Bændablaðið - 02.07.2020, Side 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 202040
LESENDABÁS
Nýlega hafa sveitarfélög og
umhverfisverndarsamtök lagt
til að Eyjafjörður verði friðaður
fyrir sjókvíaeldi. Talið er að lífríki
í firðinum sé í húfi og náttúran
skuli njóta vafans. Í umræðunni er
fátt tiltekið sem hönd er á festandi.
Umræðan virðist hverfast um til-
finningar og fagurfræði, sem þó
vissulega eiga fullan rétt á sér.
Hér í þessu greinarkorni vil
ég reyna að dýpka umræðuna og
leggja fram upplýsingar sem hönd
er á festandi og hægt er að rífast
um. Hér er fjallað um haffræði og
líffræði Eyjafjarðar sem er allvel
rannsakað efni og nálgast má
heimildir hjá höfundi. Rétt er þó
að nefna að Hafrannsóknastofnun,
Sjómælingar hjá Landhelgisgæslu
og Háskólinn á Akureyri hafa staðið
fyrir umfangmestu rannsóknunum
sem hér er stuðst við.
Eyjafjörður er stór
Eyjafjörður er með stærstu fjörðum
landsins og sumir segja stærsti
eiginlegi fjörðurinn, ef frá er skilinn
Breiðafjörður (Djúp og Flóar eru jú
ekki firðir!). Eyjafjörðurinn er um
58 km langur og 15 km breiður í
fjarðarminni. Heildarflatarmálið er
áætlað 422 km2 (sunnan 66°10 N).
Fjarðarmynnið er opið móti úthafinu
þar sem mesta dýpi er 215 m. Enginn
dýpisþröskuldur er í mynni fjarðarins
og eru sjóskipti því svo til óheft við
úthafið. Djúpáll gengur inn fjörðinn
og mesta dýpið er austan við Hrísey,
inn undir Grenivík, þar sem dýpið er
ennþá um 100 m. Áfram grynnkar
rólega og þrengist eftir því sem innar
gengur. Út af Arnarnesi, innan við
Rauðuvík, þrengist djúpállinn mikið
og er mesta sjávardýpið 70 m. Innan
við hrygginn dýpkar fjörðurinn á ný
og breikkar. Innan við Hjalteyri er
dýpið víða um 75-90 m fram undir
Hörgárgrunn. Mesta er þó dýpið í
djúpál vestan megin, 110 m. Innan
við Hörgárósa dregur rólega úr
dýpinu og er dýpið út af Skjaldarvík
þó ennþá 65 m og við Krossanes 55
m, en úr því dregur hratt úr dýpinu.
Hafrannsóknastofnun hefur metið
heildar rúmmál Eyjafjarðar 29 km3
(sunnan 66°10 N).
Til samanburðar má nefna að flat-
armál Arnarfjarðar á Vestfjörðum er
áætlað 343 km2 og rúmmál hans um
19 km3. Hafrannsóknastofnun hefur
metið burðarþol Arnarfjarðar til
fiskeldis 30.000 tonn, þó er fiskeldi
aðeins heimilt í hluta af firðinum.
Haffræði fjarðarins
Haffræði Eyjafjarðar er þekkt með
nokkurri vissu. Hafstraumar eru
almennt meiri en mælist í mörgum
öðrum fjörðum hérlendis og sér-
taklega eftir því sem innar dregur.
Innan við Hjalteyri og allt inn undir
Svalbarðseyri er meðalstraumur um
7-9 cm/sek á 15 m dýpi og hámarks
sjávarfallastraumar á bilinu 30-70
cm/sek. Straumstefnan er almennt
í suður að vestanverðu og í norður
austanmegin. Flókið getur verið að
metavatnsskiptin í firðinum, einnig
kallað endurnýjunartími sjávar.
Út frá meðalstraumi við Gjögur í
fjarðarminni má áætla að vatns-
skiptin séu nálægt einni viku, en allt
að fjórar vikur metið eingöngu út frá
sjávarföllum. Endurnýjunartímann
má áætla þarna mitt á milli. Innan
við Hjalteyri er áætlað að vatns-
skiptin séu 13-17 dagar, reiknað
út frá straummælingum og sjávar-
föllum. Súrefnismælingar sýna að
Eyjafjörður er ekki dæmigerður
þröskuldsfjörður þrátt fyrir 40 m
dýpisþröskuld utan við Hjalteyri.
Vegna mikilla hafstrauma myndast
ekki sterk lagskipting í djúpálnum
eins og oft gerist í fjörðum með
meiri dýpisþröskulda og hægari
strauma. Gott dæmi um slíkan fjörð
er Arnarfjörður, þar sem endurnýjun
sjávar stöðvast tímabundið í djúpsjó
vegna lagskiptingar, sem leiðir til
að súrefnismettun lækkar verulega
síðsumars og á haustin. Slíkt er ekki
tilfellið í Eyjafirði.
Næringarefnaástand
Styrkur nitrats (NO3) og fosfats
(PO4) eru gjarnan notaðar sem
mælikvarði á „mengunarástand“
í vatni og sjó. Stuðst er þá við
vetrargildi, því yfir dimmasta tíma
ársins er enginn þörungavöxtur og
öll næringarefni eru þá uppleyst.
Sjósýnataka fór fram að vetri til
árin 1993, 2017 og 2018. Prufur
voru teknar á 12 til 17 stöðvum frá
Oddeyri að Gjögri. Niðurstöður
sýna mun minni breytileika en búast
mátti við miðað við stærð fjarðarins.
Nitrat er að jafnaði aðeins um
1% hærra á svæðinu innan við
Hörgárósa í samanburði við útsvæði
fjarðarins, sunnan og norðan við
Hrísey. Og fosfat er um 3% hærra
á innsvæðinu í samanburði við
útsvæðið (sjá kort). Almennt er sjór
fyrir Norðurlandi næringarsnauðari
en sunnan og vestan við landið.
Vetrargildi niturs og fosfórs við
Suðurströndina og í Faxaflóa er að
jafnaði 13,3 µmól/líter (NO3) og
0,90 µmól/líter (PO4). Þó innihald
næringarefna sé hærra í Eyjafirði
en úti fyrir Norðurlandi benda þessi
gögn til að næringarefnaástand
Eyjafjarðar sé harla gott þrátt
fyrir afrennsli næringarefna frá
landbúnaðarsvæðum og allmikla
íbúðarbyggð, ásamt afrennsli frá
fiskvinnslu og öðrum iðnaði.
Af þessum niðurstöðum má
ætla að „náttúrulegt“ innihalda af
nitur (köfnunarefni) í Eyjafirði sé
um 5.300 tonn og sambærileg tala
fyrir fosfór er um 800 tonn. Sem
dæmi, þá mun 20.000 tonna laxeldi
auka uppleyst nitur í firðinum
um 12% (650 tonn) og fósfór um
7% (60 tonn) á ársgrundvelli (til
viðbótar kemur fast botnfall, en
magn þess ræðst af eldistækni;
opnar eða lokaðar eldiskvíar).
Þessi aukning frá fiskeldinu dreifist
yfir alla daga ársins. Framburður
næringarefna í vorleysingum frá
stórum ám sem falla í Eyjafjörð
yrði mun meiri en hámarks dagleg
úrskolun næringarefna frá fiskeldi.
Áætla má að meðalrennsli stærri
vatnsfalla sem renna í innanverðan
Eyjafjörð; Eyjafjarðará, Glerá,
Hörgá og Fnjóská sé nálægt 100 m3/
sek. Í vorleysingum er þetta rennsli
margfalt. Efnamælingar árvatns sýna
innihald sem er nálægt 5 µmól/L
nitur og 0,5 µmól/L fosfór. Ætla má
að í innanverðan Eyjafjörð berist því
árlega að lágmarki 220 tonn nitur og
50 tonn fosfór með árvatni. Miklir
hafstaumar og ör sjóskipti benda
einnig til þess að geta Eyjafjarðar
til að takast á við miklar náttúrlegar
sveiflur í næringarefnákomu séu
miklar. Ennþá er óljóst hvert er
burðarþol fjarðarins fyrir fiskeldi,
en margt bendir til að það sé talsvert.
Staðsetning eldissvæða
Staðsetning eldissvæða skiptir
máli og þarf þar að taka tillit
til fjölmargra sjónarmiða. Út
frá sjálfbærnisjónarmiðum geta
hafstraumar og straumstefnur haft
úrslitaáhrif. Við val á eldistækni
skiptir sjávardýpi og öldufar
hinsvegar meginmáli. Svo þarf að taka
mið af dýralífi, öðrum sjávarnytjum
og siglingarleiðum. Einnig má nefna
fagurfræði og jafnvel neikvæða
ímynd fiskeldis, sem skiptir sumt
fólk mestu máli. Spyrja má, hvort
einhver möguleiki sé á að samræma
þessi sjónarmið í Eyjafirði? Þeir
sem tala um sjónmengun nefna
gjarnan að fiskeldi þurfi að fara
á land. Á landi þarf sambærileg
framleiðslueining stærra flatarmál
en á sjó og ljósmengun þá meiri af
aragrúa hringlaga landkerjum. Hvað
með að sleppa þessu bara alveg? Það
er önnur og lengri umræða. Ljós
eru notuð neðansjávar í sjókvíum.
Yfirborðsljós eru í lágmarki, nema á
bátum sem þjónusta eldiskvíar.
Mikilvægt er að hefja vinnu við
strandsvæðaskipulag þannig að öll
sjónarmið fái hljómgrunn. Út frá
sjálfbærnisjónarmiðum er e.t.v.
æskilegast að eldiskvíar í Eyjafirði
sé staðsettar austanvert í firðinum.
Þannig munu hafstraumar í ríkari
mæli færa uppleyst næringarefnin
út úr firðinum. Austanvert er einnig
minna þéttbýli og færri yrðu þar vitni
að ljótleikanum! Miðað við stærð
fjarðarins væri sérkennilegt ef ekki
fyndust svæði sem flestir yrðu sáttir
við fyrir sjókvíar. Aðeins þarf um
1% af flatarmáli fjarðarins til að
framleiðslan 20 þús. tonn, svo dæmi
sé tekið. Jafnvel má finna rúmgóð
og hentug svæði í innanverðum
Eyjafirði án þess að það trufli á
nokkurn hátt siglingaleiðir um
fjörðinn.
Heyrst hefur að sjókvíaeldi
muni koma í veg fyrir að hægt yrði
að stunda hvalaskoðun í Eyjafirði.
Á hverju slík skoðun byggir
er erfitt að ráða í. Sumir hafa
einfaldlega neikvæða afstöðu til
laxeldis. Í Noregi og Skotlandi er
blómleg ferðaþjónusta, sem byggir
á hvalaskoðun þrátt fyrir öfluga
fiskeldisstarfsemi þar við strendur.
Í Noregi eru sjókvíar staðsettar á
yfir 800 aðskyldum svæðum og
mjög oft nærri farleiðum stærri
hvalategunda. Afar fáheyrt er að
þessi stóru sjávarspendýr syndi inn
í kvíaþyrpingar eða að einhver vandi
fylgi þessu sambýli.
Smábátasjómenn hafa lýst sig
andvíga sjókvíaeldi í Eyjafirði.
Fullyrt er að laxeldi loki fyrir
þekkt veiðisvæði og fæli fisk í
burtu. Staðreyndin er reyndar sú að
sjókvíaeldi dregur að sér botnfiska
og eykur veiði í nágrenni við
kvíaþyrpingar. Það er vegna þess
að botnfall eykur æti og fjölgar
botndýrum á jaðarsvæðum, s.s.
smákrabba, orma og slöngustjörnur.
Sjómenn í Patreksfirði og Tálknafirði
eru a.m.k. mjög sáttir með laxeldið
þar. Veiði þorsks og ýsu kemur og fer
í takt við starfsemi eldisfyrirtækja.
Á hvíldarári dettur veiðin niður.
Fóðurrestar hafa ekki neikvæð áhrif
á heilnæmi sjávarfangs, enda nota
eldisfyrirtæki eingöngu fóður sem
inniheldur náttúruleg lífræn hráefni
(engin kemísk tilbúin efni).
Laxalúsin
Það er hins vegar full ástæða til að
hafa áhyggur af laxalús – ef laxeldi
Jón Örn Pálsson.
Eyjafjörður er um 58 km langur og 15 km breiður í fjarðarmynni.
Heildarflatarmálið er áætlað 422 km2 (sunnan 66°10 N). Til samanburðar má
nefna að flatarmál Arnarfjarðar á Vestfjörðum er áætlað 343 km2 og rúmmál
hans um 19 km³. Hafrannsóknastofnun hefur metið burðarþol Arnarfjarðar
til fiskeldis 30.000 tonn, þó er fiskeldi aðeins heimilt í hluta af firðinum.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf