Bændablaðið - 02.07.2020, Blaðsíða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 202038
UTAN ÚR HEIMI
Varðveisla sjaldgæfs gróðurs og
plantna í útrýmingarhættu
Þrátt fyrir að Stellenbosch-
grasa garðurinn í Suður-Afríku
sé annar af megin grasagörðum
landsins fer ekki mikið fyrir
honum og jafnvel vandasamt að
finna garðinn ef maður er ekki
staðkunnugur.
Stellenbosch er elsti háskóla
grasagarðurinn í SuðurAfríku og
hefur áhersla hans frá upphafi verið
að varðveita sjaldgæfar plöntur í
útrýmingarhættu.
Saga garðsins nær aftur til 1902
þegar grasafræðingurinn og fyrsti
lektor SuðurAfríku í grasafræði,
Augusta Vera Duthie, hóf að rækta
plöntur við aðalbyggingu skólans
til að leiðbeina nemendum um flóru
SuðurAfríku. Stellenbosch er elsti
háskólagrasagarðurinn í landinu en
háskólinn er staðsettur í samnefndri
borg á vestanverðum Hornhöfða um
50 kílómetra austan við Höfðaborg
Vinsældir garðsins til kennslu
urðu strax miklar og árið 1921 var
ákveðið formlega að hann yrði
háskólagrasagarður með þeirri
rannsóknaskyldu sem fylgir slíkri
upphefð.
Minni en ég átti von á
Síðastliðið haust heimsótti ég Suður
Afríku ásamt nokkrum Íslendingum
og var talsvert spenntur fyrir að
koma í garðinn. Allt í kringum
Stellen bosch eru frjósöm vínrækt
arhéruð og vínsmökkunarbýli sem
gaman var að heimsækja og smakka
þar á vínum úr ólíkum vínþrúgum.
Ég hafði lesið mér aðeins til um
sögu hans og vissi að garðurinn
naut mikillar virðingar. Það kom
mér því á óvart hversu lítill garð
urinn er en á sama tíma var hann
vel nýttur og plöntur og lítil gróð
urhús úti um allt eins og vera ber
í grasagarði.
Fjölbreytni í garðinum er mikil
og í dag má þar sjá plöntur víða að
úr Afríku bæði utandyra og í gróð
urhúsunum.
Garðinum er skipt í sjö megin
svæði sem hvert er með sínu sniði
og flóru og hvert öðru áhuga
verðara. Þar er tjörn með vatnalilj
um, skyggður garður með bonsai
trjám, burknahús, pálmahluti,
kryddjurtagarður, kaktusa og
þykkblöðungahús og svæði sem er
undirlagt próteum sem eru einkenn
isblóm SuðurAfríku. Í garðinum
er einnig ræktað grænmeti og horn
með kjötætuplöntum.
Metnaðarfullir umsjónarmenn
Garðurinn var stækkaður 1925 og
fyrsti forstöðumaður hans, dr. Hans
Herre, ráðinn. Fimm árum síðar
var fyrsti garðyrkjufræðingurinn,
Helmut Meyer, ráðinn til að sinna
garðinum. Herre og Meyer lögðu
mikinn metnað í vinnu sína og garð
urinn varð fljótt frægur um víða ver
öld fyrir úrval sitt af innlendum suð
urafrískum plöntum og sem áfanga
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Stellenbosch-háskólagrasagarðurinn er rúmlega hundrað ára og með virtari
grasagörðum í heimi.
Í Stellenbosch-garðinum er enn að finna tré sem voru gróðursett þar á fyrsta áratug síðustu aldar. Myndir / VH
Prótera er þjóðarblóm Suður-Afríku. Baobab-bonsai.
Eyðimerkurtegundin Welwitschia mirabilis komst í heimsfréttirnar árið 1949
þegar hún blómstraði í Stellenbosch og myndaði fræ. Eitthvað sem ekki
hafði tekist áður í ræktun.
Blóm paradísarfuglsins eru áberandi
í suðurhluta Suður-Afríku.