Morgunblaðið - 01.02.2020, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
Þó að ein umferð sé eftir hef-ur Sigurbjörn Björnssontryggt sér sigur á Skák-þingi Reykjavíkur 2020.
Frammistaða Sigurbjörns er einkar
glæsileg því hann hefur unnið allar
skákir sínar, átta talsins, og m.a.
unnið Guðmund Kjartansson, Davíð
Kjartansson og Vigni Vatnar
Stefánsson. Guðmundur er einn í 2.
sæti með 6½ vinning, Vignir Vatnar
er í þriðja sæti með 6 vinninga og
síðan koma fimm skákmenn með 5½
vinning.
Fyrir fram mátti búast við baráttu
ofangreindra skákmanna um efsta
sætið en eins og mótið þróaðist varð
viðureign Sigurbjörns og Guð-
mundar úrslitaskák mótsins. Sigur-
björn nýtti vel þau færi sem gáfust í
byrjun tafls og vann eftir mikla bar-
áttu. Guðmundur gat varist betur, en
kóngsstaða hans var afar viðkvæm
langtímum saman og það tókst
Sigurbirni að lokum að notfæra sér:
Skákþing Reykjavíkur 2020; 5.
umferð:
Sigurbjörn Björnsson –
Guðmundur Kjartansson
Fjögurra riddara tafl
1.e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 Rf6 4.
Bb5 Bd6
Óvenjulegur leikur sem hefur not-
ið talsverðra vinsælda undanfarið.
5. 0-0 0-0 6. d3 Re7 7. d4 Rg6 8.
dxe5 Rxe5 9. Rxe5 Bxe5 10. Bd3
He8 11. Bg5 c6 12. Kh1 Dc7?
Þessi leikur kemur of snemma.
Nákvæmast var 12. ... h6.
13. f4 Bxc3
14. e5!
Skemmtilegur millileikur sem set-
ur svartan í mikinn vanda.
14. ... Bxe5 15. fxe5 Dxe5 16. Bxf6
Nákvæmara var 16. Hf5!, t.d. 16.
... Dxb2 17. Hb1 og nú á drottningin
ekki d4-reitinn vegna 18. Hxf6 gxf6
19. Bxh7+ og vinnur.
16. ... gxf6?! 17. Hf5 Dxb2 18. Hb1
Dd4 19. Dh5 d5 20. Hf3 f5 21. Hh3
Kf8?!
21. ... Df6! gefur svarti síst lakari
möguleika.
22. Dh5+ Ke7?
Og enn var betri vörn falin í
drottningarleik til g7.
23. He3+ Be6 24. c3 Da4 25.
Bxf5?
25. Hxb7+ Kd6 26. He1! vinnur
létt.
25. ... Kd6 26. Hbe1 Kc7?
26. ... Had8! hefði tryggt varnir
svarts.
27. Bxe6 Hxe6 28. Hxe6 fxe6 29.
Dg7+ Kd6 30. De5+ Kc5 31. De3+
Kb5 32. De2+ Dc4?
Eftir 32. ... Ka5 er staða svarts
ekki verri. Nú snýr Sigurbjörn tafl-
inu aftur við.
33. Db2+! Ka5
Ekki 33. ... Ka6 34. Da3+! og 35.
Hb1+ sem vinnur.
34. Dxb7 Hg8 35. Hb1 Dc5 36.
Dc7+ Ka6 37. Db7+ Ka5 38. Dc7+
Ka6 39. Df7 Hf8 40. Db7+ Ka5 41.
Dc7+ Ka4 42. Dxh7 Hf2 43. Dh4+
Ka5 44. h3 e5?
Svartur gat enn varist með 44. ...
Hc2 en nú gerir Sigurbjörn út um
taflið.
45. Dd8+ Ka4 46. Dc8 a5 47.
Dg4+! Dc4 48. Dd1+! Ka3 49. Hb3+
Ka4 50. Hb4+ Ka3 51. Da4 mát.
Mögnuð barátta efstu manna.
Caruana sigraði í Wijk aan Zee
Bandaríkjamaðurinn Fabiano
Caruana varð langefstur á hinu ár-
lega skákmóti í Wijk aan Zee í Hol-
landi sem lauk um síðustu helgi.
Hann vann fjórar síðustu skákir sín-
ar og hin harða keppni um efsta sæt-
ið sem virtist í uppsiglingu milli hans
og Magnúsar Carlsen, sem varð í 2.
sæti, fjaraði út. Caruana hlaut 10
vinninga af 13 og varð tveim vinn-
ingum fyrir ofan Magnús, sem lenti í
2. sæti og hefur nú teflt 120 skákir í
röð án þess að tapa.
Ingvar Þór efstur
á MótX mótinu
Ingvar Þ. Jóhannesson skaust í
efsta sæti á MótX mótinu þar sem
teflt er einu sinni í viku í Stúkunni á
Kópavogsvelli. Í fjórðu umferð vann
hann Hjörvar Stein Grétarsson og er
því einn efstur með 3½ vinning.
Hann tekur aðra yfirsetu sína í
fimmtu umferð en næstir á eftir hon-
um koma Hjörvar Steinn, Guð-
mundur Kjartansson og Dagur
Ragnarsson, allir með 3 vinninga.
Sigurbjörn Björnsson
sigurvegari Skák-
þings Reykjavíkur
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Fullt hús Sigurbjörn hefur tryggt sér sigur á Skákþingi Reykjavíkur.
Niðurstöður þjón-
ustukönnunar Gallup
sem gerð var í kringum
síðastliðin áramót gefa
glöggt til kynna að íbú-
ar Hafnarfjarðar eru
ánægðir með bæinn
sinn og þá þjónustu
sem bæjarfélagið veitir.
Ánægjan hefur aukist
umtalsvert milli ára í
öllum þeim 13 þjón-
ustuþáttum sem mæld-
ir eru, þar af marktæk
hækkun á 12. Þetta
sýnir okkur að þau fjöl-
breyttu verkefni og
markvissu fram-
kvæmdir sem við,
bæjarfulltrúar og
starfsfólk Hafnar-
fjarðarbæjar, höfum
unnið að síðustu árin
eru farin að skila sér í
mati og viðhorfi íbúa.
Það á jafnt við meðal
þeirra sem eru að nýta
þjónustuna og þeirra
sem upplifa hana í gegnum þriðja
aðila.
Barnafjölskyldur aldrei
verið ánægðari
Nú í ár erum við að upplifa mestu
ánægju frá upphafi Gallup-mæling-
anna með þjónustu við barna-
fjölskyldur, þjónustu leikskóla og
þjónustu við fatlað fólk auk þess sem
þættir eins og þjónusta grunnskóla,
gæði umhverfis, sorphirða og menn-
ingarmál eru nú á pari við hæstu gildi
frá upphafi. Hafnarfjarðarbær er
leiðandi sveitarfélag sem hefur kjark
til að taka þátt í spennandi tilrauna-
verkefnum sem eru til þess fallin að
efla okkar þjónustu, samræma að-
ferðir og laga ferla. Þessi framsýni og
löngun í gegnsærri, áreiðanlegri og
snjallari þjónustu er að skila árangri.
Þróunarverkefnið Brúin og tilrauna-
verkefnið Þorpið eru nærtæk dæmi
sem bæði snúa að vel-
ferð og eflingu hafn-
firskra barna, ung-
menna og fjölskyldna
þeirra. Starfsumhverfi
leik- og grunnskóla-
kennara og nemenda á
báðum skólastigum hef-
ur verið í endurskoðun
og sífellt er verið að
leita leiða til að bæta líð-
an og árangur nemenda
á báðum skólastigum.
Innritunaraldur leik-
skólabarna hefur
markvisst verið lækk-
aður, vistunargjöld
ekki hækkað í sjö ár,
systkinaafslættir
auknir, útsvar og fast-
eignagjöld lækkað, frí-
stundaakstur efldur,
frístundastyrkir aukn-
ir og svo mætti áfram
telja.
Á réttri vegferð
Á síðastliðnu ári var
nýtt ungmennahús
opnað, nýtt hjúkrunar-
heimili á Sólvangi, nýr
leikskóli í Skarðshlíð, nýir búsetu-
kjarnar fyrir fatlað fólk og nýjar
leiguíbúðir fyrir tekjulægri hafa risið
í Skarðshlíð. Lífsgæðasetur St. Jó var
opnað eftir endurbætur auk þess sem
heilsu- og íþróttabærinn Hafnar-
fjörður hefur sannarlega stimplað sig
inn með auknu samstarfi, innleiðingu
heilsueflandi hugmynda, fræðslu og
viðburðum. Þessi jákvæða útkoma í
þjónustukönnun Gallup gefur okkur
byr undir báða vængi. Við erum
greinilega á réttri vegferð en vitum á
sama tíma að mörg tækifæri til úr-
bóta blasa við. Þegar er hafin vinna
við að greina þá möguleika, meðal
annars með skipulags- og áherslu-
breytingum, heildarstefnumótun og
smærri og stærri verkefnum sem öll
hafa áhrif.
Mesta ánægja í
Hafnarfirði frá upp-
hafi mælinga Gallup
Eftir Rósu
Guðbjartsdóttur
» Íbúar
Hafnar-
fjarðar eru
ánægðir með
bæinn sinn og þá
þjónustu sem
bæjarfélagið
veitir. Ánægjan
hefur aukist um-
talsvert milli ára
Rósa Guðbjartsdóttir
Höfundur er bæjarstjóri
Hafnarfjarðar.
Áslaug Ágústsdóttir fæddist 1.
febrúar 1893 á Ísafirði. For-
eldrar hennar voru hjónin
Anna Teitsdóttir og Ágúst
Benediktsson verslunarstjóri.
Áslaug ólst upp á Ísafirði en
missti föður sinn 1901. Hún
fluttist til Reykjavíkur 1911 og
fór sama ár í fyrsta sinn í
KFUM-húsið. Það var upphaf
sjötíu ára starfs hennar í
KFUK. Hún sat í stjórn félags-
ins frá 1916, fyrst sem ritari, þá
varaformaður og 1938 til 1964
var hún formaður. Hún tók
virkan þátt í tónlistarlífi
KFUM og K og annaðist undir-
leik á samkomum.
Eiginmaður Áslaugar var
Bjarni Jónsson, f. 1881, d. 1965,
dómkirkjuprestur. Þau gengu í
hjónaband 15.7. 1913 og eign-
uðust þrjú börn. Þau bjuggu á
Lækjargötu 12b, og bjó hún
þar áfram eftir lát manns síns,
en húsið brann 1967 og missti
Áslaug verðmætar eigur sínar.
Hún flutti þá á Hjarðarhagann.
Áslaug tók virkan þátt í
kirkjustarfinu með manni sín-
um og hélt því áfram eftir lát
hans. Bjarni hafði verið fang-
elsisprestur í Hegningarhúsinu
alla og hélt Áslaug áfram að að-
stoða við helgidagsguðsþjón-
ustur þar. Hún lék á píanó við
barnaguðsþjónustur í Nes-
kirkju allt til ársins 1981.
Áslaug lést 7. febrúar 1982.
Merkir Íslendingar
Áslaug
Ágústsdóttir
Hamraborg 12
200 Kópavogur
416 0500
www.eignaborg.is
Falleg tveggja herbergja íbúð með sérinngangi, stórum palli og stæði í bílageymslu. Eitt svefn-
herbergi, stofa eldhús og borðstofa í opnu rými. Gengið út á pall úr stofu. Baðherbergið e
flísalagt, sturta í baðkari. Þvottaherbergi innan íbúðar. Innihurðir og innréttingar eru úr
mahogany. Í bílakjallara er sér stæði og lítil geymsla við bílastæðið. Í kjallara er sameiginle
dekkjageymsla og fundarherbergi húsfélagsins. Hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð.
Stutt í skóla og leikskóla. Fallegt og gróið umhverfi.
ÁRANGUR
Í SÖLU
FASTEIGNA
Berjarimi 28, 112 Reykjavík
Opið hús mánudaginn 3. feb. kl. 17.00-17.30
Verð 35,9 m.
Stærð 66 m2
Upplýsingar gefur Óskar Bergsson, löggiltur fasteignasali
í síma 893 2499 og oskar@eignaborg.is
r
g