Bændablaðið - 02.07.2020, Side 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 202034
Alvöru verkfæri
fyrir verktaka
og sveitarfélög
480 0000 - 480 0400 // af lvelar. is // sala@aflvelar. is - sala@jotunn.is
Vesturhrauni 3 - 210 Garðabæ // Austur veg 69 - 800 Selfossi
Það fer vel um þig í vinnufatnaði frá
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
UTAN ÚR HEIMI
Sjaldgæfir kaktusar eru víða að hverfa úr náttúrulegu umhverfi sínu vegna
ólöglegrar verslunar með plöntur.
Ólögleg verslun með plöntur:
Stórtækir kaktusaþjófar
Laganna verðir á landamærum
Bendaríkja Norður-Ameríku og
Mexíkó eiga í baráttu við hópa
kaktusaþjófa sem fara um eyði-
mörkina beggja megin landa-
mæranna og stinga upp sjaldgæfa
kaktusa. Svo mikil er eftirsóknin í
sumar tegundir að hætt er við að
þeir deyi hreinlega út í sínu nátt-
úrulega umhverfi.
Í hverjum mánuði eru kaktusaþjóf-
ar við landamærin handsamaðir með
þúsundir eintaka af plöntum sem þeir
hafa grafið upp með rót og síðan selt á
svörtum og ekki svo svörtum markaði
á netinu til safnara um allan heim.
Reyndar er það svo að lögreglan
hefur upprætt heilu glæpahringina
sem stunda skipulega ólöglega versl-
un með plöntur en jafnóðum spretta
upp nýir eins og fíflar í túni.
Vandinn við margar tegundir eft-
irsóttustu kaktusanna er að þeir eru
mörg ár og jafnvel áratugi að vaxa
og endurnýja sig ekki eftir að þeir
eru grafnir upp.
Alþjóleg vernd
Einn þessara kaktusa, Ariocarpus
fissuratus, vex á afmörkuðum
svæðum í Mexíkó og Texas og er
mjög eftirsóttur af kaktusasöfn-
urum um allan heim. Tegundin,
sem kallast steinkaktus, er marga
áratugi að ná þroska til að blómg-
ast og mynda fræ. Kaktusinn, sem
er með djúpa stólparót og lifir
sjaldnar af að vera grafinn upp og
fluttur milli staða, hefur horfið af
stórum svæðum og er í dag meðal
lífvera sem bannað er að versla
með á alþjóðamarkaði.
Stórt eftirlitssvæði
Svæði sem reynt er að vakta vegna
kaktusaþjófnaðar er gríðarlega
stórt og því erfitt að fylgjast með
mannaferðum á því og hver til-
gangur ferðanna sé. Vitað er um
dæmi þess að þjófar í gervi ferða-
manna hafi farið um svæði þar sem
sjaldgæfa kaktusa er að finna og
staðsett þá með GPS og svo komið
í skjóli nætur og grafið þá upp.
Einnig hafa menn keypt landsvæði
þar sem kaktusar hafa fengið að
vaxa óáreittir í hundrað ár og hafið
eins konar námagröft þar til búið er
að grafa alla kaktusana upp.
/VH
Ástralir hafa búið til spákort
sem sýnir væntanlegar hita- og
úrkomubreytingar vegna hlýnun-
ar jarðar og áhrif þeirra á ræktun
vínþrúgna í álfunni. Kortið gerir
vínræktendum kleift að sjá fyrir
hvaða yrki gefa mest af sér í fram-
tíðinni.
Kortið nær yfir 71 vínræktar-
svæði í suðurhluta Ástralíu og sýnir
hita- og úrkomubreytingar í framtíð-
inni og um leið hvaða yrki vínþrúgna
muni standa sig best á hverju svæði.
Að sögn vínræktenda í Ástralíu mun
kortið koma að góðum notum þar
sem árlega eru flutt út vín fyrir um
2,78 milljarða bandaríkjadali, eða
um 386 milljarða íslenskra króna.
Skipta þarf um yrki
Hitaspár sýna svo ekki verður um
villst að hiti í Ástralíu og víðast
annars staðar í heiminum mun
hækka á næstu árum og áratugum
og að vínbændur verða að aðlagast
breytingunum með því að skipta um
þrúgur. Þetta þýðir að bændur sem
rækta þrúgur eins og pinot noir og
chardonnay þurfa að skipta þeim út
fyrir hitaþolnari yrki eins og shiraz.
Þeir sem standa að gerð kortsins,
sem tók fjögur ár, segja að það sé
unnið í samræmi við nýjustu spár
um hita- og úrkomubreytingar á
vínræktarsvæðunum sem það nær
yfir og að þær eigi að gilda til
ársins 2100. Reiknað er með að
hiti á svæðunum muni að meðaltali
hækka um 3 °C á tímabilinu auk þess
sem spár gera ráð fyrir aukinni tíðni
hitabylgja og minni úrkomu.
Í sumum tilfellum verður ekki
nóg fyrir bændur að skipta út
yrkju og því einnig nauðsynlegt að
flytja ræktunina í meiri hæð og úr
suðurhlíðum þar sem hiti er ekki
eins mikill. Einnig er líklegt að víða
þurfi að koma upp vökvunarbúnaði
þar sem hann hefur ekki verið
nauðsynlegur til þessa.
Svipuð kort væntanleg
fyrir aðra starfsemi
Fastlega má reikna með að fljótlega
muni fleiri svipuð kort liggja fyrir
þar sem meðal annars verður spáð
fyrir um breytingar í skógrækt,
vatnsbúskap og ferðamennsku svo
dæmi séu tekin. /VH
Vínrækt í Ástralíu:
Framtíðaræktunarsvæði
kortlögð eftir yrkjum
Shiraz-þrúgur ræktaðar í Ástralíu.
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237