Bændablaðið - 02.07.2020, Qupperneq 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 2020 55
Mat á umhverfisáhrifum
Álit Skipulagsstofnunar
Breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum sam-
kvæmt lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun,
Borgartúni 7b, Reykjavík. Álitið og matsskýrslu Vegagerðarinnar er
einnig að finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is.
Allir sem unna sögu
Flóans og flóamanna
geta farið að hlakka til
haustsins því fyrstu tvær
bækurnar í væntanlegri
Flóamannabók, þar
sem fjallað er um
Hraungerðishrepp, eru á
leiðinni í prentun.
„Bækurnar eru skrifaðar
af Jóni M. Ívarssyni,
sagnfræðingi og
lesnar yfir af þeim
frændum Svavari Sigmundssyni
og Guðmundi Stefánssyni. Þeir
sem gerast heiðursáskrifendur fá
nöfn sín birt á heiðursnafnalista í
bókinni. Þeir og jafnframt hinir sem
gerast áskrifendur fá bókina á 20
þúsund krónur, sem er kosta boð,“
segir Guðni Ágústsson um
væntanlega út-
gáfu bókanna. „Í
bókunum er rakin
saga Flóans, fólksins
og bæjanna í máli og
myndum. Myndirnar
eru yfir tvö þúsund
talsins og margar
fágætar. Bækurnar
eru einstakar
upplýsingabækur
og verða lesnar
upp til agna. Ég bið
væntanlega kaupendur að fylla
út listann hér til hliðar og mynda
hann svo eða skanna og senda á
sigmstef@gmail.com. Heimilisfang
Sigmundar er Logafold 163,
112 Reykjavík, kjósi fólk að nota
þjónustu Póstsins. Hann er með
s. 898-6476,“ segir Guðni.
Heiðuráskrift og/eða áskrift
Flóamannabók – Byggðasaga Flóahrepps
Ég undirrituð / undirritaður panta hér með eitt eintak af fyrstu tveimur
bókum Flóamannabókar – Byggðasögu Flóahrepps, þar sem fjallað er um
Hraungerðishrepp. Nafn einstaklings eða fyrirtækis sem tiltekið er hér að
neðan verður skráð í heiðursáskriftalista fremst í Flóamannabók en hjón og
sambúðafólk geta skráð nöfn sín saman og fá eitt eintak af hvorri bók.
Verð bókanna er kr. 20.000 sem greiðist eigi síðar en 1. september 2020.
Reikningur verður sendur áskrifendum í heimabanka eða pósti ef óskað er.
Bækurnar verða afhentar við útgáfu sem áætluð er fyrir jól 2020.
Nafn:
Nafn/ nöfn eða heiti sem skrá skal á heiðursnafnalistann:
Jafnframt geta einstaklingar og gerst áskrifendur og fá bækurnar á sama verði
Kennitala greiðanda:
Heimilisfang:
Símanúmer:
Tölvupóstfang:
Óska eftir reikningi í pósti __ Heiðursáskrift __
Óska eftir reikningi í heimabanka __ Áskrift __
Flóamannabók er jólabókin í ár
Ef þú vilt bregða
þér af bæ…
Fyrir okkur öll
Félagsmönnum í Bændasamtökum Íslands
býðst að leigja orlofsíbúð í Kópavogi til lengri
eða skemmri tíma allt árið um kring.
Íbúðin er í fjölbýlishúsi í
Þorrasölum 13-15 og rúmar
auðveldlega fjóra gesti.
Í henni eru tvö svefnherbergi,
rúmgóð stofa sem er
sambyggð eldhúsi, bað- og
þvottaherbergi og svalir.
Stutt er í alla þjónustu,
m.a. sundlaug, golfvöll og
fjölbreyttar verslanir.
Nánari upplýsingar um
íbúðina er að finna á bondi.is.
Aðild að Bændasamtökunum borgar sig
Bókanir á Þorrasölum fara í gegnum Orlofsvef BÍ á vefslóðinni
orlof.is/bondi
Landbúnaðarháskóli Íslands:
Metaðsókn í landslagsarkitektúr og lífræna ræktun matjurta
Mikill fjöldi umsókna hefur
borist Landbúnaðarháskóla
Íslands bæði í háskólanám
og starfsmenntanám skólans.
Aðsóknin í grunnám (BS) við
skólann jókst um 51,1% á milli
ára.
Aukningin er hlutfallslega
langmest í BS-nám í landslags-
arkitektúr, þar nemur aukningin
240% á milli ára, fjölgun umsókna
í garðyrkjunám á Reykjum nam
45% og umsóknum í búvísindanám
fjölgaði um 40%.
Við skólann er einnig boðið
upp á framhaldsnám til meistara-
og doktorsgráðu. Á meistarastigi
er boðið einstaklingsmiðað rann-
sóknanám og starfsmiðað meistara-
nám í skipulagsfræði. Í skipulags-
fræði er mikil aukning frá því í
fyrra en 18 eru skráðir til náms
á fyrsta ári í haust, en til saman-
burðar voru sjö nemendur árið áður.
Nemendum í doktorsnámi hefur
fjölgað á undanförnu ári og hafa
aldrei verið fleiri en nú. Þá vörðu
tveir nemendur doktorsritgerðir
sínar nú í júnímánuði.
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir,
rektor Landbúnaðarháskóla Íslands,
segir það mikið gleðiefni að sjá
hversu mikinn áhuga ungt fólk sýnir
námi í Landbúnaðarháskóla Íslands
og hversu dreifing umsókna er mikil.
„Það er gaman að sjá aukinn áhuga
á búvísindanámi, en þar hefur orðið
aukning um 40% milli ára. Mikilvægt
er að fjölga vísindamönnum á breiðu
sviði búvísinda, en þar hefur skort
á nýliðun á undanförnum árum.
Þá er greinilegt af umsóknum til
brautar náttúru- og umhverfisfræða
að áframhaldandi áhugi er á
sjálfbærri þróun og jafnvægi
verndunar og nýtingar. Þá gleður
það mig sérstaklega að sjá
þessa miklu fjölgun umsókna í
starfsmenntanámið okkar, bæði á
Hvanneyri og á Reykjum. Aldrei
hafa fleiri sótt um að komast að í
garðyrkjunámi á Reykjum og færri
komast að en vilja í búfræði.
Það er því bjart fram undan hjá
Landbúnaðarháskóla Íslands og ljóst
að öflugt starf, spennandi námskrár
og markvisst kynningarstarf skólans
er að skila góðum árangri.“
Landbúnaðarháskóli Íslands býr
við þá sérstöðu að bjóða bæði upp
á háskólanám og starfsmenntanám
á framhaldsskólastigi. Aðsókn í
starfsmenntanám skólans sló öll
fyrri met í vor með samtals 280
umsóknum.
Má þar sérstaklega nefna góða
aðsókn í garðyrkjunám á Reykjum
þar sem 136 umsóknir bárust og
hafa þær aldrei verið jafnmargar
í sögu skólans. Flestir sækja
um í lífræna ræktun matjurta en
þar sóttu 45 nemendur um nám.
Aðsókn er einnig góð í ylrækt,
með 26 umsóknir, og 10 í garð- og
skógarplöntuframleiðslu. /VH