Bændablaðið - 02.07.2020, Side 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 2020 41
Pitbull er öflugur og vel búinn
liðléttingur sem hægt er að útfæra
á marga vegu.
Kubota mótor, Linde vökvakerfi,
Dana Spicer öxlar, veltingur
á afturhásingu en ekki lið sem
gerir hann mjög stöðugan.
Við kynnum
nýjan liðlétting!
Austurvegi 69 // 800 Selfoss // 480 0400 // jotunn.is // sala@jotunn.is
Verð frá:4.841.000án vsk.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
TINDAR OG
HNÍFAR
GOTT ÚRVAL
HÚSAEINANGRUN
Íslensk hönnun, framleiðsla og gæði. EPS húsaeinangrun fyrir sökkla, plötur, veggi og þök er CE merkt
og hentar vel þar sem einangrunin þarf að standa af sér mikinn þrýsting og virka sem rakamótstaða.
EPS húsaeinangrun er framleidd í 25 – 200 mm þykkum plötum. Borgarplast framleiðir einnig ýmsar
stærðir og gerðir EPS einangrunarlausna s.s. vatnsbretti, gluggaþynnur og þaklista.
YFIR 50 ÁRA REYNSLA
BORGARPLAST HF.
Húseinangrun og frauðkassar:
Grænásbraut 501, 262 Reykjanesbæ, Sími: 561 2210
Fráveitulausnir og ker:
Völuteig 31, 270 Mosfellsbæ, Sími: 561 2211
borgarplast.is
Bænda
16. júlí
verður leyft í opnum eldiskvíum.
Ekki endilega vegna þess að lúsin
hafi mikil áhrif á villta laxfiska
eða bleikju, heldur vegna þess að
lúsin skaðar eldislaxinn. Í köldum
vetrarsjó er þol laxsins fyrir
lúsasmiti afar lítið. Lúsavörnum
fylgir gríðarlegur kostnaður og
framleiðslutjón. Eina sjálfbæra
og raunhæfa vörnin er að stunda
reglubundna hvíld á öllum Eyjafirði
eða stunda laxeldi í lokuðum
sjókvíum. Í lokuðum eldiskvíum
er mögulegt að fyrirbyggja alfarið
að laxalús skapi vanda. Stjórnvöld
eiga einfaldlega að setja kröfur
og skilyrði um umhverfisvænar
eldisaðferðir.
Í andmælum um sjókvíaeldi í
Eyjafirði hefur verið minnst á að
lúsin muni stórskaða bleikjustofna
jafnvel útrýma þeim. Það er afar
ósennilegt að þetta gangi eftir,
jafnvel þó laxeldið fjölgi lúsalirfum
umtalsvert. Dvalartími bleikju í sjó
er aðeins 6 – 10 vikur, frá apríl/
maí til júní/júlí. Á þeim tíma nær
lúsin ekki er að fullþroskast eða
verða skaðleg bleikju. Þess utan er
bleikjan yfirleitt nærri ósasvæðum
þar sem sjórinn er ekki fullsaltur
og lúsasmit mun minna. Reynslan
erlendis frá, þar sem sjávarhiti er
meiri og þroskahraði lúsa því meiri,
sýnir að bæði bleikja og sjóbirtingur
„hreinsa“ sig af laxalús með því að
synda upp í árósana. Sjóbirtingur
dvelur lengur en bleikja í sjó og
hefur því mun meira náttúrulegt
lúsasmit. Sjóbirtingur er algengur
Eyjafirði og því er fyrirfram ljóst
að umfangsmikið hvíldarlaust
laxeldi í opnum eldiskvíum mun
margfalda lúsasmit sem ógnar
rekstri eldisfyrirtækja sem enn
síður getur haft neikvæð áhrif á
lítinn og viðkvæman laxastofn í
Fnjóská. Það er þó svo heppilegt
hérlendis að vegna sjávarkulda
hafa laxaseiðin venjulega yfirgefið
árnar og strandsvæðin þegar nýsmit
lúsalirfa hefst á sumrin.
Samfélagsleg áhrif
Að lágmarki þarf 4-5 ársverk til
að framleiða 1.000 tonn af laxi og
annað eins við slátrun. Til viðbótar
kemur bein aðkeypt stoðþjónusta;
s.s. kafarar, iðnaðarmann, flutn ingar
og m.fl. Fullvinnsla afurða kallar svo
á enn meiri mannskap. Fiskeldi þarf
á að halda vel menntuðu starfsfólki
af báðum kynjum. Eyjafjörður er
vaxandi matvælaframleiðsusvæði
og ekki verður annað séð en
laxeldi geti verið mikilvægur
þáttur í þeirri uppbyggingu.
Háskólasamfélag á Akureyri
er mjög vaxandi og gæti orðið
gagnkvæmur styrkur þróunarstafi í
framsæknu umhverfisvænu fiskeldi.
Mörg verkefni fyrir nemendur og
viðfangsefni til stærri rannsókna –
í túnfætinum. Þar gæti Háskólinn
á Akureyri tekið ákveðna forustu.
Lengi hafa verið uppi áætlanir
um uppbyggingu á vöruhöfn
á Dysnesi og færa þangað
alla gámaumferð frá Oddeyri.
Hugmyndir er einnig um
uppbyggingu á stóru lífmassaveri
í Eyjafirði fyrir móttöku á
lífrænum úrgangi af Norður-
og Austurlandi. Staðsetning á
Dysnesi gæti verið hentug fyrir
slíka starfsemi. Jafnvel fyrir
Slippinn líka. Uppbygging laxeldis
gæti hjálpað til að undirbyggja
fjárhagslegar forsendur fyrir svo
mikilli framkvæmd. Þar mætti
staðsetja þjónustuhöfn fyrir
laxeldið, laxaslátrurhús og jafnvel
laxavinnslu. Uppsafnað botnfall
frá lokuðum sjókvíum mætti nýta
til metanframleiðslu í lífmassaveri.
Úrgang frá laxeldinu mætti þannig
nýta sem eldsneyti á þjónustubáta
eldisins.
Umhverfisvænt laxeldi gæti
hjálpað til við að styrkja ímynd
svæðissins til hagsbóta fyrir bæði
ferðþjónustu og markaðssetningu
matvæla frá matarkistunni
Eyjafirði. Gríðarleg framþróun
hefur átt sér stað í laxeldi eins og í
öllum öðrum matvælaiðnaði. Saga
fiskeldis er þó víða sorgarsaga
mistaka og þekkingarleysis. En
menn hafa sem betur fer ekki gefist
upp á að læra og bæta sig. Í dag
er laxeldi ein umhverfisvænasta
matvælaframleiðsla sem fyrirfinnst.
Fyrirliggjandi gögn benda til að
hvorki líffræðileg eða vistkerfisleg
rök mæli gegn laxeldi í Eyjafirði.
Málið snýst fremur um útfærslu,
skipulaga og framtíðarýn fyrir
Eyjafjarðarsvæðið. Vona bara að
Eyfirðingar skoði málið vel og
kasti ekki frá sér tækifæri til að
styrkja sjálfbæra auðlindanýtingu
svæðisins og tugmilljarða verð-
mæta sköpun? Ef það veður niður-
staðan þá er það af því bara!
Jón Örn Pálsson
sjálfstætt starfandi ráðgjafi.
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi
Sími 544-4656 | www.mhg.is