Bændablaðið - 02.07.2020, Qupperneq 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 2020 43
hefur verið rakið eru ekki allir
sannfærðir um að rétt sé að skipta
unnvörpum úr því að framleiða
kjúklingakjöt með hraðvaxta
tegundinni Ross 308 og yfir í
Ranger Gold. Umræða meðal
neytenda skiptir þó höfuðmáli
þegar kemur að markaðs
ákvörðunum og nú þegar hafa stórir
notendur og seljendur á kjúklingum
eins og skyndibitakeðjan KFC og
þýska lágvöruverslunarkeðjan
Lidl ákveðið að skipta yfir
í kjúklingakjöt af hægvaxta
kjúklingum. Aðrar stórar keðjur
í Danmörku eins og Coop og
Salling Group, sem rekur m.a.
þekktar keðjur eins og Føtex,
Bilka og Netto, hafa ekki tekið
sömu ákvörðun en halda öllum
möguleikum opnum og vilja sjá
hvort þessi ákvörðun Danpo sé í
raun rétt eða ekki.
Neytendur ráða
Vegna mikils innflutnings á ódýru
kjúklingakjöti til Danmerkur er alls
óvist hvort þessi nýja stefna Danpo
reynist rétt eða ekki. Þegar allt kemur
til alls eru það nefnilega neytendurnir
sem í raun velja hvaða leið verður
farin, enda er oft sagt að þeir velji
leiðirnar með veskjunum sínum.
Danpo er því í raun að veðja á það
hvernig neytendur muni að tveimur
árum liðnum haga sér þegar kemur
að innkaupum á kjúklingakjöti.
Dönsku kjúklingabændurnir vonast
einnig til þess að með þessari aðgerð
geti þarlendir neytendur betur tekið
upplýsta ákvörðun um kjötkaup sín
og stutt þarlenda framleiðslu frekar
en að kaupa innflutt kjöt. Fari svo
að neytendurnir kjósi heldur að
kaupa dýrari kjúkling, með stærra
sótspori en mögulega með betri
dýravelferð, þá liggur fyrir að allar
stórar verslunarkeðjur Danmerkur
muni fylgja stefnu Danpo.
87% með Ross 308
Danir eru umfangsmiklir þegar
kemur að kjúklingaeldi og slátrun
en árleg slátrun þar í landi er um 104
milljónir kjúklinga og þar af voru í
fyrra 87% allra slátraðra kjúklinga
af tegundinni Ross 308. Sé litið til
landsins alls þá eru ekki nema 18 af
um 200 kjúklingabændum sem eru
í dag með Ranger Gold kjúklinga
í framleiðslu. Danpo er eins og
áður segir stærsta fyrirtækið í eldi,
slátrun og vinnslu á kjúklingum og
er með um 50% markaðshlutdeild í
Danmörku. Þá er fyrirtækið einnig
stærst á Norðurlöndunum á þessu
sviði en kjúklingaframleiðendurnir
sem standa að fyrirtækinu eru 70.
Eldi á hraðvöxnum Ross 308 kjúklingum hefur oft verið milli tannanna á
dýraverndarfólki. Þar hefur þó fyrst og fremst verið deilt um eldi í búrum
og þéttleika fugla í eldishúsum sem valdið hefur vandræðum. Ekkert liggur
samt fyrir um að það sem deilt hefur verið um muni lagast við það að skipta
yfir í hægvaxnari fugla af Ranger Gold stofni.
Áhættumat erfðablöndunar og sjálfbærir villtir laxastofnar
Bent hefur verið á að þegar um er
að ræða sterkan laxastofn í veiðiá
eru minni líkur á að eldislax geti
valdið erfðablöndun. Það þarf
því að tryggja að í hverri veiðiá
á eldissvæðum séu sterkir sjálf-
bærir laxastofnar sem er ein mik-
ilvægasta mótvægisaðgerðin til
að hindra eða draga verulega úr
líkum á að erfðablöndun geti átt
sér stað.
Tillögur starfshóps
Á árinu 2017 var gefin út skýrsla
starfshóps um stefnumótun í fisk
eldi en tillögurnar voru grunnur
að þeim breytingum sem voru
gerðar á lögum um fiskeldi sam
þykkt á Alþingi Íslendinga á ár
inu 2019. Stefnumótunarhópurinn
benti á mikilvægi sterkra villtra
laxastofna án þess að kom með til
lögur. Því miður var megináhersla
í þeirri vinnu að tryggja fjárhags
legan ávinning laxeldisfyrirtækja
í meirihlutaeigu erlendra aðila.
Mál er varðar umhverfisvernd
fengu lítið vægi þrátt fyrir að í
stefnumótunarhópnum væru opin
berir fulltrúar m.a. frá umhverfis
og auðlindaráðuneytinu.
Mikilvægt að stjórna veiðiálagi
Vöktun á ástandi laxastofna í veiðiám
á eldissvæðum er mikilvægur hluti
mótvægisaðgerða að því gefnu að
jafnframt verði veiðiálagi stjórnað og
þannig tryggður hæfilega stór hrygn
ingarstofn að hausti. Viðmiðið er því
að í laxveiðiám sé alltaf nægilegur
fjöldi hrygningarfiska að hausti til
að tryggja eðlilega nýliðun og sjálf
bærni.
Vöktunaraðferðir hér á landi
Í nokkrum veiðiám á Íslandi er fylgst
með fjölda laxfiska sem ganga upp í
ána með árvökum og þannig hægt
að fá upplýsingar um stærð hrygn
ingarstofns að hausti. Jafnframt er í
sumum tilvikum fylgst með þéttleika
seiða, en þær rannsóknir geta ekki
staðfest hvort lítill þéttleiki seiða sé
vegna þess að hrygningarstofn hafi
verið of lítill eða aðrar ástæður skýri
slaka nýliðun. Í fjölmörgum veiðiám
eru engar rannsóknir og því ekki til
staðar upplýsingar um stærð hrygn
ingarstofns að hausti og hvort það sé
sjálfbær nýting á stofninum.
Vöktunaraðferðir í Noregi
Samfara uppbyggingu laxeldis í
Noregi hefur vöktun með villtum
laxastofnum verið aukin og eru um
200 veiðiár vaktaðar. Vöktunin er að
því leyti ólík því sem gerist hér á landi
að áhersla er lögð á að meta stofn
stærð að hausti með að telja fiskana í
veiðiánum. Hér er vöktunin færð sem
næst atburði, þ.e.a.s. hrygningunni, og
þannig fást nákvæmar upplýsingar um
stöðu hrygningarstofnsins. Árlega eru
birtar upplýsingar í Noregi um ástand
einstakra laxastofna á vefnum http://
www.vitenskapsradet.no
Hve margir hrygningarfiskar?
Til að tryggja sjálfbæra nýtingu á
laxastofnum á eldissvæðum þarf að
vera í veiðiám ákveðinn fjöldi hrygn
ingarfiska, það krefst m.a. að:
• Það þurfa að liggja fyrir
upplýsingar um hve margir
hrygningarlaxar þurfa að vera
til staðar í veiðiám til að tryggja
sjálfbærni. Það krefst rannsókna
á laxastofnum í veiðiám á
eldissvæðum.
• Með vöktun og veiðistjórnun að
nægilega margir hrygn ingarfiskar
séu í veiðiám að hausti fyrir
hrygningu.
Hver á að greiða?
Það má ljóst vera að eigendur
lítilla veiðiáa hafa takmörkuð
fjárráð til að láta framkvæma
rannsóknir í sínum ám. Jafnframt
yrðu slíkar rannsóknir fyrst og
fremst gerðar vegna uppbyggingar
laxeldis í sjókvíum á svæðinu. Það
er því vart sanngjarnt að eigendur
veiðiáa greiði fyrir rannsóknirnar.
Hér er eðlilegt að Umhverfissjóður
sjókvíaeldis, sem fjármagnaður
er af laxeldisfyrirtækjum, greiði
kostnaðinn. Markmið sjóðsins
er að lágmarka umhverfisáhrif
sjókvíaeldis. Með sjóðnum skal
greiða kostnað við rannsóknir
vegna burðarþolsmats, vöktunar og
annarra verkefna sem stjórn sjóðsins
ákveður.
Valdimar Ingi Gunnarsson
Höfundur er
sjávarútvegsfræðingur og hefur
m.a. unnið við ýmis mál tengd
fiskeldi í rúm þrjátíu ár.
Valdimar Ingi Gunnarsson. Þverá.
FISKNYTJAR&NÁTTÚRA
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Við bjóðum upp á allar stærðir
og gerðir af Ingersoll Rand loftpressum.
Mjög hljóðlátar og einfaldar í viðhaldi.
Bjóðum upp á þjónustusamninga
og leggjum mikla áherslu á að veita
góða viðgerðar- og varahlutaþjónustu.
Gerðu kröfur — hafðu samband við
Gunnar í síma 590 5135 eða sendu línu
á gma@klettur.is og kynntu þér þína
möguleika.
Loftpressur
í hæsta
gæðaflokki
Slökkvirörið frá Scotty FireFighter
inniheldur 15 cm langt kvoðuhylki í
föstu formi.
Einfalt í notkun; tengist við
garðslöngur og stærri slöngur.
Lausnin er umhverfisvæn.
Við stöðugt rennsli á 4,5 börum
dugar hleðslan í 60 mín.
Hentar mjög vel við 2,5 til 5,9 bör.
Fyrir bændur, sumarhús, slökkvilið og
hvern þann sem þarf að hafa góðan
búnað við hendina.
Skutull ehf.
S. 773-3131 & 842-1314