Bændablaðið - 02.07.2020, Page 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 2020 39
staður ferðamanna. Þeir félagar
voru duglegir að safna tegundum
sem áður voru óþekktar í grasa-
görðum og nokkrar tegundir og
ættkvíslir eins og Meyerophytum
meyeri, Herreanthus meyeri og
Cyrtanthus herrei nefndar þeim
til heiðurs. Auk þess sem fjöldi
tegunda eins og Ischyrolepis
duthieae, Ornithogalum duthiae
og ættkvíslin Duthieastrum eru
nefndar í höfuðið á Ágústu Veru
Duthie.
Herra komst í heimsfréttirnar
1949 þegar eyðimerkurtegundin
Welwitschia mirabilis, sem hann
ræktaði af fræi 23 árum áður,
blómstraði í garðinum og myndaði
fræ, eitthvað sem ekki hafði tekist
áður í ræktun.
Garðurinn hefur tekið miklum
breytingum á þeim rúmum hundrað
árum sem hann hefur verið starfandi
og einu minjar um upphaflegt útlit
hans er að finna í kryddjurtahluta
hans. Auk þess sem í garðinum er
enn hægt að skoða plöntur og tré
sem var plantað á fyrstu árum hans.
Katjiepiering
Fyrir þá sem ekki nenna að skoða
plöntur alla daga er í garðinum
notaleg bókabúð og kaffihús sem
nefnist Katjiepiering en heitið er
komið úr afrísku og er nafnið á
gardeníu á því máli. Auk kaffis
og léttra veitinga er boðið upp á
ljómandi góð hvítvín sem hægt
er að fá í góðu skjóli fyrir sterkri
Afríkusólinni.
UTAN ÚR HEIMI
Burkni.
Vatnaliljugarðurinn.
Lára Jónsdóttir garðyrkjufræðingur, sem var með í hópnum sem heimsótti
Stellenbosch-háskólagrasagarðinn.
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 770
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
Áskorun til afurðastöðva!
Sauðfjárbændur þurfa
launaleiðréttingu líkt og
aðrar stéttir landsins.
Við krefjumst þess að meðal
afurðaverð haustið 2020 verði
að lágmarki 700 kr. á kg.
Stjórn Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STÝRISENDAR í flestar
gerðir dráttarvéla