Morgunblaðið - 01.02.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
ÚTSÖLU-
SPRENGJA
SEINNI LEIKUR
HAFINN
Njótið
að eig
nast
gæða
vöru
á eins
töku
verði
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Gil Bret úlpa
56.980 kr.
17.094 kr.
Einnig til í bláu
50-70%
Valfrelsi í
heilbrigðiskerfinu
—Ásdís Halla á opnum fundi
í Valhöll um heilbrigðismál
Ásdís Halla Bragadóttir, rithöfundur og fyrrverandi bæjar-
stjóri í Garðabæ, verður gestur á opnum fundi Verkalýðsráðs
Sjálfstæðisflokksins ogMálfundafélagsins Vilja sem fram fer í
Valhöll þriðjudaginn 11. febrúar kl. 18:00.
Erindi Ásdísar Höllu fjallar um valfrelsi í heilbrigðiskerfinu og
muninn á einkarekstri og ríkisrekstri.
Allir velkomnir!
VERKALÝÐSRÁÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
MÁLFUNDAFÉLAGIÐ VILJINN
ÚR BÆJARLÍFINU
Björn Björnsson
Sauðárkróki
Hér í Skagafirði gengur nú yfir
hin árlega þorrablótatíð, þar sem
borð svigna í hverju samkomuhúsi
undan þungum trogum með hvers
kyns góðmeti, allt í anda siða og
hefða. Enginn hefur þó svo vitað sé
stigið svo ógætilega fram að bjóða
upp á veganblót, enda hrein ögrun
við Þorra konung og gæti haft afleið-
ingar þótt síðar yrði, enda Þorri
óvæginn ef honum finnst sér mis-
boðið á einhvern hátt.
Einhverjir hófu leik þegar á
bóndadegi en síðan rekur hver við-
burðurinn annan allt fram til góu,
þar sem nefndir hvers blóts draga
samsveitunga sína sundur og saman
í logandi skensi og gríni þar sem fáu
er eirt en hláturtaugar gesta kitl-
aðar til hins ýtrasta, en margir telja
sig þó verulega hlunnfarna er þeirra
er í engu getið.
Að sögn skrifstofu Vinnumála-
stofnunar er atvinnulíf í Skagafirði á
svipuðu róli og á sama tíma á síðast-
liðnu ári, eitthvert atvinnuleysi en
ekki svo að horfi til vandræða, en
ljóst að með hækkandi sól og bjart-
ari dögum munu framkvæmdir taka
við sér, enda mörg og nokkuð stór
verkefni sem bíða betri tíðar.
Þannig segir Ólafur Friðriksson,
framkvæmdastjóri Friðriks Jóns-
sonar ehf., að verkefnastaða sé mjög
góð, fyrirtækið er að klára hús
Byggðastofnunar, en skiladagur er í
byrjun maí, og verkið nokkuð á und-
an áætlun, en nýverið var svo gengið
frá samningi um frágang umhverfis
og lóðar hússins. Segir Ólafur að
næsta verkefni verði að ljúka fram-
kvæmdum við gamla Barnaskólann
við Freyjugötu, sem fyrirtækið
keypti og er að breyta í íbúðar-
húsnæði, en þar munu verða á annan
tug íbúða sem munu koma til af-
hendingar á þessu ári. Einnig er
gert ráð fyrir byggingu þriggja par-
húsa, tveggja við austanverða
Freyjugötu og eins við Ránarstíg á
lóð gamla skólans.
Þá er í gangi samvinnuverkefni
með Vinnuvélum Símonar við sorp-
móttökusvæði í Varmahlíð auk
byggingar nokkurra íbúðarhúsa og
annarra smærri verkefna. Hjá fyrir-
tækinu eru nú tuttugu fastir starfs-
menn, en verður fjölgað er dag
lengir
Dagana 2. til 9. febrúar fagnar
Skíðadeild Tindastóls 20 ára afmæli
Avis-skíðasvæðisins í Tindastóli,
meðal annars með opnum nýrrar
skíðalyftu á opnunardaginn 2. febr-
úar að viðstöddum góðum gestum,
og Tindastólsgöngunni sem er í
umsjá göngugarpanna Birgis Gunn-
arssonar og Sævars og Gunnars
Birgissona. Þá eru skíðadagatilboð á
öllum veitingastöðum og í sundlaug-
um héraðsins og Fjallakofinn verður
með kynningu á skíðabúnaði í Skag-
firðingabúð dagana 6. og 7. febrúar
og ættu allir að finna sér eitthvað við
sitt hæfi enda Avis-svæðið marg-
frægt fyrir fjölbreyttar brekkur,
bæði léttar og mjög krefjandi.
Hjá Steypustöð Skagafjarðar
er stærsta verkefnið þessa dagana
lagning jarðstrengs frá háspennu-
virkinu í Varmahlíð og til Sauðár-
króks. Að sögn Ásmundar Pálma-
sonar framkvæmdastjóra var stefnt
að því að hefja verkið fyrir hátíðar,
en hver bútur strengsins sem lagður
er á þessari rúmlega 20 kílómetra
löngu leið krefst úrkomulausrar
viku. Erfitt tíðarfar að undanförnu
hefur sett verulegt strik í þann
reikning en tíminn hefur hins vegar
verið nýttur til lagningar vegslóða
að og með lagnaleiðinni. Hafist verð-
ur hins vegar þegar handa er tíð gef-
ur færi á. Yfir standa svo fram-
kvæmdir við byggingu húsa yfir
tengivirkin þar sem hinn nýi jarð-
strengur tengist Sauðárkróki og er
framkvæmd þessi í höndum fyrir-
tækisins K tak.
Þá eru fyrirhuguð hjá Steypu-
stöðinni verklok við plægingar raf-
strengja í Eyjafirði og víðar, sem
ekki náðist að klára fyrir vetur. Ekki
eru fyrirséð nein stórverkefni í
steypu fyrir sumarið, en þó sagði Ás-
mundur að dottið gætu inn eitt eða
tvö stór fjós og síðan þó nokkuð af
smærri byggingum enda hugsuðu
margir sér til hreyfings.
Ásgeir Einarsson, kaupmaður í
Hlíðarkaupum, sagði að óveður og
ófærð hefðu ekki komið sér illa fyrir
verslun hans, þannig hefði hann að-
eins einn dag í ófærðinni orðið uppi-
skroppa með grænmeti, sem komið
hefði strax næsta dag. Ófyrirséðar
skammtanir á rafmagni hefðu hins
vegar oftar en ekki verið lengri en
búist var við og því verið erfiðar,
vegna frysti- og kæligeymsla, þar
sem lítið mátti út af bera. Hins vegar
sagðist hann hafa geta útvegað sér
varaorku og þannig sloppið við tjón.
„Þetta var ekkert svo erfitt, ég
bara fylgdist vel með veðurspánni,
og gerði mínar pantanir í samræmi
við það sem þar kom fram, þannig að
þetta bjargaðist allt saman,“ sagði
Ásgeir að lokum.
Stefán Logi Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Steinullarverksmiðj-
unnar, sagði að síðasta ár hefði verið
verksmiðjunni hagstætt. Náðst hefði
að framleiða yfir 10 þúsund tonn, og
er þetta fjórða hæsta framleiðsluár í
sögu fyrirtækisins. Þrjú ár fyrir
hrunið, 2006-’08, var framleitt um-
talsvert meira, en eftir hrunið kom
veruleg lægð. Nú er hins vegar allt
komið á rétta leið og sagði Stefán
menn bjartsýna. Tekinn hefur verið
í notkun nýr búnaður sem end-
urnýtir allan kantafskurð og er það
búnaður upp á um 100 milljónir.
Í haust hlaut verksmiðjan vott-
un, fyrst íslenskra fyrirtækja, en þar
segir: „Eftir mikla vinnu hefur
Steinull hf. fengið gefnar út um-
hverfisyfirlýsingar (EPD) fyrir af-
urðir sínar. Umhverfislýsing er þýð-
ing á „Environmental Product
Declaration“ og staðfestir upplýs-
ingar um umhverfisáhrif yfir líftíma
vörunnar. Að baki liggur ítarleg
vistferlisgreining á öflun aðfanga,
framleiðslu og dreifingu vörunnar,
sem unnin var í samstarfi við Verk-
fræðistofuna Eflu. Umhverfisyfir-
lýsingin hefur verið samþykkt af er-
lendum vottunaraðila.“
Á fundi Byggðaráðs Svf. Skaga-
fjarðar var í síðustu viku lögð fram
tilboð í byggingu nýs leikskóla á
Hofsósi, og var samþykkt að ganga
til samning við fyrirtækið Upp-
steypu sem átti lægsta tilboð uppá
159.705.806 kr. en kostnaðaráætlun
hljóðaði uppá 143.007.623 kr. Upp-
steypa er byggingarfyrirtæki með
lögheimili að Syðri Hofdölum í
Skagafirði.
Áætlaðar eru nokkrar fram-
kvæmdir við Hofsósshöfn á árinu, en
þar hafa varnargarðar farið illa í
sjávargangi og eru stálþil farin að
kalla á verulega endurnýjun.
Að öllu samantöldu eru Skag-
firðingar heldur ánægðir með lífið
og tilveruna, enda sem betur fer
fjarri öllum ógnum af náttúruvá eða
öðrum hremmingum, nema þá helst
að hann færi að blása af einhverju
afli að suðvestan, sem er ógóð vind-
átt hér.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Bæjarlífið Framkvæmdir við hús Byggðastofnunar eru langt komnar og er verkið nokkuð á undan áætlun.
Þorri gengur rólegur
í garð, eftir rysjótta tíð
Snjókarlar Víða rísa gerðarlegir
snjókarlar og fagna þorra.
Frá og með 1. febrúar 2020 hækkar
verð á áskrift að Morgunblaðinu.
Full mánaðaráskrift, sem felur í sér
sjö blöð í viku, aðgang að vefútgáfu
Morgunblaðsins og aðgang að
Hljóðmogganum, auk snjalltækja-
útgáfu, kostar þá 7.530 krónur.
Áskriftarverð