Morgunblaðið - 01.02.2020, Qupperneq 21
21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
Hjólakeppni Agnar Örn Sigurðsson sigraði í brekkuspretti Reykjavíkurleikanna. Hjólað var upp upphitaðan Skólavörðustíginn.
Eggert
Það er meir en aldar-
fjórðungur síðan Hæsti-
réttur kvað jafnréttislög
þýðingarlítil nema meg-
inreglur væru skýrðar
svo að veita skyldi konu
starf ef hún er að
minnsta kosti jafnt að
því komin hvað varðar
menntun og annað sem
máli skiptir og karl-
maður sem við hana
keppir ef á starfssviðinu
eru fáar konur. Í níutíu
ára sögu ríkisútvarpsins
hefur engin kona gegnt
stöðu útvarpsstjóra. Ell-
efti karlinn var ráðinn
útvarpsstjóri í vikunni
andspænis flóru fremstu
fjölmiðlakvenna landsins.
Þegar staðan var aug-
lýst laus til umsóknar
var krafan um konu í
stól útvarpsstjóra orðin
tifandi tímasprengja.
Yrði karl tekinn umfram
konu í stöðuna þyrfti
hann að hafa augljósa yf-
irburði á þeim sviðum
sem gerð voru að skil-
yrði.
Margar færustu fjölmiðlakonur landsins sóttu um
starfið en engin þeirra komst áfram eftir fyrsta við-
tal. Þrír karlar og ein kona rötuðu í lokaúrtakið.
Konur sem eiga að baki áratuga reynslu sem rit-
stjórar, fréttastjórar, útgefendur, dagskrárgerð-
armenn, fréttamenn, rithöfundar, fræðimenn og
stjórnendur hljóta að spyrja hvað hafi legið til
grundvallar valinu í lokaúrtakið því ekki voru það
hæfnis- og kynjasjónarmið. Auk þess var krafan um
sanngjarnt og gagnsætt ráðningarferli að engu
höfð.
Svo virðist sem stjórn ríkisútvarpsins hafi mark-
visst útilokað þessar konur á lokametrunum til að
forðast óhagstæðan samanburð við þann sem ráðinn
var í því skyni að hindra jafnréttiskærur.
Eftir stendur ein spurning sem beint er til stjórn-
ar ríkisútvarpsins:
– Hvaða umfram-hæfnisþættir og yfirburðir réðu
ráðningu ellefta karlsins í stöðu útvarpsstjóra?
Ein spurning
Eftir Herdísi Kjerulf
Þorgeirsdóttur
Herdís Þorgeirsdóttir
» Í níutíu ára
sögu ríkis-
útvarpsins hef-
ur engin kona
gegnt stöðu út-
varpsstjóra.
Ellefti karlinn
var ráðinn út-
varpsstjóri í vik-
unni andspænis
flóru fremstu
fjölmiðlakvenna
landsins.
Höfundur er mannréttindalögmaður,
fyrrverandi ritstjóri og útgefandi.
Aðdragandi þjóðar-
sáttarsamningsins 1.
febrúar 1990 var lang-
ur. Í tvo áratugi höfðu
landsmenn búið við
óðaverðbólgu sem náði
hámarki árið 1983,
þegar hækkun verð-
lags milli ára mældist
84% og verðbólgu-
hraðinn innan ársins
fór yfir 100%. Laun
höfðu árum saman hækkað sam-
kvæmt vísitölu á þriggja mánaða
fresti, um allt að 15% í hvert sinn.
Afskipti stjórnvalda af kjarasamn-
ingum voru tíð og árið 1983 bönn-
uðu þau verðtryggingu launa með
lögum. Árið 1986 gerðu ASÍ og VSÍ
(forveri SA), í samstarfi við stjórn-
völd, tilraun til að stuðla að efna-
hagslegum stöðugleika en hún rann
út í sandinn. Árið 1988 voru enn sett
lög á kjarasamninga sem takmörk-
uðu launhækkanir en árið eftir voru
gerðir óraunhæfir kjarasamningar,
við mjög erfiðar efnahagsaðstæður,
sem skiluðu launafólki minna en
engu því gengi krónunnar féll í kjöl-
farið um 20%. Á tímabilinu 1980-
1989 hækkuðu laun að meðaltali um
1.300% en verðlag um tæp 1.500%
þannig að kaupmáttur launa minnk-
aði um 11%. Vart þarf að taka fram
að verðbólgan lék þá verst sem
minnst höfðu milli handanna.
Í aðdraganda þjóðarsáttarinnar
voru fólk og fyrirtæki orðin ör-
magna í endalausu kapphlaupi við
verðbólguna, stjórn-
völd ráðalaus og að-
gerðir þeirra gegn
henni höfðu engu skil-
að. Fólk var þrúgað af
sífelldum hækkunum
verðtryggðra íbúða-
lána og þungri
greiðslubyrði af him-
inháum skamm-
tímavöxtum. Útilokað
var að gera raunahæf-
ar fjárhagsáætlanir
þar sem aðstæður
gátu gerbreyst á auga-
bragði og forsendur
ákvarðana kollvarpast. Rekstur fyr-
irtækja markaðist af skammtíma-
hugsun, að eiga fyrir næstu launa-
útborgun og greiðslu skatta, en
langtímahagsmunir viku.
Við þessar nöturlegu aðstæður
fór fram aðalfundur VSÍ þann 6.
júní 1989. Þar var Einar Oddur
Kristjánsson, útvegsmaður og fisk-
verkandi á Flateyri, kjörinn formað-
ur VSÍ og Gunnar I. Birgisson,
verktaki í Kópavogi, varaformaður.
Nýrrar forystu biðu knýjandi verk-
efni og þar voru efnahagsumbætur
og skynsamlegir kjarasamningar
efst á blaði. Umræður um stefnu-
breytingu fóru vaxandi og að helstu
forgangsmálin væru að koma bönd-
um á verðbólguna og verja störfin. Í
viðræðum VSÍ og ASÍ á síðustu
mánuðum ársins 1989 náðist sam-
staða um helstu markmið sem voru
að kveða niður verðbólgu, sporna
gegn atvinnuleysi, skapa skilyrði
fyrir vaxtalækkun og verja kaup-
mátt sem samrýmst gæti þessum
markmiðum.
Í viðræðum VSÍ við stjórnvöld
haustið 1989 var samstaða um að al-
menni vinnumarkaðurinn markaði
stefnu í kjaramálum sem ríki og
sveitarfélög myndu fylgja. Þetta
hafði lengst af verið stefnan, en
ríkisvaldið brá út af þeirri leið vorið
1989, með mjög slæmum afleið-
ingum, sem gerði samningsgerðina
enn snúnari.
Augljóst var að hóflegar launa-
breytingar voru meginforsenda
þess að markmiðin næðust. Auk
þess þurftu að koma til víðtækar að-
gerðir svo ýmsir þættir efnahags-
lífsins samrýmdust nýju og gjör-
breyttu umhverfi. Atvinnulífið hafði
aðlagast óðaverðbólgu um áratuga-
skeið með nánast sjálfvirkum verð-
hækkunum í kjölfar mikilla og tíðra
launabreytinga og gengisfellinga.
Þetta þurfti að breytast. Með þrot-
lausri vinnu og skýrri sýn tókst að
ná samstöðu um gjörbreytta leið við
gerð og framkvæmd kjarasamn-
inga. Auk heildarsamtaka launa-
fólks og vinnuveitenda komu fulltrú-
ar BSRB, bænda, viðskiptabanka og
stjórnvalda að borðinu.
Allir þurftu að leggja sitt af
mörkum til að skapa sátt um þessa
stefnubreytingu. Fór svo að full
samstaða náðist með helstu heildar-
samtökum vinnumarkaðarins, bönk-
um, bændum og stjórnvöldum að
taka þátt í samræmdum aðgerðum
til að ná niður verðbólgu og koma á
efnahagslegum stöðugleika.
Þjóðarsáttasamningurinn gilti frá
undirskriftardegi 1. febrúar 1990 til
15. september 1991, eða í tæplega
20 mánuði. Umsamin launahækkun
á samningstímanum var 10% en
hækkaði í tæplega 12% vegna
rauðra strika sem miðuðu við hækk-
un verðlags umfram verðbólguspár
samningsaðila. BSRB og ríkið
gengu frá nýjum kjarasamningi á
sömu nótum daginn eftir. Gert var
ráð fyrir 6-7% verðbólgu á fyrra ári
samningsins, sem varð raunin þrátt
fyrir efasemdir ýmissa álitsgjafa, og
var það í fyrsta sinn í áratugi að
verðbólga mældist ekki í tveggja
stafa tölu.
Þjóðarsáttin markaði upphaf
nýrrar nálgunar við gerð kjara-
samninga hér á landi. Á liðnum 30
árum hafa verið gerðir fjölmargir
heildarkjarasamningar á almennum
vinnumarkaði og samningstíminn
lengst mikið, sem hefur skapað auk-
ið öryggi fyrir fólk og fyrirtæki.
Fyrir þjóðarsáttina voru skamm-
tímasamningar reglan og þjóðfélag-
ið í samfelldu uppnámi vegna kjara-
deilna. Íslendingar voru heims-
meistarar í verkföllum á áttunda og
níunda áratug síðustu aldar og tjón
vegna verkfalla gífurlegt.
Það þurfti áræði, einbeittan vilja
og úthald til að breyta hefð-
bundnum vinnubrögðum. Einar
Oddur Kristjánsson hafði þessa eig-
inleika. Hann talaði tæpitungulaust
og kjarnyrt alþýðumál og var
óþreytandi við að sannfæra aðra um
að þetta væri eina færa leiðin út úr
ógöngunum.
Það verður aldrei óumdeilt að
gera mönnum mishátt undir höfði
þegar margir leggja hönd á plóg, en
á engan er hallað þegar fullyrt er að
Einar Oddur, Ásmundur Stef-
ánsson, forseti ASÍ, Þórarinn V.
Þórarinsson, framkvæmdastjóri
VSÍ, og Guðmundur J. Guðmunds-
son, formaður Dagsbrúnar og
Verkamannasambandsins, hafi bor-
ið hitann og þungann af því að fá
landsmenn til að fara þá leið sem
fólst í þjóðarsáttinni 1990. En þó má
ekki vanmeta þátt Gunnars I.
Birgissonar og Ögmundar Jónas-
sonar en framlag þeirra skipti sköp-
um.
Þjóðin bar gæfu til þess fyrir 30
árum að taka upp skynsamlegri
vinnubrögð en áður við gerð kjara-
samninga. Það bar á endanum ríku-
legan ávöxt sem 85% kaupmátt-
araukning launa og 150% aukning
kaupmáttar lágmarkslauna frá
árinu 1990 ber órækt vitni um. Það
ber okkur, sem síðar tókum við kefl-
inu, að þakka.
Þjóðarsátt fyrir 30 árum markaði vatnaskil
Eftir Halldór
Benjamín
Þorbergsson
» Þjóðin bar gæfu til
þess fyrir 30 árum
að taka upp skyn-
samlegri vinnubrögð
en áður við gerð kjara-
samninga. Það bar á
endanum ríkulegan
ávöxt sem 85% kaup-
máttaraukning launa,
og 150% aukning kaup-
máttar lágmarkslauna
frá árinu 1990 ber órækt
vitni um.
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins.