Morgunblaðið - 01.02.2020, Síða 19
AFP
Veiran Starfsmenn sótthreinsa
fyrirhugaða sóttkví í Bretlandi.
Þeir sem sýkst hafa af nýju kóróna-
veirunni frá Kína eru orðnir meiri en
þeir sem veiktust af alvarlegu
lungnabólgunni HABL (e. SARS)
sem dreifði sér frá Kína til tólf ríkja
árið 2003.
Um 8.100 manns eru sagðir hafa
sýkst af HABL á því átta mánaða
tímabili sem hún lét að sér kveða.
Aftur á móti voru þeir orðnir tæp-
lega 10.000 í gær sem sýkst höfðu af
nýju veirunni. Utan Kína eru 100
manns í 22 löndum sýktir. Er þar
fyrst og fremst um að ræða fólk sem
hafði heimsótt borgina Wuhan þar
sem veiran skaut fyrst upp kollinum.
Vitað var um 213 manns sem orðið
höfðu veirunni að bráð og látist, alla í
Kína. Til samanburðar voru dauðs-
föll af völdum HABL-veirunnar 774.
Veiran komin til Bretlands
Í gær voru fyrstu sýkingarnar í
Bretlandi staðfestar en tilkynnt hef-
ur einnig um fólk í Þýskalandi, Jap-
an, Víetnam, Bandaríkjunum, Taí-
landi og Víetnam sem smitast höfðu
af fólki sem nýkomið var úr ferðalagi
til Kína.
Leiðtogi Kommúnistaflokksins í
Wuhan, Ma Guoqiang, sagði í gær að
of seint hefði verið gripið til varna
gegn kórónavírusnum. „Kannski
væri ástandið betra hefði verið gripið
til strangra ráðstafana fyrr. Vera má
að faraldurinn hefði þá orðið minni,“
sagði Ma við ríkissjónvarpið CCTV.
Áætlað var að kostnaður efna-
hagskerfa heims af HABL-veirunni
hefði numið rúmlega 30 milljörðum
evra. Hagfræðingar telja að nýja
kórónaveiran geti orðið enn skað-
vænlegri þar sem fjöldi alþjóðlegra
fyrirtækja, þar á meðal tæknirisar,
bílaframleiðendur og verslunarrisar,
hafi neyðst til að bregðast við henni
með lokun fyrirtækjanna í Kína.
agas@mbl.is
Fleiri sýktir núna
en af völdum HABL
Vitað um 213
manns sem hafa orð-
ið veirunni að bráð
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
sp
ör
eh
f.
Á þessari glæsilegu siglingu um Feneyjar gefst einstakt tækifæri til þess að kynnast
Feneyjum, einni mest heillandi borg Evrópu. Á siglingu um lónið Veneto sjáum við
þéttbyggðar eyjar, kirkjur, hallir og sjómannaskýli og kynnumst einnig forvitnilegu
lífi eyjaskeggja. Siglt verður m.a. til eyjanna Murano og Burano sem þekktar eru fyrir
kristals- og blúnduframleiðslu og einnig verður farið í land í gamla fiskiþorpinu Chioggia.
Verð: 288.800 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið!
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
Vor 9
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
7. - 15. maí
Draumasigling umFeneyjar
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Bretar luku rétt fyrir miðnætti tæp-
lega hálfrar aldar aðild að Evrópu-
sambandinu (ESB). Urðu þeir fyrsta
þjóðin til að yfirgefa sambandið og
ganga á vit nýrrar en sumpart óvissr-
ar framtíðar. Bærast ólíkar tilfinn-
ingar í brjósti landsmanna eftir ára-
langar þrætur um útgönguna.
Þegar klukkan sló 23 í London í
gærkvöldi og miðnætti í Brussel lauk
veru Breta í ESB. Boris Johnson for-
sætisráðherra hefur heitið því að
sameina þjóðina að útgöngunni upp-
fylltri á nýjum tímum velmegunar.
„Okkar verk í ríkisstjórn, mitt hlut-
verk, verður að sameina þjóðina og
stíga skref til aukinna framfara,“
sagði hann í yfirlýsingu í gær vegna
útgöngunnar úr ESB. „Hún er ekki
endir á einhverju, heldur nýtt upphaf.
Þetta er augnablikið þegar tjöldun-
um verður svipt frá og við göngum til
nýrra viðfangsefna.“ Að skera á bönd
við hin 27 ESB-ríkin sagðist hann
upplifa sem „stund endurnýjunar líf-
daga og breytinga“ fyrir breska þjóð.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, sagði burtför Breta vera
„straumhvörf“ fyrir ESB þótt ekkert
muni breytast í fyrstu vegna 11 mán-
aða aðlögunartíma útgöngunnar. Á
þeim tíma munu Bretar og samninga-
menn ESB freista þess að ná samn-
ingum um viðskiptasamband þeirra í
framtíðinni.
Munu breskir borgarar geta starf-
að að vild á ESB-svæðinu og átt þar
tollfrjáls viðskipti til 31. desember
næstkomandi, og öfugt. Héðan í frá
munu Bretar hins vegar enga fulltrúa
eiga í stofnunum sambandsins.
Sporðaköst við samningaborðið
Með brotthvarfi Breta hverfur á
braut næststærsti styrktaraðili ESB
en þeir hafa lagt sambandinu til 12
milljarða evra ár hvert. Þykir sýnt að
það eigi eftir að valda sambandinu
erfiðleikum. Áframhald verður þó á
framlögum Breta í ár en eftir næstu
áramót verður ESB að stoppa í gatið
eftir öðrum leiðum.
Breska stjórnin segir það eitt af
meginmarkmiðum sínum að ná góðri
niðurstöðu fyrir breska sjómenn í
samningunum. Eru fiskveiðar eini
iðnaðurinn sem nefndur er á nafn í
samningsmarkmiðunum. Gætu heild-
arsamningar því staðið eða fallið með
niðurstöðu fiskveiðisamninga. Þykir
afstaða Breta vera harkalegri en
bjóða megi fiskveiðiflota ESB og því
er spáð miklum átökum um fiskveiði-
málin. Rík fiskimið er að finna við
Bretland en þangað hefur fiskveiði-
floti annarra ESB-ríkja sótt 42% afla
síns. Afli breskra fiskiskipa í eigin
lögsögu hefur verið 32% og norskra
21%.
Ólga um árabil
Samþykkt útgöngunnar í þjóðar-
atkvæði 2016 var mörgum reiðarslag.
Við tók pólitísk ringulreið í London
og tveir forsætisráðherrar hafa
hrökklast úr starfi í á þeim tíma. Hat-
rammar deilur lömuðu þingstörfin en
Johnson leysti úr öngþveitinu með af-
gerandi sigri í þingkosningum rétt
fyrir jól. Hefur hann nú drjúgan
meirihluta sér til stuðnings. Eftir sig-
urinn var endanleg staðfesting brex-
it-samkomulagsins nánast forms-
atriði.
Eftir sem áður virðist ágreining-
urinn um brexit talsverður því lands-
menn skiptust í afstöðunni til ESB í
álíka hlutföllum og 2016 er 52%
studdu útgöngu og 48% áframhald-
andi aðild. Dagblöðin bresku fjölluðu
um það meðal annars í gær og vinsæl-
asta götublaðið, The Sun, sem studdi
útgöngu, sagði í risafyrirsögn á for-
síðunni í gær: „Okkar tími er kom-
inn.“
Málsvari aðildarsinna, The Guardi-
an, brúkaði aftur á móti fyrirsögnina
„lítil eyja“ og sagði brexit vera
„mestu áhættu heillar kynslóðar“. Í
Skotlandi sagði formaður heima-
stjórnarinnar, Nicole Sturgeon, tíma-
mótin „stund raunverulegrar og
djúpstæðrar og reiðiblandinnar
hryggðar“. Hún hefur heitið því að
herða baráttuna fyrir sjálfstæði Skot-
lands, en tillögu um slíkt felldu lands-
menn í atkvæðagreiðslu 2014.
Partí og bænavökur
Boris Johnson hefur lagt áherslu á
sameiningu eftir þingkosningarnar
og forðast hátíðahöld sem efnt var til í
gær. Hann efndi til sérstaks fundar
ríkisstjórnarinnar í Sunderland en
þar lauk talningu fyrst allra kjör-
dæma 2016 með samþykkt brexit-
tillögunnar. Klukkan 10 í gærkvöldi
ávarpaði hann þjóð sína í útvarpi og
hélt síðan í embættisbústað sinn í
Downingstræti 10 þar sem hann hélt
starfsliði sínu hóf.
Leiðtogi Brexit-flokksins, Nigel
Farage, sem barist hefur í áratugi
fyrir útgöngu Breta úr ESB, boðaði
til útifundar skammt þar frá. Fleiri
skemmtanir voru boðaðar í Bretlandi
í nafni samtaka hlynntra brexit, en
hópar sem vildu áframhaldandi veru
Breta í ESB boðuðu bænavökur í
Skotlandi.
Brexit marki „nýja dögun“
Bretar eru gengnir úr Evrópusambandinu eftir rúmlega 43 ára veru þar
„Stund endurnýjunar og breytinga“ Aðlögunartími fram að áramótum
AFP
Brexit Stuðningsmenn brexit fögnuðu áfanganum ákaft við breska þinghúsið í Lundúnum í gær.
Jimmy Carter, fyrrverandi Banda-
ríkjaforseti, sagði í gær að hann
teldi að áætlun Donalds Trumps
Bandaríkjaforseta stríddi gegn al-
þjóðalögum.
Carter, sem hafði milligöngu um
friðarsamninga Ísraela og Egypta í
Camp David árið 1978, sagði jafn-
framt að áætlunin kæmi í veg fyrir
að hægt yrði að koma á réttlátum
friði, byggðum á tveggja ríkja
lausninni. Hvatti Carter ríki Sam-
einuðu þjóðanna til þess að koma í
veg fyrir að áætlunin næði fram að
ganga og Ísraelar innlimuðu land-
nemabyggðir á Vesturbakkanum.
Carter leggst gegn
áætlun Trumps
BANDARÍKIN
Meirihluti þing-
manna öld-
ungadeildar
Bandaríkjaþings
felldi tillögu
demókrata um að
kalla til vitni í
réttarhöldum
fulltrúadeild-
arinnar gegn
Donald Trump til
embættismissis. 51 þingmaður
greiddi atkvæði á móti tillögunni en
49 með. Niðurstaða atkvæðagreiðsl-
unnar fór að mestu eftir flokkslínum
nema hvað tveir repúblikanar
greiddu atkvæði með demókrötum.
Það dugði ekki til.
Óljóst var í gærkvöldi hvenær at-
kvæðagreiðsla öldungadeildarinnar
um tillögu demókrata færi fram. Nú
eru taldar líkur á sýknu.
Framan af degi í gær íhuguðu
fjórir öldungadeildarþingmenn
repúblikana að heimila nýjar vitna-
leiðslur í málinu en tveir þeirra lýstu
því yfir að þeir myndu greiða at-
kvæði eins og flokksforysta þeirra.
Um er að ræða Lamar Alexander,
þingmann í Tennessee-ríki og Lisu
Murkowski, þingmann Alaska.
Alexander sagðist í yfirlýsingu
ekki sjá að vitni myndu bæta nokkru
við þær upplýsingar sem þegar
lægju fyrir eða að vitnisburður
þeirra myndi breyta neinu um
niðurstöðu málsins.
Fellt að kalla til vitni
í málinu gegn Trump
Donald Trump
BANDARÍKIN