Morgunblaðið - 01.02.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
Í fyrradag var á Alþingi ræddfurðutillaga til þingsályktunar
„um Alþingi sem fjölskylduvænan
vinnustað“. Tillagan gengur út á
að þingið feli forseta þings að
skipa starfshóp sem
skili tillögum, eigi
síðar en í árslok,
um að gera þing-
störfin fjöl-
skylduvæn.
Einn þeirraþingmanna sem tóku til máls
furðaði sig á tillögunni og reyndi
að útskýra fyrir kollegum sínum
hvert eðli starfsins væri: „Ég velti
fyrir mér hvað er átt við með fjöl-
skylduvænum vinnustað. Í mínum
huga er þetta hús ekki vinnustað-
urinn. Vinnustaðurinn er kjör-
dæmið eða landið allt. Það er
minn vinnustaður. Og ég lít ekki á
þingmennsku sem starf í eig-
inlegum skilningi. Við erum bara
hluti af löggjafarvaldinu,“ sagði
Brynjar Níelsson.
Hann nefndi einnig að hannhefði „sjálfur aldrei unnið
jafn fjölskylduvænt starf, ef starf
skyldi kalla, á ævinni“, og benti á
að þó að stundum væri unnið lengi
fram eftir þá væru það undan-
tekningar og þingmennskunni
fylgdi líka mikill sveigjanleiki.
Hann lauk svo ræðu sinni á þvíað segja þetta í takt við ann-
að í samfélaginu: „Öllum finnst
þeir hafa svo mikið að gera. Allir
þreyttir. Allir kulnaðir. Allir ein-
hvern veginn að niðurlotum komn-
ir, samt held ég að menn hafi
aldrei í Íslandssögunni unnið jafn
lítið.“
Ekki er ólíklegt að mikið sé tilí þessu og þingmenn mættu í
það minnsta gjarnan verja tím-
anum í eitthvað þarfara en að
barma sér undan vinnuálagi.
Brynjar Níelsson
„Ef starf
skyldi kalla“
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Vegagerðin mun vinna í hönnun og
undirbúningi tvöföldunar Reykja-
nesbrautar í Straumsvík og ná-
grenni. Fjármögnun er núna á öðru
tímabili samgönguáætlunar, þ.e. ár-
in 2025-2029, þannig að það þarf að
sjá fjármögnun fyrr ef flýta á verk-
inu. Þetta segir G. Pétur Matthías-
son, upplýsingafulltrúi Vegagerðar-
innar. Sigurður Ingi Jóhannsson
samgönguráðherra hefur boðað að
framkvæmdunum verði flýtt.
Skipulags- og byggingaráð Hafn-
arfjarðarbæjar samþykkti á fundi í
vikunni að hefja vinnu við breytingar
á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna
tvöföldunar Reykjanesbrautar á nú-
verandi vegstæði, frá Krýsuvíkur-
vegi að mörkum Sveitarfélagsins
Voga, í stað þess að færa brautina
fjær Álverinu eins og aðalskipulagið
gerir ráð fyrir. Breytingarferli að-
alskipulagsins mun væntanlega taka
marga mánuði. „Þetta er mjög stórt
skref og það er mjög mikilvægt að
þessi kafli klárist,“ sagði Rósa Guð-
bjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnar-
firði, í samtali við mbl.is. Vegagerðin
og verkfræðistofan Mannvit lögðu til
að tvöföldun Reykjanesbrautar við
Álverið yrði í núverandi legu vegar-
ins. Sá kostur yrði valinn til frekari
úrvinnslu enda ódýrastur.
sisi@mbl.is
Vegagerðin undirbýr tvöföldun
Legu Reykjanesbrautar í Straumsvík
breytt í aðalskipulagi Hafnarfjarðar
Morgunblaðið/Ómar
Straumsvík Reykjanesbrautin við
Álverið verður áfram á sama stað.
„Ljóst er á tímum loftslagsbreytinga
að ekki er í boði að halda áfram að
setja meira fjármagn í framkvæmdir
sem skapa aukið rými fyrir bíla-
umferð þar sem þær framkvæmdir
munu bæði skapa aukna bílaumferð
og auka losun á CO2 frá sam-
göngum.“
Þetta segir m.a. í bókun fulltrúa
meirihlutaflokkanna í skipulags- og
samgönguráði Reykjavíkur.
Á fundinum var lögð fram að nýju
umsókn Vegagerðarinnar um fram-
kvæmdaleyfi vegna gerðar fráreinar
í akstursstefnu til austurs og breikk-
unar rampa til suðurs á Kringlumýr-
arbraut ásamt breytingu á aksturs-
leið inn á rampann frá norður-
akbraut Bústaðavegar og setja ný
umferðarljós á rampann.
Þessar framkvæmdir voru vel á
veg komnar þegar þær voru stöðv-
aðar í ágúst í fyrra, m.a. vegna þess
að þær voru ekki kynntar fyrir íbú-
um í nágrenninu áður en ráðist var í
þær. Var þetta niðurstaða úrskurð-
arnefndar umhverfis- og auðlinda-
mála eftir kæru íbúanna.
„Innan fáeinna ára verða umferð-
artafirnar á Bústaðavegi orðnar jafn
langar og þær voru fyrir fram-
kvæmdina og því er ekki um lang-
tímalausn að ræða,“ segir í bókun
meirihlutans. Í kjölfarið á þessu máli
hafi verklagi við útgáfu fram-
kvæmdaleyfis verið breytt hjá
skipulagsfulltrúa.
Ráðið samþykkti að gefa út fram-
kvæmdaleyfi að nýju með vísan í
umsögn skipulagsfulltrúa. „Báðar
göturnar, Bústaðavegur og Kringlu-
mýrarbraut, eru skilgreindar sem
stofnbrautir og eru mikilvægar leið-
ir í samgöngukerfi borgarinnar. Það
samræmist markmiðum aðal-
skipulagsins að bæta aðstæður við
þessar brautir,“ segir þar m.a.
sisi@mbl.is
Fé ekki veitt til að
auka rými fyrir bíla
Leyfi veitt á ný
vegna framkvæmda
á Bústaðavegi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bústaðavegur Framkvæmdir voru
vel á veg komnar í fyrrahaust.
ÚTSALA
afsláttur af völdum
ljósum.
Allt að
70%