Morgunblaðið - 01.02.2020, Page 24
24 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
SALA FASTEIGNA
SÍÐAN 1957
Grensásvegur 11
Sími 588 9090
www.eignamidlun.is
Umeraðræðafullbúinnveitingastaðmeð
öllumhelstutækjum,staðsettur íLavaCenter
áHvolsvelli.Um160þúsundmannsfóruum
miðstöðina2019ogþvímiklirmöguleikar fyrir
veitingarekstur,verslunogkaffihúsástaðnum.
ÓSKAÐ ER EFTIR
REKSTRARAÐILA FYRIR
VEITINGASAL Í LAVA CENTER
FrekariupplýsingarveitirGuðlaugurI.Guðlaugsson,
löggiltur fasteignasali, ísíma8645464/
gudlaugur@eignamidlun.is
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur er Jóhanna Gísladóttir. Söng-
hópurinn Synkópa syngur. Organisti er Eyþór
Ingi Jónsson. Sunnudagaskóli í Safnaðar-
heimilinu kl. 11. Umsjón Sonja Kro og Sig-
ríður Hulda Arnardóttir. Æðruleysismessa í
Akureyrarkirkju kl. 20. Prestur er Hildur Eir
Bolladóttir. Hermann Arason og Eyþór Ingi
Jónsson sjá um tónlistina og leiða söng.
Molasopi í Safnaðarheimilinu að messu lok-
inni.
AKURINN kristið samfélag | Samkoma
kl. 14. Biblíufræðsla, söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og préd-
ikar. Organisti er Kristztina Kalló Szklenár.
Félagar úr kirkjukórnum leiða safnaðarsöng.
Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts spil-
ar. Stjórnandi er Sólveig Morávek. Sunnu-
dagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimili
kirkjunnar. Umsjón hafa Kristín Jóhannes-
dóttir og Kristín Lára Torfadóttir. Djús, kaffi
og meðlæti á eftir.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Séra Ása Laufey Sæmundsdóttir héraðs-
prestur prédikar og þjónar fyrir altari. Jó-
hanna María Eyjólfsdóttir djáknakandídat
annast samverustund sunnudagaskólans
ásamt Ingu Steinunni Henningsdóttur. Kór
Áskirkju syngur. Organisti er Bjartur Logi
Guðnason. Kaffisopi og safi eftir messu.
BESSASTAÐAKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Lærisveinar hans leiða
sönginn. Sigrún Ósk sunnudagaskóla-
leiðtogi leiðir stundina. Messa kl. 14 með
þátttöku guðfræðinema. Ræðumaður er Þor-
geir A. Elíesersson. Batamessa í umsjá Vina
í bata kl. 17. Sérstakur gestur Ellen Krist-
jánsdóttir. Sr. Hans Guðberg, Margrét djákni
og Ástvaldur organisti hafa umsjón með
stundunum.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur er Magnús Björn Björnsson. Kór
Breiðholtskirkju syngur undir stjórn Arnar
Magnússonar organista. Sunnudagaskóli kl.
11. Steinunn Þorbergsdóttir djákni og Stein-
unn Leifsdóttir sjá um stundina. Alþjóðlegi
söfnuðurinn í Breiðholtskirkju ICB kl. 14.
Prestur Toshiki Toma, prestur innflytjenda.
Barnastarf á sama tíma í höndum Stein-
unnar Þorbergsdóttur djákna.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf kl. 11.
Daníel, Sóley Adda og Pálmi leiða stundina.
Hressing eftir samveruna. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Antonia Hevesi, félagar úr
Kammerkór Bústaðakirkju syngja. Sr. Pálmi
Matthíasson messar og þjónar ásamt
messuþjónum. Heitt á könnunni eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Há-
degisverður á vægu verði í safnaðarheimili
að messu lokinni. Sama dag er fjöl-
skyldumessa í Hjallakirkju kl. 17 og er sunnu-
dagaskóli kirknanna tveggja hluti af þeirri
samveru. Kvöldmatur á vægu verði í safn-
aðarheimili að lokinni stund í kirkjunni
DÓMKIRKJA Krists konungs, Landakoti
| Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl.
10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö.
kl. 8, lau. kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Kyndilmessa og bæna-
dagur að vetri, messa kl. 11. Prestur er El-
ínborg Sturludóttir, Dómkórinn og Kári Þor-
mar dómorganisti.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl.
10.30 í safnaðarheimili. Gospelmessa í kirkj-
unni kl. 20. Sr. Þorgeir Arason. Stúlknakórinn
Liljurnar syngur undir stjórn Hlínar P. Behrens
og Tryggvi Hermannsson verður við flygilinn.
Kirkjukaffi. Biblíuleshópur hittist alla miðviku-
daga til páska kl. 17-18.15 í Safnaðarheim-
ili.
FELLA- og Hólakirkja | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11 í umsjá Sr. Guðmundar Karls,
Mörtu og Ásgeirs. Arnhildur Valgarðsdóttir
sinnir tónlistinni. Svala Karólína Hrafnsdóttir
tónlistanemi spilar á píanó. Meðhjálpari er
Kristín Ingólfsdóttir. Kaffisopi eftir stundina.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík | Guðsþjónusta
kl. 14. Margrét Lilja Vilmundardóttir guðfræð-
ingur leiðir stundina. Hljómsveitin Mantra og
Sönghópurinn við Tjörnina leiða tónlistina
ásamt Gunnari Gunnarssyni. Fermingarbörn
og fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli
kl. 11. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Prestur er
Einar Eyjólfsson. Kór og hljómsveit kirkjunnar
leiðir sönginn undir stjórn Arnar Arnarssonar.
GARÐAKIRKJA | Messa kl. 14. Sr. Henning
Emil Magnússon prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Félagar í kór Vídalínskirkju syngja og
organisti er Jóhann Baldvinsson.
GLERÁRKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11 í umsjón Sunnu Kristrúnar djákna.
Barna- og æskulýðskórinn syngur undir stjórn
Margrétar Árnadóttur kórstjóra. Undirleik ann-
ast Guðjón Jónsson.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Séra Sigurður Grétar Helgason prédikar og
þjónar. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson og
Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Sunnudaga-
skóli kl. 11 á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón
hafa Þóra Björg Sigurðardóttir og Hólmfríður
Frostadóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.
GRAFARVOGUR - kirkjuselið í Spöng |
Selmessa kl. 13. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir
prédikar og þjónar. Organisti er Hilmar Örn
Agnarsson og Vox Populi leiðir söng.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. María
G. Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt messuhópi og fermingarfjölskyldum.
Organisti er Ásta Haraldsdóttir og Kirkjukór
Grensáskirkju syngur. Þriðjudagur: Kyrrð-
arstund kl. 12. Fjölskyldukirkjan kl. 17.15,
föndur, leikir, helgistund og matur. Fimmtu-
dagur: Núvitund í kapellu kl. 18.15-18.45.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjöl-
skyldumessa kl. 11. Prestar Leifur Ragnar
Jónsson og Pétur Ragnhildarson. Barnakór
Guðríðarkirkju syngur undir stjórn Sigríðar
Soffíu og Svanfríðar Gunnarsdóttur. Ferming-
arbörn úr Dalskóla verða með Pálínuboð.
Hefð hefur skapast fyrir því að börnin aðstoði
við messuna og bjóði í kirkjukaffi.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Prestur er Jón Helgi
Þórarinsson. Organisti er Guðmundur Sig-
urðsson. Félagar úr Barbörukórnum syngja.
Bylgja Dís, Sigríður og Jasper sjá um dagskrá
í sunnudagaskólanum.
HALLGRÍMSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl.
11. Umsjón: Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, Kar-
ítas Hrundar Pálsdóttir og Kristný Rós
Gústafsdóttir, verkefnastjóri og djákni, sem
flytur hugleiðingu. Fermingarbörn og messu-
þjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hall-
grímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar
Sólbergsson. Laugardagur 1. febrúar: Orgel
Matinée kl. 12. Björn Steinar Sólbergsson
leikur. Bænastund mánud. kl. 12.15. Fyrir-
bænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Árdeg-
ismessa miðvikud. kl. 8. Kyrrðarstund fimm-
tud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr
Kordíu kór Háteigskirkju leiða messusöng.
Organisti er Guðný Einarsdóttir. Prestur er Ei-
ríkur Jóhannsson.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Fjölskyldu-
messa kl. 17 og er sunnudagaskóli kirkn-
anna tveggja, Digranes- og Hjallakirkju, hluti
af þeirri samveru. Eftir stundina er kvöld-
matur á vægu verði í safnaðarheimilinu.
HVERAGERÐISKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Ninna Sif Svavarsdóttir þjónar, Kirkjukór
Hveragerðis- og Kotstrandarsókna syngur og
leiðir safnaðarsöng undir stjórn Miklós
Dalmay. Sunnudagaskóli í umsjón sr. Ninnu
Sifjar og Signýjar Óskar kl. 12.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11. Service. Translation into Engl-
ish. Samkoma á ensku kl. 14. English speak-
ing service. Samkoma á spænsku kl. 16.
Reuniónes en español. Samkoma Fíló+ kl.
20.
ÍSLENSKA kirkjan í Kaupmannahöfn | Ís-
lensk guðsþjónusta kl. 14 í Skt. Pauls kirkju.
Prestur er Ágúst Einarsson. Organisti er Sól-
veig Anna Aradóttir. Kvennakórinn í Kaup-
mannahöfn syngur. Kórstjórn: María Ösp
Ómarsdóttir. Messukaffi í Húsi Jóns Sigurðs-
sonar.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn sam-
koma með lofgjörð og fyrirbænum kl. 13.
Aldursskipt barnastarf. Sigríður Schram ræð-
ir um fyrirgefninguna. Kaffi að samverustund
lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Fjölskyldumessa kl.
11. Regnbogaraddir Keflavíkurkirkju syngja
undir stjórn Freydísar Kolbeinsdóttur og Arn-
órs Vilbergssonar. Sunnudagaskólaleiðtog-
arnir; Jóhanna María, Helga og Ingi Þór leiða.
Stefán Jónsson og Guðrún Hákonardóttir eru
messuþjónar. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjón-
ar. Að endingu verður boðið upp á súpu og
Sigurjónsbrauð í Kirkjulundi.
KIRKJA heyrnarlausra | Messa í Kirkju döff
í Grensáskirkju kl. 14. Táknmálskórinn syng-
ur undir stjórn Eyrúnar Ólafsdóttur. Sr. Kristín
Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi
eftir messu.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn
Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. Sunnu-
dagaskóli í safnaðarheimilinu Borgum á
sama tíma.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Barnakórinn Graduale Fut-
uri syngur undir stjórn Sunnu Karenar Einars-
dóttur og undirleik Magnúsar Ragnarssonar
organista. Sara Grímsdóttir tekur á móti
börnunum. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknar-
prestur þjónar. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimili að messunni lokinni.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Kór
Laugarneskirkju og Elísabet Þórðardóttir er
organisti. Sr. Hjalti Jón Sverrisson þjónar fyrir
altari og prédikar. Sunnudagaskóli á meðan.
Kaffi og samvera á eftir. Betri stofan, Hátúni
12. Helgistund kl. 13 með sr. Hjalta Jóni og
Elísabetu organista.
Þri. 4.2. Kyrrðarbæn kl. 20. Kirkjan opnar kl.
19.30.
Mið. 5.2. Foreldrasamvera kl. 10-12.
Fræðslukvöld um Gamla testamentið kl. 20.
Fim 6.2. Kyrrðarstund í Áskirkju kl. 12. Há-
degisverður og opið hús á eftir.
NESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl.
11. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða
söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar
organista. Prestur er Steinunn Arnþrúður
Björnsdóttir. Sunnudagaskólinn hefst inni í
kirkju en færist svo yfir í safnaðarheimili und-
ir stjórn Katrínar H. Ágústsdóttur, Árna Þórs
Þórssonar og Ara Agnarssonar. Sameiginleg
hressing og samfélag á torginu í safnaðar-
heimili að lokinum stundunum.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar
samkomur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnu-
daga í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-
60. Barnastarf. Túlkað á ensku.
Sandgerðiskirkja | Messa kl. 11. Kirkjukór-
inn syngur undir stjórn Keiths Reed.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Óli og Jóhanna leiða samveruna og barnakór-
inn stígur á stokk undir stjórn Rósalindar
Gísladóttur. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Sr.
Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar. Kór
Seljakirkju leiðir tónlist við undirleik Tómasar
Guðna Eggertssonar. Athugið að engin guðs-
þjónusta verður kl. 14.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg-
unn kl. 10. Á slóðum Thorvaldsen í Róm og
Reykjavík. Sigurður Egill Þorvaldsson læknir
talar. Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl.
11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik
Vignir Stefánsson er organisti. Sveinn Bjarki
og leiðtogar sjá um sunnudagaskólann. Fé-
lagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða
almennan safnaðarsöng. Kaffiveitingar og
samfélag eftir athöfn í safnaðarheimilinu.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11.
Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast
prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarna-
son.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Messa kl. 14. Kirkjukór-
inn syngur undir stjórn Keiths Reed.
VÍDALÍNSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Barnakórarnir munu syngja undir
stjórn Davíðs Sigurgeirssonar og Jóhönnu
Guðrúnar Jónsdóttur en sr. Henning Emil
Magnússon og Matthildur Bjarnadóttir æsku-
lýðsfulltrúi leiða stundina. Boðið upp á kaffi
og kleinur í safnaðarheimlinu að lokinni
stundinni. Sjá gardasokn.is
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Fjöl-
skylduhátíð kl. 11 í umsjá Margrétar Lilju Vil-
mundardóttur og Helgu Þórdísar Guðmunds-
dóttur. Kaffi, djús og kex í safnaðarsalnum
að athöfn lokinni.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjónusta og
altarisganga kl. 14. Sr. Baldur Rafn þjónar
fyrir altari. Félagar úr kirkjukórnum leiða söng
undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar organ-
ista.
ORÐ DAGSINS: Kristur
og Nikódemus
(Jóh. 3)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Prestbakkakirkja Prestbakki við Hrútafjörð hefur verið kirkjustaður síðan um 1100, en varð prestssetur 1711.