Morgunblaðið - 01.02.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Fyrir dyrum standa breytingar á
skipulagi Kvosarinnar í miðbænum.
Þær fela meðal annars í sér að bíla-
stæði sunnan Tollhússins verða af-
lögð og í þeirra stað kemur útisvæði
þar sem fólk getur sólað sig á úti-
vistardögum, í skjóli fyrir norðan-
áttinni. Þarna verður komið fyrir
bekkjum og gróðri.
Borgarráð hefur samþykkt að
auglýsa tillögu að breytingu á deili-
skipulagi Kvosarinnar. Heild-
arverkið felst í endurgerð Tryggva-
götu frá Steinbryggju að Grófinni.
Einnig á að endurgera Naustin frá
Tryggvagötu að Geirsgötu. Útlit
götunnar verður með svipuðum
hætti og sjá má á þeim hluta
Tryggvagötu sem nú þegar hefur
verið endurnýjaður.
Allt yfirborð götu og gangstétta
verður endurnýjað. Gönguleiðir
verða hellulagðar og gatnamót
verða steinlögð og hækkuð upp á
sömu hæð og gangstéttirnar. Snjó-
bræðsla verður í göngusvæðinu.
Áfangaskipting framkvæmda við
endurgerð Tryggvagötu liggur ekki
fyrir og því heldur ekki tímaáætlun,
að sögn Jóns Halldórs Jónassonar,
upplýsingarfulltrúa hjá Reykjavík-
urborg. Þessa dagana sé verið að
skoða áfangaskiptingu sem valdi
minnstri truflun fyrir umhverfið og
verður hún kynnt við fyrsta tæki-
færi.
„Við munum eiga samtal við
rekstraraðila og aðra sem hags-
muna eiga að gæta á svæðinu. Leit-
ast verður við að skipta verkinu upp
í áfanga þannig að sem minnst rösk-
un verði á aðgengi að húsum á
framkvæmdatíma,“ segir Jón Hall-
dór.
Talsverðar umræður urðu um
þessa tillögu í borgarráði. Fulltrúar
meirihlutans fögnuðu henni í bókun
og sögðu tillöguna miða að því „að
gera götuna fallegri og mann-
vænni“. Breytingin feli meðal ann-
ars í sér að fallegt og nokkuð stórt
torg verði til við suðurhlið Tollhúss-
ins undir hinu magnaða mósaíkverki
Gerðar Helgadóttur. Svæðið sé
bæði sólríkt og skjólsælt og geti
orðið segull fyrir mannlíf.
Fulltrúar Miðflokksins og Flokks
fólksins voru ekki jafn hrifnir.
„Enn á ný er ráðist að fjöl-
skyldubílnum með því að fækka
bílastæðum í miðbæ Reykjavíkur.
Afleggja á í þessu verkefni um 50
bílastæði. Verið er að breyta
Tryggvagötu frá Lækjargötu að
Gróf í einstefnugötu,“ bókaði Vigdís
Hauksdóttir, Miðflokki.
„Flokkur fólksins lýsir furðu sinni
á að í nýju skipulagi við Tryggva-
götu á að þurrka út 40 til 50 bíla-
stæði og með því skerða aðgengi al-
mennings að þeim stofnunum og
öðrum þjónustuaðilum sem eru við
götuna, þá sérstaklega eldri borg-
ara,“ bókaði Kolbrún Bald-
ursdóttur, Flokki fólksins.
Í þessu sambandi bentu meiri-
hlutaflokkarnir á að stór bílakjallari
væri á svæðinu við hliðina.
Á allra síðustu árum hefur verið
unnið að endurnýjun Tryggvagötu,
frá Lækjargötu og Steinbryggju. Þá
hefur Bæjartorgið verið endurnýjað
frá grunni, en þar stendur hinn
sögufræði pylsuvagn Bæjarins
bestu. Loks er þess að geta að mikil
uppbygging hefur verið á Hafn-
artorgi þar sem nýjar göngugötur
setja sinn svip á Kvosina.
Morgunblaðið/sisi
Tollhúsið Bílastæðin fyrir sunnan húsið munu víkja fyrir gróðri og bekkjum. Þarna verður sannkallað sólartorg á sumrin. Mósaíkverk Gerðar Helgadóttur setur mikinn svip á umhverfið.
Sólartorg sunnan Tollhússins
Morgunblaðið/Eggert
Bæjartorg Þarna hafa Bæjarins bestu pylsur fengið samastað til framtíðar.
Tryggvagatan endurgerð frá Steinbryggju að Grófinni Tugir bílastæða víkja fyrir gróðri
VERÐ FRÁ 189.900 KR.
ÁMANNM.V. TVO FULLORÐNA Í TVÍBÝLI
ÚRVAL LÚXUS GISTINGA Í BOÐI
PORTÚGAL | 5. - 12. MAÍ
NÁNAR Á UU.IS | INFO@UU.IS | SÍMA 585 4000
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Bretland hefur verið einn okkar mik-
ilvægasti markaður fyrir sjávarafurð-
ir og við leggjum áherslu á að enn
betri viðskiptakjör náist með fríversl-
unarsamningi milli þjóðanna,“ segir
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í
sjávarútvegi. Hún segir að útganga
Breta úr Evrópusambandinu ætti
ekki að hafa teljandi áhrif á útflutning
héðan á næstu mánuðum, en aðlög-
unartími er út þetta ár.
„Ég tel að búið sé að leysa úr þeim
málum sem voru
helstu áhættu-
þættir,“ segir
Heiðrún Lind.
Hún nefnir að
tollamál verði með
sambærilegum
hætti og verið hef-
ur og að heilbrigð-
iskröfur verði
óbreyttar þannig
að Ísland verði
ekki flokkað sem þriðja ríki þannig að
gefa þyrfti út heilbrigðisvottorð á
hvern einasta gám sem færi úr landi.
Sama eigi við um umskipun í Bret-
landi vegna flutnings til landa innan
Evrópusambandsins. Í því tilviki hafi
Bretar sjálfir bent á að einhverjar taf-
ir geti orðið á flutningum yfir Ermar-
sund vegna skriffinnsku. Íslenskar
vörur geti lent í töfum eins og vörur
frá öðrum. Loks nefndi hún að Bret-
land kæmi nú inn sem nýtt strandríki
í viðræðum um deilistofna, en engir
samningar eru í gildi um stjórnun
veiða á þeim tegundum.
Vægið hefur minnkað
Bretland hefur lengi verið stærsta
viðskiptaþjóð Íslendinga með sjávar-
afurðir, en þó hefur vægi þess mark-
aðar minnkað á undanförnum árum.
Á fyrsta áratug þessarar aldar var að
jafnaði um fjórðungur alls sjávar-
fangs fluttur út til Bretlands, miðað
við verðmæti.
Árið 2018 nam hlutdeild Bretlands
rúmum 15% og hefur hún ekki verið
minni á þessari öld. Á sama tímabili
hafa aðrir markaðir verið að sækja í
sig veðrið og ber þar hæst Frakkland,
Bandaríkin og Kína, samkvæmt upp-
lýsingum frá SFS.
Áhersla á fríverslun
Mikilvægur mark-
aður Leyst úr
helstu áhættuþáttum
Heiðrún Lind
Marteinsdóttir