakki (2 staðir við
Móskurð)
Tunga/Hólar, VÍragerði
ÁRNESSÝSLA
Vestan Ölfusár: (A30 A36)
Hagavík
Þórustaðir (3 staðir)
StóriHáls
Gljúfurárholt
Arnarbæli
Hvammur
Þorkelsgerði
GULLBRINGUSÝSLA:
(A42 A49)
Suðurkot
Sjónarhóll
Ás
Ófriðarstaðir (Jófríðarstaðir)
Urriðakot (2 staðir)
Hraunsholt (2 staðir, grafir
tæmdar og smiti eytt með
formalíni)
REYKJAVÍK OG KJÓS:
(A50 A63)
Reykjavík (? staðir)
Breiðholt
Sunnuhvoll (Klambratún)
Hlemmur
Miðdalur (2 staðir)
Hraðastaðir
Sólvellir
BORGARFJÖRÐUR:
(A101a A105)
Skáneyjarkot
Skáney (a.m.k.5 staðir)
Laugavellir
Giljar, Grímsstaðir
Árdalur
MÝRASÝSLA: (A111 – A121)
Síðumúli
Fróðastaðir
Hallkelsstaðir (svæði)
Galtarholt
DALASÝSLA: (A141 – A160)
Háafell
Hamraendar
Skriðukot
Hólar
StóriGaltardalur
Kjallaksstaðir
Harastaðir
Skarðsstöð
Ólafsdalur
ABARÐ, VBARÐ, VÍS, NÍS,
STR.sýsl: (A170 – A194)
Gillastaðir
Barmar
Reykhólar
Saurbær
MinniHattardalur
Birnustaðir
Lágidalur
Grund á Drangsnesi
Gautshamar Drangsnesi
Smiðjuhús í Húsadal
Brunngil í Bitru
HÚNAVATNSSÝSLUR:
(201 – 220)
Ánastaðir (2 staðir)
Höskuldsstaðir
Þórormstunga
Grímstunguheiði
Guðrúnarstaðir
SKAGAFJÖRÐUR:
(A221 – 222 AB242)
Skarðsá
Lækur (Viðvíkurhreppi)
Hólakot AFljót
EYJAFJÖRÐUR: (A231 –
A236)
Háls
Gata Árskógsströnd
Krossanes (2 staðir)
Ytragil, Hólsgerði
Svertingsstaðir (2 staðir)
SÞING: (A241 – A243)
Grænavatn (2 staðir)
Grundartóft
Kálfaströnd
NÞING, MÚLASÝSLUR:
(A301 – A322)
Jaðar, Engihlíð
Svínabakkar, Hauksstaðir
Hof, Hrappsstaðir
Heiðarsel
Sleðbrjótssel
Hofteigur
HÉRAÐ: (A331 – A350)
Hafrafell
Staffell
Ekkjufell
Kross
Ormarsstaðir
Refsmýri
Hlíðasel
Skeggjastaðir
Meðalnes
Skriðuklaustur
VELLIR: (A351 – A355)
Víkingsstaðir
Jaðar
Ketilsstaðir
Keldhólar
Mjóanes
AUSTFIRÐIR: (A361 – 365)
Brekka
Norðfjörður (Júdasarbali)
Hólmaháls
Hólmar
Slétta
SUÐURFIRÐIR:
(A370 – A377)
Skálavík
Berunes
Dalir (3 staðir)
Hólagerði
Berufjörður
Teigarhorn
Búlandsnes
Djúpivogur (á Tanga)
ASKAFTAFELLSSÝSLA
austan Fljóta: (A391 – A393)
Bær í Lóni
Brekkubær í Nesjum
Bjarnanes (ómerkt)
ASKAFTAFELLSSÝSLA
vestan Fljóta: (A401 – A404)
Stóraból
Einholt (2 staðir)
Fell
Miltisbrunagrafir á Íslandi 2020
– Eftirtaldir bæir eru á lista Sigurðar Sigurðarsonar yfir miltisbrunasýkingar
eða rökstuddan grun um þær – Númer á merktum gröfum eru innan sviga
Ólöf Erla Halldórsdóttir og Sigurður Sigurðarson við Renault-bifreið sem Bílaland lánaði þeim endurgjaldslaust í
hringferð um landið til að gera lokaúttekt á merkingum á miltisbrunagröfum. Þetta ómetanlega framtak hófst árið
2004 og hefur alfarið verið að frumkvæði Sigurðar og að mestu á hans eigin kostnað.
Bænda
16. júlí
Sími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
41,9% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
21,9% 41,9%
á landsbyggðinni
á höfuðborgarsvæðinu
29,2%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2019. Aldur 12-80 ára.
Hvar auglýsir þú?
2,2%
5,2%
9,1%
5,8%
19,0%
21,9%
41,9%
0,0%
5,0%
10,0%
15,0%
20,0%
25,0%
30,0%
35,0%
40,0%
45,0%
Mannlíf Viðskiptablaðið DV Stundin Morgunblaðið Fréttablaðið Bændablaðið
Prentmiðlar - meðallestur á landsbyggðinni