Morgunblaðið - 01.02.2020, Page 18
VIÐTAL
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Í byrjun maí er áformað að opna
World Class-líkamsræktarstöð í
Grósku í Vatnsmýri. Það verður 16.
stöðin í keðjunni, sem stækkar ört.
Björn Leifsson, stofnandi og einn
eigenda World Class á Íslandi, segir
hagstæð æfingagjöld eiga þátt í vax-
andi vinsældum stöðvanna.
„Við höfum ekki hækkað gjöldin í
rúm sex ár. Við erum sennilega að
taka stærsta hlutann af viðbótinni
sem er að koma inn á markaðinn.
Það bætist við nýr árgangur á
hverju ári. Við höfum verið með
mjög góða uppbyggingu undanfarin
ár. Við vorum með 20% aukningu í
hittifyrra, 10% aukningu í fyrra og
10% aukningu það sem af er árinu.
Þannig að þetta gengur mjög vel,“
segir Björn og vísar til fjölgunar
korthafa.
Korthafar nálgast 50 þúsund
Þeir séu orðnir um 49 þúsund en
það nálgast 14% íbúafjöldans.
Alls sé hlutfall korthafa af íbúa-
fjöldanum á Íslandi um 20% hjá öll-
um stöðvum. Það sé líklega heims-
met. Til dæmis sé áætlað að
hlutfallið sé 9-12% í Skandinavíu.
Telur Björn veðurfarið eiga þátt í
vinsældum líkamsræktar á Íslandi.
Stöðvarnar séu félagsmiðstöðvar
yfir langan og dimman veturinn.
World Class-stöðin á jarðhæðinni
Morgunblaðið/Hari
Líkamsrækt Björn Leifsson, stofnandi World Class, hefur nóg fyrir stafni.
í Grósku í Vatnsmýri verður um
1.600 fermetrar en á efri hæðum
verður CCP með höfuðstöðvar. Til
samanburðar er World Class-stöðin
við Breiðholtslaug 1.800 fermetrar.
Stöðin verður með fullbúnum
tækjasal, WorldFit-æfingasal, heit-
um og köldum potti og innrauðri
gufu. Að sögn Björns hefur World
Class óskað eftir því að fá rými und-
ir þrjá leikfimisali á efri hæð en það
er í skoðun.
Spurður hvort hann horfi m.a. til
Mýrargarðs – 244 nýrra leiguein-
inga fyrir um 300 stúdenta í næsta
húsi – segir Björn það rétt skilið.
„Ég horfi á háskólasvæðið,
Skerjafjörðinn, Vesturbæinn,
miðbæinn, sjúkrahússvæðið og
Valssvæðið. Ég held að það búi 30-
35 þúsund manns í 5 km radíus frá
þessari staðsetningu. Það er engin
stöð frá Seltjarnarnesi og austur að
Kringlu,“ segir Björn, sem hefur
mörg járn í eldinum.
Stækkun á Tjarnarvöllum
Um næstu mánaðamót tekur
hann í notkun viðbyggingu við
World Class-stöðina á Tjarnarvöll-
um í Hafnarfirði. Stöðin er stækkuð
um helming með 1.200 fermetra sal
undir lyftingabúnað, ólympískar
lyftingar, WorldFit og aðrar grein-
ar. Æfingastöðinni CrossFit
Hafnarfjörður við Strandgötu var
lokað um áramótin og flyst starfs-
fólkið yfir á nýju WorldFit-stöðina.
Þegar snjóa leysir áformar Björn
að hefja framkvæmdir við stækkun
World Class-stöðvar við sundlaug-
ina sá Selfossi úr 800 í 1.200 fer-
metra. Stefnt er að því að taka við-
bygginguna í notkun næsta haust.
Í byrjun júní er áformað að af-
henda World Class rými undir æf-
ingasal við sundlaugina á Hellu, sem
verður í viðbyggingu við íþrótta-
húsið hjá sundlauginni. Stefnt er að
opnun stöðvarinnar fyrir haustið.
Verður það áttunda World Class-
stöðin sem verður tengd sundlaug.
Enn annað verkefnið á þessu ári
er flutningur á tækjasal World
Class-stöðvarinnar í Suður-Kringl-
una, nánar tiltekið í tveggja hæða
verslunarrými þar sem var leik-
fangabúð. Sú stöð verður um 1.600
fermetrar og verður hún opnuð síð-
sumars.
Á gamla staðnum, í gömlu prent-
smiðjunni hjá Árvakri, verður
WorldFit-stöð og leikfimisalur en
tækjasalurinn verður að lager fyrir
World Class. Á nýja staðnum verð-
ur útiaðstaða með pottum og gufu.
Nýtir sjóðstreymið
Björn segist aðspurður fjármagna
uppbygginguna að miklu leyti með
sjóðstreymi hjá félaginu. Þá fái
hann framkvæmdalán hjá viðskipta-
banka.
Dæmi um kostnaðinn sé að stöðin
á Tjarnarvöllum muni kosta um 2,5
milljarða í byggingu eftir stækkun.
Samanlagt áætlar Björn að það
myndi kosta um 15 milljarða að
byggja upp stöðvarnar 17.
World Class-stöðvarnar, þ.e.
Laugar ehf., skiluðu rúmum hálfum
milljarði í hagnað 2018 en tekjurnar
voru þá 3,3 milljarðar króna.
Spurður hvort hann horfi til sveit-
arfélaganna kringum höfuðborgar-
svæðið segist Björn vera að skoða
lóðir undir stöð í Keflavík.
Tuga prósenta
vöxtur hjá
World Class
World Class á Íslandi – fjöldi stöðva og staðsetning
2004 2007 2008 2010 2011 2014 2016 2018 2019 2020
1
2
1
2
1 1
4
2
1
215
1
Opnað Staðsetning Við sundlaug
1 2004 Laugar, Reykjavík já
2 2007 Dalshraun, Garðabæ
3 2007 Mosfellsbær já
4 2008 Seltjarnarnes já
5 2010 Kringlan, Reykjavík
6 2010 Ögurhvarf, Kópavogi
7 2011 Háskólinn í Reykjavík
8 2014 Egilshöll, Reykjavík
9 2016 Selfoss já
10 2016 Árbær, Reykjavík já
11 2016 Breiðholt, Reykjavík já
12 2016 Smáralind, Kópavogi*
13 2018 Strandgata, Akureyri
14 2018 Skólastígur, Akureyri já
15 2019 Tjarnarvellir, Hafnarfi rði
Væntanlegar stöðvar
16 2020 Vatnsmýri, Reykjavík
17 2020 Hella já
*Var áður í Turninum í Kópavogi
Heimild: World Class
Fjöldi nýrra stöðva sem
eru opnaðar 2004-2020
2
3
4
5
6
7
8
12
11
10
16
17 stöðvar verða
alls starfrækt-
ar á landinu,
þar af 4 utan
höfuðborgar-
svæðisins
Björn Leifsson segir lág æfingagjöld
skýra sífellt meiri aðsókn að stöðvunum
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
● Gengi bréfa Eim-
skips lækkaði í gær
um 4,76% í 89
milljóna króna við-
skiptum, en rekja
má ástæðu lækk-
unarinnar til af-
komuviðvörunar
sem félagið sendi
frá sér í gær.
Í afkomuviðvör-
uninni segir að
bráðabirgðatölur sýni að EBITDA af-
koma félagsins fyrir fjórða ársfjórðung
ársins 2019 verði lakari en stjórnendur
gerðu ráð fyrir. Áætlað er samkvæmt
tilkynningu frá félaginu að afkoman
verði um 49-50 milljónir evra en til
samanburðar var uppfærð EBITDA spá
félagsins fyrir árið 2019 52-55 milljónir
evra.
Helstu ástæður sem félagið nefnir
fyrir lægri EBITDA afkomu eru minna
magn í gámasiglingakerfi félagsins sem
var um 10% lægra á fjórða ársfjórðungi
miðað við sama tíma árið á undan en sú
minnkun varð að megninu til á síðustu
vikum ársins, samkvæmt tilkynning-
unni. Þá segir að skýringar megi helst
rekja til minni innflutnings til Íslands
en búist var við og minni veiða við Ís-
land á tímabilinu sem leitt hafi til mun
minni útflutnings auk neikvæðra áhrifa
á umsvif í akstri innanlands. Lokun
skrifstofu félagsins í Belgíu reyndist
einnig kostnaðarsamari en spáð var.
Gengi Eimskips lækkar
um 4,67% í kjölfar
afkomuviðvörunar
Eimskip Minna
flutt inn til landsins.
STUTT
● Í fyrra fluttu Íslendingar út vörur fyrir
641,2 milljarða króna. Inn voru fluttar
vörur fyrir 752,7 milljarða. Því var halli á
vöruviðskiptum við útlönd sem nam
111,6 milljörðum króna. Á árinu 2018
voru vöruviðskiptin hins vegar óhag-
stæð um 177,5 milljarða. Því var jöfn-
uðurinn hagstæðari sem nam 66
milljörðum króna í fyrra en árið 2018.
Á árinu 2019 var verðmæti vöruútflutn-
ings 39,1 milljarði meira en árið á und-
an. Mest var aukningin í ferskum fiski
og frystum flökum. Á móti kom innra
verðmæti álútflutnings. Verðmæti vöru-
innflutnings var 26,9 milljörðum minna
en árið 2018. Mest dró saman í elds-
neyti og flutningatækjum.
Vöruskiptajöfnuðurinn
hagstæðari í fyrra
1. febrúar 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.11 123.69 123.4
Sterlingspund 160.21 160.99 160.6
Kanadadalur 93.05 93.59 93.32
Dönsk króna 18.133 18.239 18.186
Norsk króna 13.362 13.44 13.401
Sænsk króna 12.75 12.824 12.787
Svissn. franki 126.65 127.35 127.0
Japanskt jen 1.1294 1.136 1.1327
SDR 169.32 170.32 169.82
Evra 135.52 136.28 135.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.2559
Hrávöruverð
Gull 1580.4 ($/únsa)
Ál 1732.0 ($/tonn) LME
Hráolía 59.6 ($/fatið) Brent