Bændablaðið - 02.07.2020, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 202022
UTAN ÚR HEIMI
Danir með tæknilausn til að finna aðskotahluti í matvælum:
DynaCQ-búnaður greinir plast í
matvælum af mikilli nákvæmni
Eins dauði er annars brauð
segir máltækið og nú hefur
subbuskapur jarðarbúa varð-
andi plastúrgang skapað mark-
að fyrir vélbúnað til að leita að
plastögnum í matvælum.
Um þetta má lesa á vefsíðu
Tæknistofnunar Dana (Teknologisk
Institute). Þar er greint frá vélbún-
aði frá DynaCQ sem greinir plast í
matvælum með mikilli nákvæmni
og með miklum hraða.
Plast veldur vandræðum
í matvælavinnslu
Matvælaiðnaðurinn einbeitir sér
mjög að því að koma í veg fyrir
að mengunarefni nái til neytenda.
Aðskotaefni eru skilgreind sem
málmbrot, beinbrot og hörð eða
mjúk rifrildi úr plasti sem óvart
hafa endað í framleiðslu, innihalds-
efni og vörum. Ef vart verður við
slík aðskotaefni í vörum sem fara
frá verksmiðjunni getur það valdið
kvörtunum, innköllun á vörum og
jafnvel skaðabótakröfum, en allt
þetta getur verið mjög skaðlegt
fyrir orðspor framleiðanda. Hægt
er að greina málmbrot í vörum sem
nota málmskynjara eða röntgen-
búnað. Bein í kjöti er aðeins hægt
að finna vélrænt með röntgen-
geisla.
Það er mun erfiðara verkefni að
greina litlar plastagnir í matvæl-
um. Ekki er hægt að greina plast
í matvælum með röntgenbúnaði,
þar sem brotin eru oft örsmá og
þunnar örður t.d. úr plastfilmu
sem notuð er til að pakka vör-
unum áður en þær eru unnar. Nú
eða agnir af svuntu eða hönskum.
Lítil, hörð plastbrot úr færibönd-
um, kössum og ýmsu öðru eru
einnig vandamál. Á röntgenmynd
geta slíkar agnir runnið saman við
kjötið í kring.
Ljóst er að hvorki málm-, raf-
né segulskynjarar geta greint plast
í matvælum. Með málmdufti er
hægt að gera plast greinanlegt með
málmskynjara, en í reynd virkar
sú leið aðeins ef um er að ræða
tiltölulega stór plastbrot sem líka
væru þá greinanleg með berum
augum.
Hingað til hefur eina vernd
matvæla iðnaðarins gagnvart plast-
mengun verið að setja starfsmenn
á framleiðslulínuna til að reyna að
finna plastbrot í matvælum sem þar
renna í gegn og fjarlægja þau úr
vörunni með höndunum. Þetta er
kostnaðarfrekt og seinlegt ferli og
ekki sérlega árangursríkt. Enda er
sjónræn skoðun þreytandi og erfitt
verkefni fyrir starfsmenn línunnar,
sérstaklega við færiband sem er á
miklum hraða.
DynaCQ – plastskynjari
Tækjabúnaður sem byggður er
á tölvusjón er nefndur DynaCQ,
sem stendur fyrir „Dynamic
Check of Quality“. Búnaðurinn
hefur verið þróaður hjá dönsku
Tæknistofnuninni. Hann greinir
sjálfkrafa brot úr plasti í mat-
vælum meðan á framleiðslu stendur.
Búnaðurinn hefur verið settur upp á
fjölda framleiðslustöðva sem kemur
í stað einhæfrar, þreytandi handa-
vinnu.
DynaCQ er fær um að skoða
yfirborð matvæla sem hreyfast á
færibandi á allt að 70 metra/mín-
útu. Á 70 cm breiðu færibandi
getur búnaðurinn fundið plasthluti
sem eru ekki nema 2x2 millimetrar
að stærð og jafnvel minni. Þegar
búnaðurinn skynjar aðskotahlut,
sendir hann merki til stjórnkerfis
færibandsins. Þetta gerir mönn um
kleift að hægja á eða stöðva færi-
bandið og fjarlægja aðskotahlut-
inn handvirkt eða fjarlægja hann
sjálfkrafa með róbóta eða öðrum
vélbúnaði.
Sjónræni búnaðurinn er fram-
leiddur í tveimur útgáfum. Það er
með einni myndavél sem er notuð
ef hægt er að dreifa vörum í þunnu
lagi yfir færibandið, eða tvískipt-
ur myndavélabúnaður sem skoðar
bæði efri og neðri hlið vörunnar.
DynaCQ forrit
DynaCQ hefur verið notað við inn-
mötun og við enda framleiðslulínu
fyrir pökkun á afurðum eins og
pylsum, próteindufti og hökkuðum
kjötafurðum. Búnaðurinn hefur
einnig verið prófaður með góðum
árangri á beikonbita, sælgæti og
pitsur, þar sem plastmengun getur
einnig valdið vandræðum.
Notaður m.a. í pylsu og pitsugerð
Þar sem búnaðurinn skynjar liti
samkvæmt þekktum litastöðlum,
er einnig hægt að nota hann til
að flokka framleiðslu sem notuð
er í framleiðsluferlinu eða við
lokaskoðun á fullunnum vörum.
Að auki getur DynaCQ skoðað
tilbúnar pitsur til að athuga hvort
álegg dreifist jafnt yfir allt pitsu-
yfirborðið.
Fyrir kjötiðnaðinn hefur DynaCQ
einnig verið þróað til að fela í sér for-
rit fyrir sjálfvirka vöruauðkenningu.
Búnaðurinn hefur verið „þjálfaður“
til að þekkja mismunandi kjötskurð
í kössum með skurðarlínum eða
mismunandi skurði á skurðarlínu. Í
slíkum tilvikum getur rafeinda sjón
búnaðarins dregið úr fjölda starfs-
manna sem þarf til að sannreyna
innihald kassa handvirkt. Þar með
er hægt að auka afkastagetu, minnka
villuhlutfallið og tryggja að vörur
komist á réttan áfangastað.
DynaCQ-búnaðurinn er hann-
aður til að vera sveigjanlegur, öflug-
ur og þrifalegur við allar mælingar.
Einnig er gert ráð fyrir að hægt sé
að aðlaga búnaðinn fyrir mörg
önnur skoðunarferli matvæla, t.d.
varðandi auka afurðir í fiskiðnaði.
/HKr.
Myndavélar greina örsmáar plastagnir af mikilli nákvæmni í kjöti, kjöthakki eða öðrum matvælum sem renna hratt
framhjá myndavélunum.
Plastagnir eiga greiða leið inn í fæðukeðju manna vegna ótrúlegs sóðaskapar
við meðhöndlun úrgangs.
Plast og plastagnir er nú að finna
í ótrúlegu magni í fjörum um allan
heim.
Bóluefni gegn afrískri
svínapest lofa góðu
Kínverskt bóluefni gegn afrískri
svínapest virðist vera að gefa
góða raun en búið er að prófa
það á þrjú þúsund grísum á
þremur búum í Kína frá apr-
ílmánuði til júní á þessu ári.
Reuters-fréttastofan greindi frá
þessu og hafa þeir upplýsingarn-
ar frá kínverska fréttamiðlinum
Xinhua.
Starfsmenn fyrirtækisins Harbin
Veterinary Research Institute hafa
framkvæmt prófanirnar sem allar
hafa gefið jákvæða niðurstöðu.
Svínahjarðirnar sem prófaðar hafa
verið koma frá þremur svæðum
í Kína, Heilongjiang, Henan og
Xinjiang Uygur. Allir grísirnir sem
hafa verið prófaðir eru heilbrigð-
ir, litlu grísirnir vaxa eðlilega og
fá engar aukaverkanir af bóluefn-
inu. Prófessor í faraldsfræðum við
Háskólann í Hong Kong segir að
fleiri prófanir þurfi í mismunandi
umhverfi og af fleiri búum áður en
hægt verður að koma bóluefninu á
markað. Einnig er unnið að því að
búa til bóluefni í Víetnam, Englandi
og Bandaríkjunum.
Orsök afrískrar svínapestar er
DNA-vírus. Það er einungis ein
serótýpa en yfir 20 arfgerðir og
margar undirgerðir með mjög mis-
munandi getu til að leiða til sjúk-
dómsins. Vírusinn smitar eingöngu
dýr af svínaætt. Svín af húsdýragerð
og evrópsk villisvín eru mjög mót-
tækileg fyrir sýkingu og dánarhlut-
fall er mjög hátt. Útbreiðsla sjúk-
dómsins hefur leitt af sér fjöldaslátr-
un á svínum í Asíu. Í nóvember á síð-
asta ári var árfarvegur í Suður-Kóreu
blóðrauður á lit eftir slátrun á hátt í
fimmtíu þúsund grísum í tilraun til
að stöðva útbreiðslu sjúkdómsins.
/ehg-Bondebladet
COVID-19 hefur breytt matarinnkaupum almennings:
Ungt fólk sækir meira en áður
í sérhæfðar matvöruverslanir
Samkvæmt frétt á vefsíðu Global
Meat í síðustu viku, þá hafa sam-
skiptatakmarkanir vegna COVID-
19 faraldursins leitt til þess að fólk
hefur breytt hegðun sinni við mat-
arinnkaup.
Þetta kemur m.a. fram í könnun
rannsókna- og þjálfunarmiðstöðv-
ar IGD sem sérhæfir sig í sam-
skiptum matvælaframleiðenda og
neyt enda. Könnunin náði til 2.000
neytenda. Niðurstaðan sýndi mjög
athyglisverða þróun. Yngri neyt-
endur á aldursbilinu 18 til 24 ára
höfðu snúið sér meira að beinum
viðskiptum við sérverslanir á borð
við fisk- og kjöt- og aðrar matvöru-
búðir. Hins vegar höfðu eldri neyt-
endur, þ.e. 65 ára og eldri, meira
snúið sér að verslun á netinu. Er
þetta þveröfugt við það sem flestir
hefðu fyrirfram ímyndað sér, ekki
síst í ljósi mikillar tölvunotkunar
unga fólksins og oft og tíðum tölvu-
vankunnáttu og beinlínis tölvufælni
þeirra sem eldri eru.
„Hegðun neytenda hefur breyst í
þeim mæli sem við höfum vart séð
áður,“ segir Dan Gillet, stjórnandi
hjá IGD.
Hann segir að þessi könnun
gefi tækifæri til að öðlast betri
skilning á því hvernig verslunar-
hegðunarmynstur neytenda breytist
þegar lokað er á samskipti og fjar-
lægðartakmörk sett á eins og gerst
hefur í COVID-19 faraldrinum.
Um 75% fólks yfir 65 ár aldri
sagðist ekki hafa getað verið án net-
verslunar.
Í samanburði við sams konar
könnun sem gerð var á síðasta ári
kemur fram að 23% ungra neyt-
enda segjast nú hafa verslað í sér-
verslunum kjötkaupmanna, fisksala
og annarra matvörukaupmanna.
Hlutfallið var 20% í fyrra. Þá sögð-
ust 13% neytenda í könnuninni
versla á netinu í könnuninni núna,
en þar af voru 42% af þeim sem eru
65 ára eða eldri. Þá sögðust 55%
allra þeirra sem nýttu sér netverslun
ekki hafa getað útvegað sér nægan
mat ef netið hefði ekki verið til stað-
ar. Um 75% fólks yfir 65 ára aldri
sagðist ekki hafa átt möguleika á að
útvega sér nægan mat án tilkomu
netverslunar.
Athygli vekur að mikill samdráttur
varð í sölu lágvöruverðsverslana á
meðan útgöngubann ríkti í Bretlandi.
Þannig sögðust aðeins helmingur, eða
50% neytenda, hafa nýtt sér afsláttar-
kjör slíkra verslana í maí miðað við
65% áður en fullar takmarkanir voru
settar á ferðir fólks í febrúar.
Þá sýndi könnun IGD að veru legar
breytingar höfðu orðið á tíðni ferða
almennings í verslanir. Kannski eðli-
legt í ljósi takmarkana og útgöngu-
banns. Um 73% af 30 heimilum sem
tiltekin voru höfðu verslað oftar en
einu sinni í viku að jafnaði. Þetta
hlutfall lækkaði í 42% á meðan tak-
markanir voru hvað mestar á sam-
skiptum fólks. /HKr.