Morgunblaðið - 01.02.2020, Qupperneq 1
„Við tölum meðal annars um vaxandi
gyðingahatur á okkar dögum og
skilaboð mín eru skýr: Lítum aldrei
niður á aðra manneskju! Eins og við
vitum þá myrtu nasistar ekki bara
gyðinga, heldur líka fatlaða, sam-
kynhneigða, pólitíska andstæðinga
og fleiri. Það er svo mikilvægt að
halda þessari sögu á lofti. Ofsókn-
irnar byrja á gyðingum en enda ekki
þar,“ segir sænsk-pólski gyðing-
urinn Anette Stahl en hún er óþreyt-
andi að segja sögu ömmu sinnar,
Jozefu Stahl, sem lifði helförina af
en missti alla fjölskyldu sína.
„Hvað ef nasistar hefðu lokið hel-
förinni og unnið stríðið? Hefði þá
orðið friður í heiminum? Nei, þeir
hefðu ráðist á einhverja aðra. Þeir
töldu að þeir væru yfir aðra hafnir
og slíkt hugarfar megum við aldrei
líða. Enginn er öðrum æðri í þessum
heimi. Það vil ég kenna börnunum í
dag. Gyðingahatur og hatur almennt
hefur færst í vöxt á undanförnum ár-
um og maður verður reglulega vitni
að ótrúlegri vanþekkingu og for-
dómum fólks,“ bætir Anette við en
ítarlega er rætt við hana í Sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins.
Lítum ekki niður á aðra!
Anette Stahl segir sögu ömmu sinnar sem lifði af helförina
Morgunblaðið/RAX
Boðskapur Anette Stahl sagði sögu
ömmu sinnar hérlendis á dögunum.
L A U G A R D A G U R 1. F E B R Ú A R 2 0 2 0
Stofnað 1913 27. tölublað 108. árgangur
ÓLÍKAR OG
FJÖLBREYTTAR
SÝNINGAR
HUGMYNDIN
KVIKNAÐI Í
BÚSTAÐNUM
FLYTUR INN KAMPAVÍN 14KVEÐUR LISTASAFNIÐ 42
Ólíkar tilfinningar bærast í brjósti Breta nú
þegar útganga landsins úr Evrópusambandinu
er orðin að veruleika. Stuðningsmenn brexit
fögnuðu á götum Lundúna og fleiri borga í gær-
kvöldi en hópar sem vildu áframhaldandi veru
Breta í ESB boðuðu bænavökur í Skotlandi.
Boris Johnson forsætisráðherra hefur lagt
áherslu á sameiningu þjóðarinnar eftir þing-
kosningarnar í desember og forðaðist hátíðar-
höld í gær.
Bretar hafa verið í Evrópusambandinu og áð-
ur forvera þess Efnahagsbandalagi Evrópu, allt
frá árinu 1973 eða í tæplega hálfa öld. Meiri-
hluti breskra kjósenda samþykkti að ganga úr
sambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram
fór sumarið 2016 en síðan hafa verið harðar
deilur í breska þinginu og meðal þjóðarinnar
um framkvæmdina.
Sækjast eftir fríverslunarsamningum
Nú er tekið við aðlögunartímabil sem gildir
til næstu áramóta þar sem Bretland verður
áfram hluti af innri markaði ESB og tolla-
bandalagi þess. Tíminn verður notaður til þess
að reyna að semja um viðskiptasamning. Bresk
stjórnvöld hyggjast einnig nota tímann til þess
að semja um fríverslun við önnur ríki. Íslensk
stjórnvöld hafa samið við Breta um að ekkert
breytist varðandi tengsl ríkjanna fram að ára-
mótum og er ætlunin að fyrir þann tíma verði
samið um framtíðartengsl landanna. „Bretland
hefur verið einn okkar mikilvægasti markaður
fyrir sjávarafurðir og við leggjum áherslu á að
enn betri viðskiptakjör náist með fríverslunar-
samningi milli þjóðanna,“ segir Heiðrún Lind
Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka
fyrirtækja í sjávarútvegi.
Fagnað á götum Lundúna
Nær hálfrar aldar veru Bretlands í Evrópusambandinu lokið Blendnar
tilfinningar meðal íbúanna Boris Johnson leggur áherslu á samstöðu
AFP
Brexit Stuðningsmenn útgöngu Bretlands halda breska fánanum á lofti á hátíð sem Brexit-flokkurinn stóð fyrir á Þinghústorginu í Lundúnum.
MBrexit »10, 19, 22 & Reykjavíkurbréf
Björn Leifsson, stofnandi og einn
eigenda World Class á Íslandi, segir
lág æfingagjöld eiga þátt í vaxandi
vinsældum keðjunnar síðustu árin.
Veltan hafi aukist um 20% árið
2018 og um 10% í fyrra og það sem
af er ári. Fyrir vikið séu korthaf-
arnir orðnir 49 þúsund talsins.
Björn og félagar hafa mörg járn í
eldinum. Tvær nýjar stöðvar munu
bætast við á þessu ári, í Vatnsmýri
og á Hellu, og til skoðunar er að
byggja 18. stöðina í Keflavík.
Engin dæmi eru um að líkams-
ræktarstöðvar hafi átt viðlíka vel-
gengni að fagna á Íslandi síðan þær
fyrstu voru stofnaðar á 8. áratugn-
um. Rekstur þeirra var gjarnan
þungur og endaði ósjaldan í gjald-
þroti. World Class á Íslandi hefur
frá stofnun 1985 hins vegar siglt í
gegnum nokkrar niðursveiflur á Ís-
landi og síðustu ár skilað hagnaði,
til dæmis hálfum milljarði króna ár-
ið 2018. baldura@mbl.is »18
Morgunblaðið/Hari
Í Laugum Björn Leifsson hefur síðustu
áratugi byggt upp World Class-veldið.
World Class með 49 þúsund korthafa
Umhverfisstofnun hefur óskað eftir fundi
með sérfræðingum Veðurstofu Íslands og
Náttúrufræðistofnunar Íslands til ræða við-
brögð við gliðnun stóru sprungunnar í Eld-
ey. Í ljós kom við mælingu í fyrradag að hún
hafði breikkað um tæpa 3 sentímetra frá því
síðast var mælt, fyrir ári, en sprungan hafði
þá ekki hreyfst frá því byrjað var að mæla
fyrir um fimm árum.
Eldey er friðuð og í umsjá Umhverfis-
stofnunar. René Biasone, sérfræðingur þar,
segir að stofnunin telji rétt að athuga málið
betur. Ef kletturinn hrynur niður í sjó fara
með honum mörg hundruð súluhreiður en
fuglinn er friðaður. Í Eldey er ásamt Vest-
mannaeyjum stærsta súluvarp landsins og
báðar byggðirnar taldar mikilvægar á al-
þjóðavísu. René segir að skoða þurfi við-
brögð við því ef kletturinn hrynur og leita
skýringa á gliðnun sprungunnar. Bent hefur
verið á að miklar jarðhræringar hafi verið á
Reykjaneshrygg í desember.
Erfitt er að fylgjast með sprungunni því
ekki má trufla súluvarpið. Von er á súlunni í
varpið í næstu viku og hún yfirgefur ekki
eyjuna fyrr en í október. René veltir því fyrir
sér hvort Veðurstofan sjái ástæðu til að setja
upp sjálfvirkan mæli til að fylgjast betur með
þróuninni. »2
Morgunblaðið/RAX
Eldey Sprungan sést vel úr lofti og af sjó.
Ræða
ástæðu
gliðnunar
Sprungan í Eldey
breikkað um 3 cm