Bændablaðið - 02.07.2020, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 202026
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Bjartsýn á ferðamennskuna
í sumar og gott haust
Ferðaþjónustan í Heydal við
Ísafjarðardjúp hefur fengið mjög
góða dóma meðal ferðamanna sem
þangað hafa komið. Sækir fólk þar
í náttúrufegurðina við Djúp auk
veðursældar og kyrrðarinnar í
dalnum.
Heydalur er 6 km langur dalur
sem gengur inn úr Mjóafirði og um
hann liðast Heydalsá. Dalurinn er
innarlega í vestanverðum Mjóafirði
fyrir innan brúna sem vígð var í
september 2009 og þverar fjörðinn
innan við bæinn Látra. Leysti brúin
af erfiðan farartálma yfir Eyrarfjall,
eða Hestakleif eins og Vestfirðingar
nefndu veginn yfirleitt. Ásamt brú-
argerðinni var þá ráðist í viðamiklar
vegabætur á veginum úr Mjóafirði
um Vatnsfjörð og Reykjanes og inn
í Ísafjörð. Nú í sumar er enn verið að
vinna við langþráðar endurbætur á
Djúpvegi í Hestfirði og Seyðisfirði.
Stella Guðmundsdóttir hefur
undanfarin ár verið að byggja upp
ferðaþjónustu í Heydal ásamt fjöl-
skyldu sinni. Hún er kennari að mennt
og flutti vestur í Djúp úr Kópavogi
eftir að hafa lokið þar störfum eftir
tvö ár sem skólastjóri í Digranesskóla
og síðan átján ár í Hjallaskóla.
Ánægðir ferðamenn
í veðursæld og kyrrð
Fyrirtækið á bak við starfsemina
heitir Ævintýradalurinn ehf. og engu
er logið um það að uppbyggingin í
Heydal hafi verið ævintýri líkast. Á
Tripadvisor fær Heydalur t.d. mjög
góða dóma. Þá fékk staðurinn viður-
kenningu frá Icelandic Lamb sem
Stella er mjög stolt af.
„Starfsemin gengur þokkalega
núna eftir COVID-19 samdráttinn.
Það er orðinn nokkuð góður gangur
í þessu þó það séu enn eyður inn
á milli. Við erum búin að hafa hér
mörg virkilega góð kvöld og hótelið
fullt af og til. Fólk sem hingað kemur
virðist líka vera mjög ánægt. Enda er
hér afskaplega mikil veðursæld inni
í dalnum,“ segir Stella.
Ævintýrið hófst fyrir
um tuttugu árum
Munnmælasögur herma að í dalnum
hafi búið 12 bændur þegar flest var
og einn klerkur. Dalnum hefur hin
síðari ár verið skipt á milli tveggja
jarða, Galtarhryggjar og Heydals.
Upphafið að ævintýri Stellu
má rekja til þess að fjölskyldan
keypti jörðina Galtarhrygg með
það í huga að rækta þar upp skóg
og ala upp fisk í ánni. Var þetta í
upphafi aðeins hugsað fyrir fjöl-
skylduna Þá bjó Jóhann Áskelsson
bóndi góðu búi á jörðinni Heydal.
Jóhann ákvað síðan að bregða búi,
seldi kvótann af jörðinni og Stella,
Pálmi og synir hennar keyptu
jörðina Heydal árið 2000. Var þá
ekki búið að ákveða hvað gert yrði
við húsakostinn, annað en að þau
hugðust stunda þar grænmetis-
rækt og auka við skógræktina.
Var fyrst farið í að endurbyggja
íbúðarhúsið og síðan byrjað að
moka út úr fjósinu árið 2002. Í
framhaldinu var síðan byggður þar
upp veitingasalur. Síðan var farið í
borun eftir heitu vatni og það vatn
var m.a. nýtt í upphitun, sundlaug
sem gerð var í gömlu útihúsunum
og í heita potta þar fyrir utan.
Þar er nú gististaður með rúm fyrir
50 gesti og veitingasalur sem tekur
70 til 100 manns í sæti. Auk þessa
er ágætt tjaldstæði á túni neðan við
bæinn.
Margvísleg afþreying
Í Heydal getur fólk komist á hestbak,
farið í gönguferðir um svæðið og
í siglingar á kajak. Stella segir að
opið sé reyndar allt árið. Yfir vetr-
artímann hefur fram að þessu verið
mest um útlendinga sem sækjast
eftir kyrrð og að sjá norðurljósin.
Þá hefur verið farið í vélsleðaferðir
á gönguskíði og snjóþrúgur þegar
aðstæður eru góðar.
„Við sækjum fólk þá suður
og bjóðum upp á fjögurra daga
skipulagða dagskrá og ökum því
aftur til baka.“
Rækta grænmeti,
suðræn ber og ávexti
„Þá erum við með grænmetisræktun
og erum að byggja nýtt gróðurhús.
Grænmetið er nýtt fyrir staðinn og
auk þess selt til annarra.
Við hliðina á sundlauginni rækt-
um við svo suðrænan gróður, kirsu-
ber, epli, vínber, plómur og fleira.
Fólk er mjög undrandi að koma á
svo afskekktan stað á Vestfjörðum
og finna þar ávaxtaræktun eins og
þekkist í heitari löndum á suðlæg-
um slóðum. Svo bjóðum við líka
upp á glænýjan silung fyrir hótel-
gesti.“
Stella segist bjartsýn á ferða-
mennskuna í sumar og efast ekki
um að haustið verði líka gott.
/HKr.
Ferðaþjónustan í Heydal í Mjóafirði við Ísafjarðardjúp getur tekið við 50 gestum í einu í gistingu. Þar er lítil sund-
laug, heitir pottar og tjaldstæði.
Kræsingar á borðum með heima
ræktuðu grænmeti, berjum og
nýveiddum silungi.
Stella Guðmundsdóttir starfrækir ferðaþjónustuna í Heydal ásmt fjölskyldu
sinni. Mynd / HKr.
Horft niður í Heydalinn.
Stella Guðmundsdóttir, ferðaþjónustufrömuður í Heydal við Ísafjarðardjúp:
– Er ásamt fjölskyldunni að byggja nýtt gróðurhús og ræktar grænmeti, suðræn ber og ávexti fyrir gesti
Mænisgluggar
Náttúrulegt ljós og góð
loftræsting er öllum
dýrum nauðsynleg.
Hafðu samband: bondi@byko.is
JFC mænisgluggar eru hannaðir til að sameina þetta
tvennt. Gluggarnir eru sérsmíðaðir í þeim stærðum
sem henta best fyrir hvert gripahús.
Hönnun burðargrindarinnar sem er úr áli tekur mið af
hámörkun ljósflæðis í gegnum gagnsætt óbrjótanlegt
plast án þess að það komi niður á styrkleika gluggans.
Stillanleg spjöld á báðum hliðum gluggans
gefur möguleika á að stýra loftflæði að vild í
gegnum gripahúsið.