Bændablaðið - 02.07.2020, Page 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 202024
Gagnheiði 35 // 800 Selfossi // 480 0400 // af lvelar. is // sala@aflvelar. is // sala@jotunn.is
PRONAR PDF 340 (C)
Framsláttuvél - Vinnslubreidd: 3,4m
með knosara
2.575.000 án vsk.
án knosara
1.997.000 án vsk.
PRONAR PDT 340
Miðjuhengd sláttuvél.
Vinnslubreidd: 3,4m
Kr. 1.615.000 án vsk.
PRONAR PDD 830
Sláttuvél (fiðrildi)
Vinnslubreidd: 2x3m
Kr. 3.115.000 án vsk.
PRONAR PWP 530
4 stjörnu snúningsvél, lyftutengd.
7 armar á hverri stjörnu.
Vinnslubreidd: 5,3m
Kr. 1.225.000 án vsk.
PRONAR ZKP 420
Einnar stjörnu rakstrarvél. Lyftutengd.
Vinnslubreidd: 4,0-4,5m
Kr. 875.000 án vsk.
PRONAR T663/4
11 tonna sturtuvagn
með tandemhásingum.
Kr. 2.490.000 án vsk.
PRONAR ZKP 800
Miðjuvél
Vinnslubreidd: 7-8m
Kr. 3.369.000 án vsk.
PRONAR PWP 770
6 stjörnu snúningsvél.
7 armar á hverri stjörnu.
Vinnslubreidd: 7,7m
Kr. 1.665.000 án vsk.
PRONAR PDT 300
Miðjuhengd sláttuvél
Vinnslubreidd: 3,0m
Kr. 1.495.000 án vsk.
3636 mánaðaverksmiðju ábyrgð *
*U
pp
lýs
ing
ar
va
rð
an
di
sk
ilm
ála
ve
itt
ar
hj
á A
flv
élu
m
.
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Í Ögri við Ísafjarðardjúp hefur um aldur verið stórbýli og þingstaður Ögurhrepps. Þar hefur undanfarin ár verið rekin ferðaþjónusta þar sem gestum hefur m.a. verið boðið upp á kajaksiglingar
og kaffi með þjóðlegu meðlæti. Mynd / Andreas Jacobsen
Þjóðlegt með kaffinu
og kajakferðir í Ögri
Í Ögri við Ísafjarðardjúp hefur
verið rekið ferða þjónustu
fyrirtækið Ögurferðir síðan 2011.
Starf semin snýr að kajakferðum
í Ísafjarðardjúpi og rekstri kaffi
húss í samkomuhúsinu í Ögri
sem var byggt 1925.
Kaffihúsið er rekið undir
nafninu „Þjóðlegt með kaffinu“,
en Guðfinna og Jóna Símonína
Bjarnadóttir standa þar vaktina. Þær
hafa einnig gefið út bækur undir
sama nafni og þýtt á nokkur erlend
tungumál.
Ferðafólk sem sækir í hreina
náttúru og kyrrð á fáförnum
slóðum eru helstu viðskiptavinir
Ögurferða. Kajakferðirnar eru frá
stuttum og fjölskylduvænum ferð
um nálægt landi upp í dagsferðir
og jafnvel nokkurra daga ferðir í
Djúpinu og í Jökulfjörðum.
Í samkomuhúsinu í Ögri er
einnig haldið árlega sveitaball.
Ögurballið á sér fastan sess í dag
skrá margra og hefur verið fastur
liður í tilveru Djúpmanna um ára
tuga skeið. Af ballinu fer enginn
heim nema að fá sér rabarbaragraut
með rjóma.
Ögur var stórbýli um aldir og
kirkjustaður í Ögurvík í Ísafjarðar
djúpi, en Ögurkirkja var reist 1859.
Í Ögri var þingstaður Ögurhrepps
og frá 15. til 17. aldar bjó þar hvert
stórmennið á fætur öðru. Má þar
helst nefna Björn Guðnason sýslu
mann, Magnús Jónsson (prúða)
sýslu mann og síðar Ara son hans,
Björn Markússon og Erlend
Ólafsson málafylgjumann.
Fyrsta rafstöð á sveitaheimili
við Djúp var reist í Ögri 1928. Í
Ögurnesi var verstöð og þurrabúðir
héldust þar allt fram á 20. öld. Þá
var þar lengi landsíma og póst
afgreiðsla, sem og læknissetur frá
1932 til 1951. /HKr.
Fátt er notalegra en að fara í kajakróður á lygnum fjörðum og skoða seli og
annað dýralíf í kyrrðinni.
Þegar róið er út á Ísafjarðardjúp geta menn allt eins átt von á að sjá hvali
sveifla sporðinum upp úr haffletinum.