Bændablaðið - 02.07.2020, Side 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 2020 37
4 sentímetrar í þvermál en stærra
hjá sumum yrkjum í ræktun, gul og
appelsínugul og oft með rauðleitum
blæ á þeirri hlið sem snýr að sólinni.
Aldinhúðin mjúk og flauelskennt
viðkomu og smáhært og aldinkjötið
þétt, jafnvel þurrt og sætt á bragð-
ið og kallast steinaldin. Fræið er
umlukið harðri og sléttri skel sem
oft er með þrjár rákir eftir annarri
hliðinni.
Fjöldi ólíkra afbrigða og yrkja
sem eru aðlöguð að mismunandi
umhverfisaðstæðum og breyti-
leg að stærð, lögun og bragði eru
í ræktun. Má þar nefna 'Polonais'
og 'Bergeron' sem bæði ilma vel,
eru rauðleit og safarík og ræktuð
í Frakklandi. Yrki sem eru vinsæl
í Bandaríkjunum eru 'Blenheim',
'Wenatchee Moorpark', 'Tilton' og
'Perfection'.
Líftími apríkósutrjáa er um 20 ár.
Saga og útbreiðsla
Uppruni apríkósa var lengi talinn
vera í Armeníu enda á tréð langa
ræktunarsögu þar um slóðir og fjöldi
yrkja mikill. Belgíski baróninn de
Poerderlé skrifaði um 1770 að heiti
trésins sé kennt við Armeníuhluta
Asíu þaðan sem það er upprunnið og
að þaðan hafi það borist til Evrópu
og kallast aldin þess armeníuplóma.
Fornleifarannsóknir í garði
musterisins í Garni í Armeníu, sem
var reist á fyrstu öld fyrir Krist og
talið helgað sólguðinum Mihr og
er í grísk-rómverskum stíl, sýna
að þar voru ræktaðar apríkósur.
Mannvistarleifar við Shengavit
búsetukjarnann í Armeníu sem er
frá því um 3000 fyrir Krist benda
til að þar hafi verið ræktaðar
apríkósur og að þær hafi verið hluti
af daglegri fæðu fólksins sem þar
lifði. Aðrar heimildir benda til að
ræktun apríkósa sé upprunnin á
Indlandi.
Sovéski grasafræðingurinn
Nikolai Vavilov, uppi 1887 til
1943, hélt því hins vegar fram að
uppruni apríkósa væri í Kína og þar
hafi ræktun þeirra verið stunduð frá
því rúmlega árið 3000 fyrir upphaf
okkar tímatals. Flestir sem láta
sér þetta varða í dag eru sammála
honum um að apríkósur hafi borist
frá Kína til norðurhéraða Indlands
og Mið-Asíu.
Egyptar til forna þekktu og rækt-
uðu apríkósur og þar eru þær mikið
þurrkaðar og notaðar til að sæta mat
og í drykk sem kallast amar al-dīn.
Líklegast er talið að apríkósutré
hafi borist til Grikklands í kjölfar
landvinninga Alexanders mikla,
uppi 356 til 323 fyrir Krist, í Persíu
og dreifst út þaðan til landa við
Miðjarðarhaf og Rónar og frá Róm
bárust apríkósur norður um Evrópu.
Apríkósutré voru ræktuð á
Englandi á 17. öld og unnin úr
þeim olía til lækninga á æxlum,
bólgum og sárum á maga og
meltingarfærum og almennt var
litið á aldinið sem lostaörvandi.
Vitað er að breskir og spænskir
landnemar í Nýja heiminum fluttu
með sér apríkósufræ og græðlinga
yfir Atlantshafsála og að yrki sem í
dag eru í ræktun í Kaliforníu og víðar
í Bandaríkjum Norður-Ameríku
eru langflest komin af spænskum
græðlingum.
Nafnaspeki
Fyrstu skráðu heimildir um að
apríkósur komi frá Armeníu er
að finna í riti svissneska grasa-
fræðingsins Gaspar Bauhin, uppi
1560 til 1624. Umrætt rit, sem kall-
ast Pinax Theatri Botanic, kom út
árið 1623. Í ritinu er að finna lýs-
ingu og flokkun á um 6.000 plöntum
og þar kallar hann apríkósur Mala
armeniaca eða epli frá Armeníu.
Sænski grasafræðingurinn Carl
von Linnaeus, uppi 1707 til 1778,
gaf apríkósutrjám latneska heitið
Prunus armeniaca í góðri trú um að
uppruni þeirra væri í Armeníu í bók
sinni Species Plantarum frá 1753.
Þýðing latneska ættkvíslar-
heitisins Prunus er óþekkt og talið
að það sé lánsorð úr phrygian sem
er útdautt tungumál sem var talað
í Mið-Asíu og skylt frumgrísku.
Tegundaheitið armeniaca þýðir að
plantan komi frá Armeníu og í sam-
ræmi við það að Evrópumenn töldu
hana þaðan komna. Það má því segja
að apríkósur hafi lengi siglt undir
fölsku flaggi á latínu.
Enska heitið apricot var borið
fram abrecock á 16. öld og kemur
úr miðaldafrönsku, aubercot sem
síðar var borið fram abricot. Til
Frakklands er talið að aldinið
hafi borist frá Spáni undir heitinu
albaricoque eða a(l)bercoc eins og
það kallast á katalónsku. Líklegast er
að Márar hafi komið með apríkósur
til Andalúsíu á Spáni frá Marokkó
en Arabar kalla þær قوُقْرَبْلا eða
al-barqūq sem þeir tóku úr býsatískri
grísku βερικοκκίᾱ eða berikokkíā og
þýðir apríkósutré. Gríska heitið mun
svo vera komið úr latínu, praecocia,
sem þýðir snemmblómstrandi.
Ítalir kalla aldinið albicocca,
Þjóðverjar echte aprikose og Finnar
aprikoosi, Svíar, Norðmenn, Danir
og Færeyingar segja aprikos. Á
íslensku kallast bæði tréð og aldinið
apríkósa en einnig þekkist heitið eir-
aldin.
Ræktun
Apríkósur þrífast best í svölu og
þurru loftslagi og geta myndað aldin
í suðurhlíðum Himalajafjalla upp í
3.000 metra hæð og í vetrardvala
þola hraustar plöntur allt að -30°
á Celsíus. Tré í ræktun geta verið
óstabíl þegar kemur að blómgun og
aldinmyndun og eiga það til að taka
sér frí og sleppa því að blómgast
eitt og eitt ár. Frost á vorin eru samt
hættulegust fyrir ræktendur þar sem
trén eru snemmblómstrandi og geta
blómin hæglega skemmst í vor- og
næturfrostum.
Trén dafna best í kalkríkum, pH
6.0 til 7.0, grýttum og þurrum jarð-
vegi en þola ill að þorna í langan
tíma. Áburðargjöf getur einnig verið
vandamál þar sem tré eru kresin á
jarðveg og þola illa mikinn áburð
eða ónákvæma áburðargjöf hvort
sem áburðurinn er lífrænn eða
kemískur.
Til að viðhalda yrkjum í ræktun
eru apríkósugreinar ágræddar á rót-
arstofna. Sum yrki eru sjálffrjóvg-
andi en önnur ekki og þarf því að
planta tveimur yrkjum saman til að
blóminn frjóvgist.
Líkt og í annarri stórræktun herja
ýmsar óværur, skordýr, bakteríur og
sveppir, á apríkósur sem mætt er
með ýmiss konar efna- eða lífræn-
um vörnum.
Næringarinnihald og nytjar
Í 100 grömmum af ferskum
apríkósum eru 48 kaloríur og í þeim
eru 11% kolvetni, 1% prótein, tæp-
lega 1% fita og 86% vatn. Apríkósur
eru ríkar af A- og C-vítamínum, auk
járns og kalí.
Ferskar apríkósur eru safaríkar
og sætar en þær geymast ekki vel
og þær því þurrkaðar, sultaðar eða
niðursoðnar til geymslu.
Tyrkland er stærsti útflytjandi
þurrkaðra apríkósa í heiminum.
Til að auka geymsluþol þurrk-
aðra apríkósa eru þær úðaðar með
brennisteinsdíoxið, SO2, sem er
eitruð gastegund sem kallast E220
í innihaldslýsingunni. Brennisteins-
tvíoxið eykur appelsínugulan litinn
á þurrkuðum apríkósum og eru því
lífrænar þurrkaðar apríkósur dekkri á
litinn. Neysla á mikið af þurrkuðum
apríkósum sem hafa verið úðaðar
með brennisteinsdíoxið getur valdið
höfuðverk og meltingartruflunum.
Í fræi aprí kósa er að finna mikið
af trefjum, járni og í litlu magni
eiturefni sem kallast amygdalin og
líkist blásýru og því ekki ráðlagt að
borða fræin í miklu magni í einu. Úr
fræjunum er unnin olía sem notuð
er til að gefa líkjörnum amaretto
og amarettikexi og -brauði bragð.
Auk þess sem til eru afbrigði af
apríkósutrjám sem mynda sætkennd
fræ sem eru borðuð líkt og möndlur.
Apríkósur og menning
Kínverjar tengja apríkósur við
menntun og lækningar. Samkvæmt
frásögn kínverska heimspekingsins
Chuang Tzu, uppi á fjörðu öld fyrir
Krist, talaði Konfúsíus, uppi 551 til
479 fyrir Krist, til lærisveina sinna
í lundi umkringdum apríkósutrjám.
Fræ apríkósa eru mikið notuð í kín-
verskum lækningum og er sagt að
læknirinn Dong Feng, sem var uppi
á annarri öld eftir Krist, hafi ekki
farið fram á aðra greiðslu fyrir störf
sín en að ef sjúklingum batnaði að
þeir gróðursettu apríkósutré í trjá-
lundinn hans.
Áhugamenn um flóru Gamla
testamentisins eru sumir á því að
víða þar sem talað er um epli í ritum
þess sé átt við apríkósur. Helstu rökin
fyrir þessu eru að epli á ritunartíma
Gamla testamentisins hafi verið ólík
nútíma eplum, sem eru stór, safarík
og sæt, verið lítil, hörð og römm á
bragðið og ekki mikið í ræktun. Aftur
á móti hafi apríkósur verið vel þekkt
aldin á söguslóðum Gamla testa-
mentisins á ritunartíma þess og eigi
því lýsingar eins og í Orðskviðunum
25:11, „Gullepli í silfurskálum“ og
í Ljóðaljóðunum 2:3, „Sem epla-
tré í kjarrviði ber elskhugi minn af
sveinunum. Í skugga hans uni ég og
ávextir hans eru gómsætir“, fremur
við safaríkar apríkósur en hörð epli.
Samkvæmt grískum goðsögnum
fólst ein af tólf þrautum Heraklesar
í að sækja gullepli Vesturdísarinnar.
Gulleplanna var gætt af hundrað
höfðuðum dreka og fleiri vættum
við norðurenda heimsins. Samkvæmt
goðsögunni leysti Herakles
Prómeþeif úr fjötrum á leið sinni
að gulleplunum. Í þakklætisskyni
vísaði Prómeþeifur honum leiðina
til Atlasar risa sem ber himnahvelf-
inguna á öxlum sér. Herakles hafði
verkaskipti við Atlas og tók himna-
hvelfinguna á herðar sér en risinn fór
að sækja eplin. Þegar Atlas kom úr
þeirri för ætlaði hann að nota tæki-
færið og koma byrði sinni fyrir fullt
og allt á Herakles. Heraklesi tókst þó
með kænsku að blekkja risann með
því að biðja hann að standa undir
himnunum á meðan hann setti á
sig hlíf svo hann meiddist ekki á
herðunum af því að bera himininn
uppi. Atlas sá ekki við þessu og tók
Herakles gulleplin og fór sína leið.
Sambærilega sögu er að finna í
norrænni goðafræði þegar Iðunni
og gulleplum er stolið af jötninum
Þjassa og goðið farið að eldast. Til
að endurheimta Iðunni og gulleplin
fékk Loki lánaðan valsham Freyju
og flaug til hallar Þjassa. Þar breytti
hann Iðunni í hnetu og flaug af stað
með hana í klónum. Þjassi jötunn
tók hins vegar eftir því og elti þau
í arnarham en þegar Loki flaug inn
yfir Ásgarð kveiktu æsirnir í spóna-
hrúgu svo að vængir Þjassa sviðnuðu
er hann flaug yfir eldinn og hann
féll til jarðar. Æsirnir drápu hann
og glöddust yfir að hin dýrmætu
epli væru komin aftur til Ásgarðs
og þeim var tryggð eilíf æska á ný.
Líkt og með gullepli Gamla testa-
mentisins eru leiddar að því líkur að
gullepli Vesturdísarinnar hafi verið
apríkósur en ekki epli. Aftur á móti
er óvíst af hvaða tré gullepli Iðunnar
eru upprunin.
Apríkósur í blóma eru tákn annars
mánaðar kínverska ársins og þjóðar-
aldin Armeníu. Blóm plöntunnar er
á tungumáli blómanna sögð standa
fyrir efa og eða tákna skaut kvenna.
Af einhverjum ástæðum hefur sú
þjóðtrú fest í sessi meðal bandarískra
landgönguliða að því fylgi ógæfa
að borða apríkósur eða hafa þær á
sér og á það sérstaklega við nálægt
skriðdrekum. Sögur af þessu tagi
eru þekktar meðal landgönguliða frá
því bæði í seinni heimsstyrjöldinni
og í Víetnamstríðinu og í sumum
tilfellum er heitið á apríkósu nafna-
víti sem ekki má nefna á nafn og þær
kallaðar kósur, forboðna aldinið eða
ávöxtur A.
Apríkósur á Íslandi
Fyrstu merki um innflutning á
apríkósum til Íslands er að finna í
auglýsingu frá Jóhannesi Hansen
kaupmanni sem auglýsir ýmsar
gerðir að kryddpækluðum aldinum
til sölu í blöðunum Nýja öldin og
Fjallkonunni í desember 1897.
Meðal aldinanna eru ananas, perur,
jarðarber, ferskjur og apríkósur.
Árið 1905 auglýsir Thomsens
Magasín „alls konar sælgætisvörur“
eins og praline, confeet gráfíkjur,
krakmöndlur og þurrkaðar apríkósur
til sölu.
Á þriðja og fjórða áratug síðustu
aldar eru apríkósur talsvert auglýstar
til sölu ásamt öðrum nýlenduvörum
en svo virðast þær hverfa af markaði
á fimmta áratugnum og þá líklega í
kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar.
Í dag er hægt að fá ferskar, þurrk-
aðar og apríkósur í grautum í versl-
unum allt árið.
Uppruna heitisins apríkósa er að finna í latneska orðinu praecoia sem þýðir
snemmblómstrandi.
Apríkósur lagðar til þerris.
Innflutningur á apríkósum til Íslands,
bæði ferskum og þurrkuðum, árið
2019 var um 52,3 tonn.
Apríkósusulta.
Apríkósur úr dós voru vinsæll sunnudagseftirréttur Íslendinga á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar.