Bændablaðið - 02.07.2020, Síða 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 202036
Lengi var talið að uppruni
aprí kósa væri í Armeníu enda
á tréð langa ræktunarsögu þar
um slóðir. Í dag eru flestir sam-
mála um að aldinið sé komið
frá Kína. Áhugafólki um flóru
Gamla testamentisins greinir á
um hvort aldin sem nefnd eru í
ritunum og kölluð epli séu epli
eða apríkósur.
Heimsframleiðsla á apríkósum
er vaxandi og samkvæmt upplýs-
ingum Matvæla- og landbúnað-
arstofnunar Sameinuðu þjóðanna
var framleiðslan árið 2017 rúm 4,3
milljón tonn en tæp 3,8 milljón
tonn árið 2016. Tyrkland var það
land sem ræktaði mest af apríkós-
um 2017, eða um 985 þúsund tonn.
Úsbekistan var í öðru sæti með rúm
532 þúsund tonn og Ítalía í því þriðja
með rúm 266 þúsund tonn. Alsír,
Íran, Pakistan, Spánn, Frakkland,
Afganistan, Marokkó og Grikkland
fylgdu svo í kjölfarið með ræktun
á rúmlega 257 og niður í rúm 106
þúsund tonn.
Heildarinnflutningur, samkvæmt
upplýsingum á vef Hagstofu Íslands,
á apríkósum til Íslands, bæði fersk-
um og þurrkuðum, árið 2019 var
um 52,3 tonn. Þar af voru 12,9
tonn ferskar apríkósur en 39,4 tonn
þurrkaðar. Auk þess sem apríkós-
ur eru fluttar inn í formi sulta og
grauta.
Af ferskum apríkósum kom mest
frá Spáni, rúm 8 tonn, og Ítalíu, rétt
rúm 3 tonn. Mest var flutt inn af
þurrkuðum apríkósum frá Tyrklandi
árið 2019, eða rúm 26 tonn og rúm
10,5 tonn frá Þýskalandi.
Ættkvíslin Prunus og
tegundin armeniaca
Vel yfir 400 tegundir trjáa og runna
sem eru sígrænir eða lauffellandi
tilheyra ættkvíslinni Prunus sem er
af rósaætt. Þar á meðal aldintré eins
og ferskjur, plómur, kirsuber, perur
og apríkósur. Allt eru þetta plöntur
sem vaxa villtar á norðurhveli jarðar.
Sú tegund sem mest er ræktuð
og almennt ber aldin sem kallast
apríkósur er P. armeniaca, en aldin
skyldra tegunda eins og P. brig-
antina, P. mandshurica, P. mume,
P. zhengheensis og P. sibirica kall-
ast einnig apríkósur og seldar sem
slíkar.
Apríkósutré eru með trefjarót, 8
til 12 metrar að hæð og um 40 sentí-
metrar að þvermáli en oft lægri og
gildari í ræktun. Blöðin breiðlensu-
laga, 5 til 9 sentímetrar að lengd en
4 til 8 sentímetrar að breidd, rúnnuð
við blaðstilkinn en annars sagtennt
og mjókka til endanna. Blómin 2
til 4,5 sentímetrar í þvermál, með 5
hvítum eða bleikleitum krónublóð-
um. Blómstra snemma á vorin áður
en plantan laufgast. Aldinið 2,5 til
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Apríkósur í silfurskálum,
svo eru vel valin orð
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Aldin apríkósa eru gul og appelsínugul og oft með rauðleitum blæ á þeirri hlið sem snýr að sólinni.
Apríkósur eru viðkvæmar og eru því tíndar af trjánum með höndum.
Áhugamenn um flóru Gamla testamentisins eru sumir á því að víða þar sem
talað er um epli ritum í þess sé átt við apríkósur.
Apríkósuvín.