Bændablaðið - 02.07.2020, Side 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 202044
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Hreinni nautgripir þrífast betur
Öll viljum við að gripunum okkar
líði sem best og einn af þáttunum
sem tryggir góða velferð gripa
er hreinleiki þeirra. Blautir og
skítugir gripir þurfa að eyða meiri
orku til að halda á sér hita en þeir
sem hreinir eru og nýta því fóður
verr til vaxtar.
Klesstur feldur nær ekki að
mynda loftrými nær skinninu til
að halda á gripnum hita auk þess
sem þeir eru einnig móttækilegri
gagnvart alls konar smitefnum og
húðsýkingum. En hvernig má bæta
velferð gripanna og auka hreinleika?
Loftræsting
Loftræsting gripahúsa er mjög
mikilvæg, sér í lagi búi menn
með holdagripi sem verða loðnir
yfir vetrartímann. Hitastig í húsa-
kynnum nautgripa ætti að vera
innan við 10 gráður nema hjá smá-
kálfum þar sem gott er að hafa
um 15 stiga hita, enda er vamb-
arstarfsemin ekki farin að fram-
leiða varma af neinu gagni. Lægra
hitastig dregur einnig úr fjölgun
sýkla í umhverfinu og ýtir síður
undir að fjósið verði fjölgunar-
svæði flugna. Stór og góð dreifing
loftinntaka og nægilega öflugar
útsogsviftur (eða útsogsop í nátt-
úrulegu loftsræstikerfi) tryggja
Jóna Þórunn Ragnarsdóttir
ráðunautur Rekstrar- og
umhverfsisviðs hjá RML
jona@rml.is
Mynd 1: Nóg af köldu og þurru lofti inn, gerir flutning hita og raka út
nægilegan. Mynd / Buskap
Mynd 2: Tandurhreinn gripur með nægilegt rými á bitum.
Í gegnum árin hafa bændur verið
vanir að missa eitthvað af kálfum
undan kvígum og hefur það
hugsanlega áhrif á hvort hugsað
sé um kálfadauða sem eiginlegt
vandamál. Landsmeðaltal
dauðfæddra kálfa eða kálfa sem
drepast í fæðingu hér á landi
er 27%. Í löndunum í kringum
okkur eru þessar tölur hins vegar
mun lægri og má þar nefna að
kálfadauði hjá fyrsta kálfs kvígum
í Danmörku er tæp 7%. Þegar
kálfarnir eru hins vegar komnir
í heiminn eru um 2,8% kálfanna
sem drepast fyrstu 180 dagana hér
á landi en t.d. í Danmörku eru þær
tölur hærri, eða 5,5%.
Um miðjan apríl sendi RML út
skoðanakönnun í Huppu til kúabænda
á Íslandi þar sem kannað var viðhorf
og upplifun bænda af kálfadauða
hjá fyrsta kálfs kvígum. Um 30%
kúabænda svöruðu könnuninni og
kunnum við þeim þakkir fyrir góða
þátttöku. Verkefnið er styrkt af
Framleiðnisjóði landbúnaðarins og
er könnunin fyrsti liður verkefnisins.
Kálfadauði
hjá fyrsta kálfs kvígum
Í könnuninni voru bændur meðal
annars beðnir um að svara því hversu
hátt þeir teldu hlutfall dauðfæddra
kálfa vera hjá fyrsta kálfs kvígum á
sínu búi og þeir beðnir um að meta
hversu mikið vandamál kálfadauði
væri á skalanum 0-10, þar sem 0
er ekkert vandamál og 10 er mjög
mikið vandamál.
Mynd 1 sýnir mat bænda á
hlutfalli dauðfæddra kálfa hjá
fyrsta kálfs kvígum á sínu búi ásamt
rauntölum fyrir viðkomandi bú úr
Huppu. Telja 36% þátttakenda að
kálfadauði á þeirra búi sé á bilinu
0-10% og um 33% telja að hann sé
milli 11-20%. Flestir bændur hafa
svarað eftir tilfinningu en sumir hafa
líklegast náð í rauntölur úr Huppu,
sem má finna í frjósemisskýrslunni
undir skýrslum. Þessi könnun
sýnir hins vegar að rauntölur og
tilfinning fara ekki alltaf saman,
14% bænda svöruðu því til að þeir
teldu kálfadauða hjá fyrsta kálfs
kvígum á sínu búi vera á bilinu
21-30% en rauntölur sýna að 29%
búa þátttakenda eru á því bili, það
er því töluverður munur á rauntölum
og tilfinningu.
Það virðist ekki vera mikið
samhengi milli hlutfalls dauðfæddra
kálfa og þess sem bændur telja
vandamál, þar sem aðeins um 8%
bænda finnst kálfadauði hjá fyrsta
kálfs kvígum vera mikið vandamál
á meðan meirihluti bænda telur
kálfadauða hjá fyrsta kálfs kvígum
ekki vera vandamál. Athyglisvert
er að rauntölur úr Huppu sýna að
kálfadauði hjá þátttakendum er frá
0-67% en að aðeins mjög fáum
finnist það vera mikið vandamál.
Af hverju drepast kálfarnir?
Í könnuninni voru bændur spurðir
um það af hverju þeir telja að
kálfarnir fæðist dauðir eða drep-
ist í fæðingu (sjá mynd 2). Hægt
var að merkja við fleiri en einn
valmöguleika en margir nýttu sér
það, enda er frjósemi margþátta
eiginleiki þar sem umhverfisáhrif
eru mikil. Meirihluti, eða um 64%
svarar því til að kálfurinn sé stór
við burð og að það sé líklegasta
orsök þess að kálfurinn fæðist
dauður eða drepist í fæðingu. Þá
segja 30% bænda að kvígurnar
hafi verið fóðraðar rangt fyrir burð
og 18% telja að kvígurnar séu of
feitar við burð.
Áhugavert er að 22% bænda
telja líklegt að um vítamín-, stein-
og snefilefnaskort sé að ræða hjá
kvígum. Meirihluti bænda er með
bætiefnafötur (60%) og saltsteina
(48%). Hægt var að merkja við
fleiri en einn valmöguleika og því
kann að vera að sumir noti bæði
saltsteina og bætiefnafötur. Það er
í eðli kúa að mynda goggunarröð
og getur það því haft áhrif á hvort
allir gripir hafi sama aðgang að
vítamín-, stein- og snefilefnum
þegar það er gefið í bætiefnafötum
og saltsteinum.
Heimsókn til bænda
Gerðar hafa verið viðamiklar
rannsóknir á kálfadauða hjá
íslenskum kúm, þar sem meðal annars
hefur verið horft til lífeðlisfræðilegra
þátta, þær hafa ekki leitt í ljós skýrar
og óyggjandi ástæður kálfadauða. Í
seinni hluta þessa verkefnis ætlar
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins að
heimsækja um 30 bændur, til þess að
skoða aðbúnað og fóðrun kvígna frá
kynþroska að burði ásamt bústjórn,
í þeim tilgangi að leita leiða til að
lækka hlutfall dauðfæddra kálfa hjá
fyrsta kálfs kvígum.
Auður Ingimundardóttir
ráðunautur Búfjárræktar- og
þjónustusviðs hjá RML
audur@rml.is
Kálfadauði hjá fyrsta kálfs kvígum
mun meiri á Íslandi en í Danmörku
Auður Ingimundardóttir
ráðunautur Búfjárræktar- og
þjónustusviðs hjá RML
ditte@rml.is
58
53
23
18
8
1
19
41
47
29
19
6
0
10
20
30
40
50
60
70
0-10 % 11-20% 21-30% 31-40% 41-50% Hærra en
50%
Fj
öl
di
sv
ar
a
Hlutfall dauðfæddra kálfa hjá fyrsta kálfs kvígum
Mat bænda á hlutfalli dauðfæddra kálfa hjá fyrsta
kálfs kvígum á sínu búi
Svör í skoðanakönnun
Rauntölur úr Huppu
Mynd 1. Mat bænda á hlutfalli dauðfæddra kálfa hjá fyrsta kálfs kvígum á sínu búi ásamt rauntölum fyrir viðkomandi
bú úr Huppu.
30%
22%
4% 4%
64%
7%
9%
18%
4% 5%
25%
0
0,1
0,2
0,3
0,4
0,5
0,6
0,7
Ástæður
Mat bænda á ástæðum kálfadauða hjá fyrsta kálfs kvígum
Röng fóðrun fyrir burð
Vítamín, stein- og snefilefnaskortur
Kvígurnar bera of gamlar
Kvígurnar bera of ungar
Stórir kálfar
Lítið eða slælegt eftirlit
Væntanleg burðardagsetn. ókunn
Kvígur of feitar við burð
Kvígur vanþroskaðar við burð
Stress t.d. við flutninga milli hópa
Annað
Mynd 2. Mat bænda á ástæðum kálfadauða hjá fyrsta kálfs kvígum. Hægt var að merkja við fleiri en einn valmöguleika
en meirihluti telur kálfana stóra við burð.