Morgunblaðið - 01.02.2020, Blaðsíða 14
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
„Það er nú eiginlega algjör tilviljun að
við séum með þetta umboð,“ segir
Kristján Jónas Svavarsson, sölustjóri
og einn af eigendum Klifs ehf., þegar
hann er spurður út í það hvernig á því
standi að fyrirtækið skuli flytja inn
kampavín af bestu gerð.
„Við hjónin vorum á leið í sumar-
bústað með vinafólki og vorum sein
fyrir. Frúin var að koma úr flugi. Ég
lagði til að hún gripi með sér tvær
flöskur af kampavíni og hún lét ekki
segja sér það tvisvar. Í bústaðnum
grilluðum við góðan mat, drukkum
vínið og ég fékk mér svo gin og tónik.
Hef aldrei verið mikill kampavíns-
maður þannig lagað. En þá spurði ég
mig allt í einu: af hverju er ég ekki að
flytja inn kampavín?“
Setti sig strax í samband út
Þeir sem þekkja til Kristjáns skilja
það ágætlega en hann beið ekki boð-
anna þegar þessari hugsun hafði skot-
ið niður í kollinn á honum. Strax um
nóttina sendi hann tölvupóst á þrjá
kampavínsframleiðendur sem honum
leist á eftir létta rannsókn á veraldar-
vefnum. Honum til nokkurrar undr-
unar fékk hann svar daginn eftir – á
sunnudegi.
„Ég mætti svo á mánudeginum til
vinnu í Klifi og spurði strákana hvort
þeim litist ekki vel á að fara að flytja
inn kampavín. Þeir voru ekki alveg á
því. Ég benti þeim hins vegar á að
þetta hefði mikið geymsluþol og ef allt
færi á versta veg gætum við bara
drukkið þetta allt sjálfir.“
Nokkrum vikum síðar kom til lands-
ins bretti með á fjórða hundrað flöskur
úr kjallaranum hjá Davy Dosnon,
ungum en afar spennandi víngerðar-
manni sem frá árinu 2008 hefur stund-
að ræktun og framleitt kampavín und-
ir fjölskyldunafninu í Côte des Bar,
syðsta hluta Champagne-héraðs. Ten-
ingunum var kastað og þeir sem fengu
að kynnast innihaldi flaskanna, sem
eru af fjölbreyttum toga og með mis-
jöfnum hætti sóttar í meginþrúgurnar
þrjár sem kampavín er búið til úr, Pi-
not Noir, Chardonnay og Pinot Meu-
nier, hafa látið vel af.
Þeir félagar tóku að kynna vínin og
var einn áfangastaðanna í þeirri vinnu
hinn vinsæli veitingastaður Dill. Þar
stillti Kristján upp sjö vínum úr smiðju
Dosnon. Meðal þeirra sem smökkuðu á
var Ragnar Eiríksson, fyrrverandi yf-
irmatreiðslumaður staðarins, en hann
stóð um þær mundir vaktina á Hótel
Holti.
Holtið sá tækifæri í Dosnon
Í samtali við Morgunblaðið segir
Ragnar að hann hafi heillast af víninu,
fjölbreytni þess og gæðum og úr varð
að Dosnon komst á vínlistann hjá hinu
fornfræga veitingahúsi við Bergstaða-
strætið.
„Það var mikið rennerí á kampavín-
inu á Holtinu,“ segir Kristján og segir
að þar hafi selst nokkrir kassar á viku.
En vínið hefur farið víðar og er m.a. til
sölu í Vínbúðunum.
Þegar blaðamaður settist niður með
Kristjáni Jónasi og Andra Dan Ró-
bertssyni frá Klifi, ásamt forvígis-
mönnum vínstofunnar Tíu sopa, við
Laugaveg, var ákveðið að dreypa á
þremur áhugaverðum flöskum frá
Dosnon. Í fyrsta lagi Brut Selection
sem er „grunnútgáfan“ frá húsinu. Það
er gert úr Pinot Noir og Chardonnay,
er með 9 g/l af viðbættum sykri og
geymt í 20 mánuði á geri. Það er
skemmtilegt „inngangsvín“ og fyllilega
samkeppnishæft við önnur millisæt
kampavín sem eru ráðandi á mark-
aðnum.
Þroskað á Búrgúndí-tunnum
Þá færðum við okkur yfir í Récolte
Noire Brut Nature, sem er Pinot Noir-
vín. Það er látið gerjast á Puligny-
Montrachet tunnum, er geymt í tvö ár
á geri að lágmarki og er án viðbætts
sykurs. Kröftugt og mjög skemmtilegt.
Kristján og félagar létu hins vegar
ekki þar við sitja og drógu úr pússi sínu
Alliae Brut Nutre. Það er blanda af Pi-
not Noir og Chardonnay. Geymt á
sömu tunnum og fyrrnefnt vín, er
geymt í að lágmarki 50 mánuði á geri
og án viðbætts sykurs. Það er sann-
kallað karaktervín, eikin leynir sér
ekki og smjörkeimurinn nær afar vel í
gegn. Þetta vín svíkur engan, sem er
eins gott. Verðmiðinn er hærri en
gengur og gerist.
Magnið er takmarkað
Klifsmenn hafa mikla gleði af inn-
flutningnum og finna fyrir miklum
áhuga á víninu frá Dosnon. En það er
aðeins eitt vandamál. Davy og hans
fólk framleiða ekki nema um 50 þús-
und flöskur á ári. Kvótinn sem Ísland
fær er því takmarkaður. Alliae kemur
t.d. aðeins í 42 flöskum á ári og þær
eru rétt ríflega 250 af Récolte Noire.
Vinsældirnar mega því ekki aukast
mjög til þess að það fari að gæta skorts
á hinum dýrðlegu veigum.
Þessi grein er stytt útgáfa af lengri
grein sem aðgengileg er innskráðum
notendum á mbl.is
Þungir málmar en létt vín
Klif ehf. flytur inn allt frá rafsuðuvélum og skurðarskífum til dýrindis kampavíns
Heitur pottur, grill og gin & tónik urðu þess valdandi að tengsl komust á við Davy Dosnon
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
„Nú vakna ég útsofinn og hvíldur“
Skúli Sigurðsson
Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
™
Einkenni vegna stækkunar
blöðruhálskirtils geta verið:
• Lítil eða slöpp þvagbuna
• Tíð þvaglát
• Næturþvaglát
• Skyndileg þvaglátaþörf
• Erfitt að hefja þvaglát
• Þvagleki eða erfitt að stöðva þvaglát
• Þörf fyrir þvaglát skömmu eftir síðasta þvaglát
• Sviði eða sársauki við þvaglát
Brizo™ er fæðubótarefni sérhannað
fyrir karlmenn sem þjást af einkennum
góðkynja stækkunar á blöðruhálskirtli.
Söfnun undirskrifta undir kröfu um
íbúakosningu um skipulag í Elliðaár-
dal er hafin. Tilefnið er ákvörðun
borgarstjórnar um skipulag á þróun-
arreit við Stekkjarbakka þar sem
gert er ráð fyrir gróðurhvelfingu.
„Krafa okkar er að fá að kjósa um
Elliðaárdalinn sem er eina stóra
græna svæðið sem eftir er í borginni.
Þess vegna viljum við vernda hann,“
segir Halldór Páll Gíslason, formað-
ur Hollvinasamtaka Elliðaárdalsins.
Hann bendir á að stöðugt sé verið að
skerða útivistarsvæðið og verið sé að
undirbúa frekari framkvæmdir sem
muni skerða það enn frekar. „Með
sama áframhaldi verður eyjan í Ell-
iðaánum, fyrir neðan Höfðabakka-
brúna, ein eftir.“
Þeir sem kosningarétt hafa í
Reykjavík geta tekið þátt í undir-
skriftasöfnuninni á vef Þjóðskrár,
skra.is. Fólk þarf að hafa rafræn
skilríki fyrir island.is. Einnig er
hægt að stytta sér leið í gegnum ell-
idaardalur.is. Krafan er að fá íbúa-
kosningu um skipulagið og að hún
verði bindandi fyrir borgina. Á sjötta
hundrað höfðu skrifað undir um
kvöldmatarleytið í gær.
Morgunblaðið/Eggert
Kynning Halldór Páll Gíslason, Anni G. Haugen og Halldór Frímannsson.
Krafist kosningar
um Elliðaárdalinn
Rafræn söfnun undirskrifta hafin
Vegir víninnflytjenda eru
órannsakanlegir. Í píla-
grímaferð til Davy Dosnon
kynnti hann Klifsmenn fyrir
spennandi framleiðanda í Búrg-
úndí. Góðum vini í grenndinni.
Þá varð ekki aftur snúið og nú
hefur Klif hafið innflutning á
víni frá Lou Dumont. Það er í
Gevrey-Chambertin sem er
svæði sem er mörgum vín-
áhugamanni hugleikið.
Heitapottsferðin er því farin
að vinda upp á sig og alls ekki
útséð með hvar þetta nýjasta
ævintýri hjá Klifi endar í raun.
Þar til það skýrist segja þeir
félagar einfaldlega: Skál!
Komnir í
rautt og hvítt
TEYGJA SIG TIL BÚRGÚNDÍ
Morgunblaðið/Eggert
Gott Grunnútgáfan frá Dosnon er
Brut Selection og smakkast vel.
Góðra vina fundur Andri
Dan og Kristján Jónas
skála í Dosnon Alliae.