Bændablaðið - 02.07.2020, Qupperneq 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 202030
Goðafoss í Skjálfandafljóti
hefur verið friðlýstur, en
fossinn er einn af vinsælustu
ferðamannastöðum á Norður
landi. Guðmundur Ingi Guð
brandsson umhverfis og
auðlindaráðherra undirritaði
friðlýsingu fossins nýverið.
Goðafoss er með vatnsmestu
fossum landsins. Hann greinist í
tvo meginfossa og nokkra smærri
og er ásýnd hans fjölbreytileg
eftir vatnsmagni, veðurfari og
árstíð. Fossinn er 9–17 metra hár
og um 30 metra breiður. Landið
við vesturbakka Goðafoss heitir
Hrútey og afmarkast hún af
Hrúteyjarkvísl, sem greinist
frá Skjálfandafljóti ofan við
Goðafoss, en sameinast fljótinu
aftur alllangt neðar.
Meginmarkmið með verndun
svæðisins er að vernda sérstakar
náttúruminjar, breytileika jarð
mynd ana og fossinn sjálfan og er
hann friðlýstur sem náttúruvætti.
Friðlýs ingin felur m.a. í sér að
náttúrulegu vatnsrennsli í foss
inn er viðhaldið sökum fegurðar
hans og sérkenna og útivistargildis
svæðisins. Með friðlýsingu verður
komið á landvörslu við svæðið,
einnig fræðslu og eftirlit. /MÞÞ
Götuhjólreiðakeppnin KIA
Gullhringurinn fer fram
laugardaginn 11. júlí á Laugar
vatni og verður fyrsta stóra
keppni sumarsins. Í ár brýtur
KIA Gullhringurinn blað í sögu
hjólreiðamóta á Íslandi og býður
upp á sérstakan keppnisflokk
rafmagnshjóla.
Skipuleggjendur búast við um
sex hundruð keppendum og annað
eins af gestum í kringum mótið í
ár. Umferð á svæðinu er í sögulegu
lágmarki þar sem ferðaþjónustan
er hvergi komin í það form sem
hún var fyrir COVID og því mega
keppendur eiga von á lítilli annarri
umferð í brautinni þetta árið.
Í ár bryddar KIA Gullhringurinn
upp á þeirri nýjung að bjóða upp á
sérstakan keppnisflokk rafmagns
hjóla.
„Það skapaðist mikil umræða
um þetta í fyrra en við ákváðum
að láta árið í ár verða fyrsta árið
okkar með rafmangshjólaflokk,
sagði Þórir Erlingsson, einn af
skipuleggjendum keppninnar.“
„Þetta er nú bara fyrst og síðast
liður í því að vaxa með sportinu
á Íslandi. Hópur rafhjólaeigenda
fer sí stækkandi og við viljum
bjóða þetta fólk velkomið. KIA
Gull hringurinn er ekki hluti af
Íslandsmeistara mótinu heldur erum
við þátttökukeppni og miklu frekar
hjólreiða viðburður með keppni
frekar en keppni ein og sér.“
Keppni hefst og endar á
Laugarvatni og njóta keppend
ur og áhorfendur gestrisni hótela
og veitingastaða á Laugarvatni
á meðan keppninni stendur.
Verslunarrekendur á Laugarvatni
hafa margir fullyrt að keppni
valdi meiri umsvifum í verslun á
Laugarvatni heldur en verslunar
mannahelgin. /MHH
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Herdís Friðriksdóttir í Reykholti er göngustjóri og miðlar sínum fróðleik um
þorpið og starfsemina í því til gesta göngunnar. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson
„Sælkerarölt um Reykholt“
hefur slegið í gegn í sumar
„Sælkerarölt um Reykholt“ er
nafn á göngu, sem er farin á
hverjum föstudegi í sumar klukk
an 11.00 í Reykholti í Biskups
tungum í Bláskógabyggð.
Gangan, sem tekur um eina og
hálfa klukkustund, hefur slegið í
gegn þá föstudaga, sem hefur verið
farið en á milli 40 og 50 manns
hafa sótt hverja göngu. Í göngunum
býðst gestum að kynnast Reykholti
betur og öllu því sem þorpið hefur
upp á að bjóða. Stoppað er á ýmsum
stöðum, sagt frá sögu og sérkennum
Reykholts, bragðað á alls kyns
vellystingum og gestum boðið að
kaupa sér góðgæti til að njóta þegar
heim er komið. Gangan er auðveld,
og hentar því öllum aldurshópum,
hún kostar ekki neitt en gestir
þurfa þó að skrá sig fyrirfram með
því að hafa samband í gegnum
fridheimar@fridheimar.is /MHH
Stoppað er við Reykholtshver, sem er lífæð Reykholts og undirstaða
byggðarinnar. Hann er goshver og gýs á tíu mínútna fresti en er yfirbyggður
og vatnið er notað til þess að hita upp hús og gróðurhús Reykholts. Bakað
er rúgbrauð í hvernum, sem gestir fá að smakka en það er Sigrún Erna,
íbúi á staðnum, sem sér um baksturinn og er hún með starfsemi í kringum
baksturinn, sem hún kallar „Rúgbrauð í fernu frá Sigrúnu Ernu“. Hægt er
að finna hana undir þessu nafni á Facebook.
KIA Gullhringurinn fer fram 11. júlí á Laugarvatni:
Keppt á rafmagnshjólum í fyrsta skipti
Reiknað er með að um 600 hjólreiðakappar, karlar og konur, munu keppa í
Kia Gullhringnum laugardaginn 11. júlí. Mynd / Gullhringurinn.is
Friðlýsingin var undirrituð að viðstöddum sveitarstjórnarmönnum í Þingeyj
arsveit og landeigendum, fulltrúum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins,
Umhverfisstofnunar, heimafólki og öðrum gestum á svæðinu. Við athöfnina
lék norðlenski blásarakvintettinn Norðangarri og að henni lokinni var boðið
til kaffisamsætis á Fosshóli.
Goðafoss friðlýstur
Það var hátíðleg stund á
Geysis svæðinu í Haukadal í
Biskupstungum í Bláskógabyggð
á þjóðhátíðardaginn, 17. júní
síðastliðinn þegar umhverfis
ráðherra, Guðmundur Ingi
Guðbrandsson, mætti á svæðið og
friðlýsti svæðið með undirskrift
sinni. Geysissvæðið er eitt þekkt
asta goshverasvæði jarðar.
Til marks um það draga goshverir
um heim allan heiti sitt af Geysi auk
þess sem hverahrúður er iðulega
kallað „geyserite“.
Fjölmargir hverir og laugar
eru á friðlýsta svæðinu, goshverir
og leirhverir sem og leirugir
vatnshverir. Geysir og Strokkur
eru þeirra þekktastir en meðal
annarra hvera má nefna Blesa,
Sóða, Litla Geysi, Litla Strokk,
Vigdísarhver, Háahver, Sísjóðanda
og Óþerrisholu. Á svæðinu er einnig
hverahrúður á stóru samfelldu
svæði.
„Með undirrituninni er Geysir
innan marka jarðarinnar Laugar
friðlýstur sem náttúruvætti.
Markmiðið er að stuðla að
varðveislu sérstæðra jarðmyndana,
hvera, örvera og sérstæðs gróðurs
á hverasvæðinu sem er einstæður
á lands og heimsmælikvarða.
Með friðlýsingunni er stuðlað að
því að svæðið nýtist til útivistar og
ferðaþjónustu til framtíðar og sé í
stakk búið til að taka á móti þeim
fjölda gesta sem sækja svæðið heim
á ári hverju. Þá er einnig stuðlað að
endurheimt náttúrufars á svæðinu
sem raskað hefur verið og það fært
til fyrra horfs eins og unnt er,“ segir
Guðmundur Ingi. /MHH
Geysir friðlýstur á 17. júní
– Allt Geysissvæðið hefur nú verið friðlýst
Undirritunin fór fram á hverasvæðinu í Haukadal að viðstöddu sveitar
stjórnarfólki í Bláskógabyggð, fulltrúum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins,
Umhverfisstofnunar og fleiri gestum. Við athöfnina söng Karlakór
Hreppamanna og að henni lokinni var boðið til þjóðhátíðarkaffis á Hótel
Geysi. Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson
480 0400 // jotunn.is // jotunn@jotunn.is
Eigum tinda og hnífa
í margar gerðir
heyvinnutækja.