Bændablaðið - 02.07.2020, Qupperneq 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 2020 35
Verð á minkaskinnum hefur verið
lágt undanfarin ár vegna mikils
framboðs og í kjölfar COVID-19
hrundi salan. Ríkið hefur ákveðið
að styrkja greinina um 80 milljónir
króna í gegnum fóðurstöðvarnar
með lægra fóðurverði. Styrkurinn
er hluti að umhverfissamningi
ríkisins við greinina.
„Ríkið hefur ákveðið að styðja
þá tíu loðdýrabændur sem eftir
eru á landinu og um leið að nýta
umhverfiskosti greinarinnar til lengri
tíma litið og gera umhverfissamning
við greinina,“ segir Einar Einarsson,
minkabóndi og formaður Sambands
íslenskra loðdýrabænda.
Styrkurinn á þessu ári er
80 milljónir króna sem fara til
fóðurstöðva og nýtist minkabændum
sem niðurgreiðsla á fóðri.
Einar segir að næsta skinnauppboð
Köbenhagen Fur verði 9. júlí
næstkomandi. „Upphaflega stóð
til að það yrði hefðbundið uppboð
með fólki í salnum en því var breytt í
síðustu viku í uppboð á netinu vegna
þess að COVID-19 er kominn aftur
af stað í Kína.
Síðasta uppboð með fólki í
salnum var í september á síðasta
ári og uppboðið í febrúar var slegið
af vegna COVID-19. Síðan þá hefur
verið reynt að halda uppboð á netinu
en þau hafa gengið illa. Lítil sala og
verð lélegt.“
Versta sviðsmyndin
„Það er því mikið til af óseldun
skinnum sem til stendur að bjóða til
sölu á þessu ári. Slík staða er engan
veginn góð fyrir markaðinn og verð
í dag mjög lágt.
Versta sviðsmyndin er að ef öll
skinnin fara óseld inn í næsta ár, eins
og virðist vera að gerast á markaði
með gærur og dún og allt meira og
minna stopp.
Við vonum að sjálfsögðu að salan
glæðist með haustinu en auðvitað
er vonlaust að spá í framtíðina og
sérstaklega á óvissutímum eins og
núna.“
Einar segir að land búnaðar-
ráðherra, samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra og umhverfis-
ráðherra hafi nýverið kynnt
minnisblað um framtíð minka-
ræktarinnar í ríkisstjórninni og að
hún hafi samþykkt að styðja greinina
tímabundið til að koma henni í
gegnum þennan tíma.
„Í lok síðasta árs var
starfandi starfshópur á vegum
samgönguráðuneytisins og atvinnu-
og nýsköpunarráðuneytisins
sem vann skýrslu um framtíðar-
möguleika í minkarækt. Í
skýrslunni er lagt til að gerður verði
umhverfissamningur við greinina
sem felur meðal annars í sér stuðning
við fóðurstöðvar. Hugmyndin er
að fóðurstöðvarnar nýtist ekki
eingöngu loðdýrabændum og að
afurðastöðvum verði gert kleift að
afsetja meira hráefni sem gæti nýst
framleiðendum gæludýrafóðurs.
Umhverfissamningurinn gengur
því bæði út á stuðning við bændur
og fóðurstöðvarnar.“
Einar segir að þessi valkostur
og jarðgerð séu með fáum kostum
sem eru í boði ef banna á urðun á
lífrænum úrgangi.
COVID-19 tröllriðið öllu
„Þar sem árið hefur gengið mjög
illa það sem af er og COVID-19
tröllriðið öllum mörkuðum og
engin skinn selst setti stjórn
Sambands íslenskra loðdýrabænda
sig í samband við Bændasamtökin.
Í framhaldi af því sendi stjórn
Bændasamtakanna erindi á atvinnu-
og nýsköpunarráðherra og styrk til
loðdýrabænda vegna ástandsins sem
tengist COVID-19.
Það sem er nú að gerast er að
ríkið er bæði að afgreiða þann styrk
og semja við greinina á grundvelli
skýrslunnar sem var samin um
framtíð greinarinnar,“ segir Einar.
/VH
– VERKIN TALA
Gylfaf löt 32 ● 112 Reykjavík ● Sími 580 8200 ● www.velfang. is ● Óseyri 8 ● 603 Akureyri
Vélfang ehf. og Schäffer Maschinenfabrik GmbH hafa undirritað með sér samkomulag
þess efnis um að Vélfang ehf. mun framvegis sjá um sölu og þjónustu við Schäffer
liðléttinga og hjólaskóflur á Íslandi.
Vélfang ehf. er nýr umboðsaðili Schäffer á Íslandi
Vélfang ehf. er sölu- og þjónusutaðili fyrir tæki og vélar á svið landbúnaðar og jarðverktöku og var stofnað árið 2004.
Fyrirtækið er með starfsstöðvar bæði á Reykjavík og Akureyri og flutti nýlega í stórglæsilegt húsnæði á Óseyri 8 á Akureyri.
Helstu vörumerki fyrirtækisins eru nú Schäffer, Fendt, JCB, Claas, Kuhn og Kverneland.
Okkur hjá Vélfangi hlakkar til að takast á við þetta verkefni og bjóðum eigendur
Schäffer og alla aðra velkomna til okkar á Gylfaflötina í Reykjavík
og nýja starfsstöð okkar á Óseyri 8 á Akureyri.
Ríkið styrkir og semur við loðdýrabændur
Einar Einarsson, minkabóndi og
formaður Sambands íslenskra
loðdýra bænda.
LÍF&STARF
Grýtubakkahreppur:
Ljósleiðari á
síðustu bæina
Grýtubakkahreppur hefur fengið
tæplega einnar milljón króna styrk
úr verkefninu „Ísland ljóstengt“
til að ljúka ljósleiðaravæðingu
sveitarfélagsins. Einnig fær
hreppurinn 650 þúsund krónur
úr byggðaáætlun í sama tilgangi.
Ljósleiðari var lagður í
sveitarfélaginu á flest heimili fyrir
allmörgum árum, grunnnetið er frá
2008. Er þetta í fyrsta skipti sem
styrkir bjóðast Grýtubakkahreppi til
þessa verkefnis.
Í sumar verður lagt heim á bæina
Hvamm, Kolgerði og Pálsgerði.
Verður þá í boði ljósleiðari á öll
heimili í hreppnum, utan eins bæjar
sem ekki óskaði eftir tengingu.
Þetta er mikilvægt skref, segir
í frétt á vef Grýtubakkahrepps og
styrkir búsetu enn frekar. /MÞÞ
Þröstur Friðfinsson, sveitarstjóri
í Grýtubakkahreppi, Sigurður Ingi
Jóhannsson samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra og Haraldur Bene-
diktsson, varaformaður Fjarskipta-
sjóðs, við undirritun samningsins.