Bændablaðið - 02.07.2020, Síða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 2020 45
flutning raka loftsins út úr fjósinu
og kemur í veg fyrir að gripir
svitni og klepri. Gott er að pæla
í og gera sér grein fyrir virkni
loftræstingarinnar í hverju útihúsi
fyrir sig, t.d. hvaða áhrif það hefur
að opna hurðir og hleypa lofti
inn á öðrum stöðum en í gegnum
loftinntök, minnkar loftræsting í
kringum gripina en verður góð
loftræsting á fóðurgangi sem nýt-
ist engum? Hvar kemur ferska
loftið inn, og hvernig ferðast það
um bygginguna?
Rými og undirlag/undirburður
Aukið rými gripa gerir það að
verkum að þeir geta frekar valið
sér hreint legusvæði. Kálfar eiga
undantekningalaust að hafa legu-
pláss á hálmi eða öðru mjúku og
þurru undirlagi en ekki á köldum
og blautum bitum. Eldri gripir
færast svo ýmist yfir á bita (helst
klædda með mjúku efni til að
mýkja undir þunga skrokka) eða
legubása. Almennt er talið að
hálmstíur séu of vinnu- og að-
fangafrekar fyrir gripi sem komnir
eru yfir hálfsárs-aldurinn, enda éta
þeir mikið og skíta í takt við það.
Rýmisþarfir eru meiri í hálmstíum
en í stíum með bitum og sé þétt
á gripnunum á hálminum þarf að
bera oftar undir og passa vel upp
á gæði hálmsins. Þarna kemur
einnig góð loftræsting til góða því
illa loftræst hálmstía blotnar fyrr
upp. Erfitt getur orðið að þurrka
hálminn að nýju ef hann eitt sinn
verður of blautur. Mikilvægt er að
setja mikinn hálm inn í upphafi og
besta sparnaðarráðið er að nota
það mikið í einu að hann nái ekki
að blotna.
Ef of rúmt er á gripum á bitum
þá vill líka safnast upp skítur á
bitunum. Nauðsynlegt er þó að
rýmið standist reglugerð um vel-
ferð nautgripa svo að allir gripir
geti lagst og geti étið samtímis.
Fóðrun
Fóður gripanna hefur áhrif á
mykjuna. Sé of mikið kjarnfóður
eða mjög auðmelt, blautt gróffóður
gefið verður mjög þunnt á
gripunum. Skíturinn klessist frekar
í halann og á hæklana, auk þess
sem kúadellurnar líta ekki lengur
út eins og sérbakað vínarbrauð
í laginu – með upphækkaðan
kant og hringi. Örlítill hálmur
eða kjarnfóðurblanda með meira
tréni eða torleystari sterkju hefur
stemmandi áhrif á meltinguna og
bætir hreinleika gripanna mjög.
Jöfn fóðrun allan eldistímann er
mikilvægari en að reyna að bata
gripina fyrir slátrun.
Meðhöndlun
Til að halda gripunum almenni-
lega hreinum þarf að venja þá
snemma við að láta klippa sig
og bursta. Betra er að temja 70
kg kálf en 700 kg bola og því
um að gera að umgangast gripina
sem mest fyrst á æviskeiðinu og
venja þá við að láta klippa sig
og nota kúaklóruna óspart. Ekki
stefna eigin lífi og limum í hættu
við að snurfusa gripina heldur
koma sér upp góðri aðstöðu til að
klippa og þannig koma í veg fyrir
að neytendur stefni eigin lífi og
heilsu í hættu vegna kross-smits
við slátrun. Læsigrindur ættu að
vera í stíum þar sem gripir eru
meðhöndlaðir eða nota sérstakan
meðhöndlunarbás til verksins.
Kviður og læri safna mestum
skít og eru einnig mikilvægustu
staðirnir þegar kemur að flán-
ingu. Rúningsklippur (eða alla-
vega rúningskambar og -hnífar)
duga mjög vel á holdagripi sem
koma loðnir á hús að hausti og
svo er hreinlætinu viðhaldið með
reglulegri snyrtingu í gegnum
veturinn. Klippt er með hárunum
í fyrstu umferð og seinna tekin
önnur umferð nær skinninu til að
draga enn úr hættu á því að skítur
festist í feldinum. Nautgripum
finnst almennt gott að láta klóra
sér á mölum og hala svo þeir
taka mjög vel í allskyns kjass og
strokur sem hægt er að nýta sér til
tamningar. Eins er hægt að setja
upp kúaklórur eða einfaldlega
strákústa í stíum svo gripirnir
geti snurfusað sig á kollinum.
Bústjórn
Ef í harðbakkann slær er hægt
að skipuleggja slátrun þannig að
gripirnir séu sendir á þeim árstíma
þegar þægilegast er að halda þeim
hreinum, t.d. seinnipart sumars
þegar hefur verið þurrt og gott
loft í húsunum í lengri tíma, eða
ef uxar eru aldir utandyra þá eru
þeir hreinastir á svipuðum tíma.
Hafa ber þó í huga að á þeim
árstíma er yfirleitt mest framboð
af sláturgripum og getur reynst
erfitt að koma gripum í sláturhús,
auk þess sem eftirspurn eftir
nautakjöti fer dvínandi þegar líður
á haustið og þar með lækkar oft
afurðastöðva verðið.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Opnar stöðvar
Stöðvar í húsi
Stöðvar í gám
Aukabúnaður eins og sjálfvirkur
skiptirofi og fleira
Öflug og góð þjónusta
Gerðu kröfur — hafðu samband við
Karl í síma 590 5125 eða sendu línu
á kg@klettur.is og kynntu þér þína
möguleika.
Allar stærðir
af CAT raf-
stöðvum:
Gagnheiði 35 // 800 Selfossi // 480 0400 // af lvelar. is // sala@aflvelar. is // sala@jotunn.is
Við fögnum því að Aflvélar eru komnir með umboð
fyrir Valtra dráttarvélar og Goes fjórhjól.
Af því tilefni ætlum við að gefa dráttarvélaskráð
Goes fjórhjól með völdum Valtra dráttarvélum út júlí.
Vélar í boði:
Valtra N134A
m/tækjum
Valtra N114EH5
m/tækjum
Valtra N154EA
m/tækjum
Valtra T234D
m/frambúnaði
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ALTERNATORAR í flestar
gerðir dráttarvéla
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Mynd 3: Rakstur gripanna í meðhöndlunarbás eykur vellíðan þeirra og át auk
þess sem minni skítur festist í stuttklipptu hári en loðnu. Mynd / Norsk landbruk
skogur.is/tjalda
Velkomin í þjóðskógana í sumar!