Morgunblaðið - 01.02.2020, Side 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
✝ Hanna GuðrúnPétursdóttir
fæddist á Siglufirði
19. febrúar 1939.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun
Fjallabyggðar 18.
janúar 2020. For-
eldrar Hönnu voru
Pétur Friðrik Bald-
vinsson frá Dalvík, f.
14.4. 1909, d. 14.12.
1995, og Mundína
Valgerður Sigurðardóttir frá
Vatnsenda í Héðinsfirði, f. 30.8.
1911, d. 2.8. 2000. Bróðir Hönnu
frá fyrra hjónabandi föður var
Tómas Pétursson, f. 21.12. 1930,
d. 9.4. 1963, maki Sigríður
Hermannsdóttir, f. 23.3. 1934, d.
9.9. 2015. Bróðir Ásbjörn Pét-
ursson, f. 2.9. 1937, d. 11.1.
2001. Systir Halldóra Ragna
Pétursdóttir, f. 12.2. 1942, d.
20.5. 2019, maki Björgvin Jóns-
son, f. 9.2. 1942, d. 22.12. 2014.
Þórdís og Hanna Þórey. Synir
Björns eru Freyr, maki Kristín,
börn þeirra Auðun Darri, Bríet
Emma og Elín Hekla, og Jóhann
Símon, maki Arna Ósk, dætur
þeirra Emma Laufey, Katla
Alice og Júlía Milla. 3) Drengur,
f. 3.10. 1961, d. 3.10. 1961. 4)
Mundína, f. 1965, maki Mark
Duffield, börn þeirra Tinna
Mark, gift Ólafi Andrési Guð-
mundssyni, dætur þeirra Ólína
Mark og Lovísa Mark; Bjarni
Mark, f. 1995. 4) Þorgeir, f.
1971, maki Guðný Huld Árna-
dóttir, börn þeirra Árni Hauk-
ur, Laufey Petra og Mundína
Ósk. 5) Hanna María, f. 1973,
maki Daði Hafþórsson, börn
þeirra Adam Freyr, Kamilla
Rún og Sandra Karen.
Hanna Guðrún var fædd og
uppalin á Siglufirði, hún stund-
aði nám við barna- og gagn-
fræðaskóla Siglufjarðar og lauk
þaðan gagnfræða- og iðnskóla-
prófi. Hún starfaði við ýmislegt,
lengst af vann hún sem endur-
skoðandi hjá Skattstofu Norð-
urlands vestra.
Útför hennar fer fram frá
Siglufjarðarkirkju í dag, 1.
febrúar 2020, klukkan 14.
Hinn 19.9. 1959
giftist Hanna
Bjarna Þorgeirs-
syni. Foreldrar
hans voru Þorgeir
Bjarnason frá Fá-
skrúðsfirði, f. 5.2.
1906, d. 5.11.
1960, og Ágústa
Guðmundsdóttir
frá Siglufirði, f.
22.9. 1906, d. 2.10.
1984. Börn Hönnu
og Bjarna eru: 1) Pétur, f. 1958,
maki Lilja Ástvaldsdóttir, dæt-
ur þeirra Hanna Guðrún, sam-
býlismaður Haukur Sveinn
Hauksson, börn þeirra eru
Katla Lilja og Baltasar Pétur,
Hafey Björg og Halldóra
Freyja. 2) Kristín Álfhildur, f.
1959, maki Björn Jóhannsson,
börn þeirra Birna Hlín Hilm-
arsdóttir, maki Ögmundur Kar-
velsson, börn þeirra Hilmar
Helgi og Álfhildur Bára; Helga
Með mikilli sorg en þakklæti
kveð ég mömmu mína Hönnu
Guðrúnu. Mamma var góð vin-
kona mín, við áttum margt sam-
eiginlegt og var söngurinn þar
efst á blaði. Ég man hvað mér
þótti gaman að fara með mömmu
á kóræfingar þegar ég var lítil.
Þegar ég fór síðan sjálf að
syngja með Kvennakór Siglu-
fjarðar ásamt mömmu þekkti ég
lögin. Mamma söng líka í mörg ár
í kirkjukórnum, ásamt pabba.
Mamma átti við veikindi að stríða
í langan tíma en alltaf var svo
stutt í húmorinn og sönginn. Hún
kunni alla texta og tók alltaf und-
ir þegar einhver byrjaði að
syngja, þó svo að hún væri orðin
veik. Á æskuheimili mömmu hjá
ömmu og afa á Vetrarbrautinni á
Sigló var mikið sungið, leikið og
lesin ljóð.
Bakstur var líka okkar sam-
eiginlega áhugamál, mamma
bakaði þær allra fallegustu og
bestu smákökur sem til eru. Ég
hef reynt eftir minni bestu getu
að feta í hennar fótspor, þar verð
að viðurkenna að ég hef ekki náð
fegurðinni á kökunum en bragð-
inu hef ég náð. Í fjölskyldunni eru
þessi fleygu orð notuð frá henni
um jólin: „Þetta heita smákökur“
en henni fannst við gera fullstór-
ar kökur þegar verið var að móta
þær á plöturnar.
Mamma var mikið náttúru-
barn, hún var send í fóstur um
tíma til Héðinsfjarðar, var þar í
umsjón frændfólks síns, á bæn-
um Grundarkoti. Mamma talaði
mikið um veru sína þar og ljóst er
að fegurð og náttúran í firðinum
fagra hafði mikil áhrif á hana í líf-
inu.
Hún var mjög þakklát fyrir
þann tíma, samvistir við fólkið,
dýrin og fegurðina í náttúrunni.
Við fjölskyldan fórum reglulega
til Héðinsfjarðar á sumrin, þegar
aðeins var hægt að komast þang-
að á sjó eða ganga yfir fjöll. Það
er svo yndislegt að eiga þær
minningar í fórum sínum,
mamma þar í essinu sínu að njóta
sín og fræða okkur um tímann
sem hún átti þar þegar hún var
ung.
Mamma var mikil fagurkeri,
lagði mikið upp úr því að við
börnin hennar værum alltaf fín,
falleg föt og skór voru hennar
áhugamál. Það er svo dásamlegt
að fylgjast með barnabörnunum
hennar í dag, þau hafa öll fengið
þetta fegurðarskyn ömmu sinn-
ar.
En við segjum stundum að
þetta hafi nú allt byrjað hjá elsku
ömmu Mundu sem alltaf var svo
fín og allt svo fallegt í kringum
hana.
Mamma var mjög stolt af okk-
ur börnunum, barnabörnin voru
henni svo kær, svo bættust
barnabarnabörnin við sem
glöddu hana mikið. Get ekki
gleymt því þegar elsku Tinna mín
fæddist, hún var mömmu og
pabba fyrsta barnabarn, þvílík
gleði og hamingja sem hún gaf
þeim.
Þegar ég sjálf upplifði það að
verða amma skildi ég svo vel
hana mömmu.
Þau mamma og pabbi hafa
verið lánsöm með sína afkomend-
ur.
Erum við svo endalaust þakk-
lát fyrir það að hafa getað hist öll
saman nýliðin áramót og átt sam-
an góðar stundir. Eins er þakk-
læti mér efst í huga til pabba sem
hefur verið kletturinn hennar
mömmu í gegnum veikindi henn-
ar.
Ég vil þakka starfsfólki
sjúkrahússins fyrir alla umönnun
og hlýju í garð mömmu. Einstakt
fólk sem hefur ávallt sýnt vænt-
umþykju í verki.
Mamma mín, nú þegar við
kveðjum þig vil ég þakka fyrir
allt sem þú kenndir mér og allar
ógleymanlegu stundir okkar
saman.
Ég veit að litli drengurinn sem
þið pabbi misstuð, amma og afi,
Ásbjörn og Dóra taka vel á móti
þér í „Blómabrekkunni“, ég sé
þau fyrir mér syngjandi saman,
afi að fara með hlutverk úr leik-
verkum og amma að fara með
ljóð.
Þín dóttir, Mundý.
Læt hér fylgja með fallegt ljóð
sem við sungum við saman í
kvennakórnum.
Kvöldblíðan lognværa kyssir hvern
reit,
komið er sumar og fögur er sveit.
Sól er að kveðja við bláfjalla brún,
brosa við aftanskin fagurgræn tún.
Seg mér hvað indælla auga þitt leit
íslenska kvöldinu í fallegri sveit.
(Guðmundur Guðmundsson)
Mundína Valdís
Bjarnadóttir.
Hanna Guðrún
Pétursdóttir
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær eiginkona mín, móðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR AÐALBJÖRG
LÚÐVÍKSDÓTTIR,
Burknavöllum 1b, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum v/Fossvog
sunnudaginn 26. janúar.
Útförin fer fram frá Útskálakirkju föstudaginn 7. febrúar
klukkan 15.
Guðbjörn Ingvarsson
Ingvar Lúðvík Guðbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
MARÍN GUÐRÚN MARELSDÓTTIR,
Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ,
lést á Hrafnistu, Nesvöllum, laugardaginn
25. janúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 4. febrúar
klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vildu minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin.
Guðjón Gunnar Ólafsson
Bjarni Guðjónsson Margrét Hreggviðsdóttir
Svala Erna Guðjónsdóttir Jonathan Cutress
Íris Björk Guðjónsdóttir Örn Garðarsson
Eiríka Guðrún Guðjónsdóttir Jóhannes Thorberg
Særún Guðjónsdóttir Bjarni Stefánsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓNA GÍSLADÓTTIR,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði mánudaginn
27. janúar. Jarðarförin auglýst síðar.
Guðm. Friðrik Sigurðsson Kristín Pálsdóttir
Axel Jónsson Þórunn Halldórsdóttir
Valgerður Sigurðardóttir Óskar Jóhannsson
Ragnheiður Sigurðardóttir Kristján Guðmundsson
Björg Sigurðardóttir
Aðalheiður D. Sigurðardóttir Þröstur Óskarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
UNNUR MALMQUIST JÓNSDÓTTIR,
Þinghól, Djúpavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Dyngju
Egilsstöðum fimmtudaginn 23. janúar.
Útför fer fram frá Djúpavogskirkju miðvikudaginn 5. febrúar
klukkan 14.
Jón Karlsson Jónína Guðmundsdóttir
Katrín Malmquist Karlsdóttir Baldur Grétarsson
Halldóra Karlsdóttir Víglundur Möller Sívertsen
Emil Karlsson Elísabet Guðmundsdóttir
Sigurður Eysteinn Karlsson Birna Björg Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær systir okkar og mágkona,
JÓHANNA B. AYOUB
GUNNARSDÓTTIR
lést á sjúkrahúsi í Bandaríkjunum
fimmtudaginn 23. janúar eftir stutt en erfið
veikindi. Útför hennar fór fram í kyrrþey
erlendis.
Eysteinn Gunnarsson Guðrún Ásgeirsdóttir
Guðjón Gunnarsson
Guðbjörg S. Gunnarsdóttir Óskar Erlingsson
Ástkær og elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
AÐALHEIÐUR PÁLSDÓTTIR
áður til heimilis í Miðvangi 41,
Hafnarfirði,
lést á Akurgerði, Hjúkrunarheimilinu
Sólvangi laugardaginn 25. janúar.
Fríða B. Valdimarsdóttir Óttar Ingimarsson
Sveinrún Bjarnadóttir
Ósk Bára Bjarnadóttir Már Mortensen Óskarsson
Vilhjálmur P. Bjarnason Ingibjörg Guðmundsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
SIGURBJÖRG HULDA
ÞORKELSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
lést laugardaginn 25. janúar á
Hjúkrunarheimilinu Mörk. Útför hennar
verður frá Árbæjarkirkju í Reykjavík þriðjudaginn 4. febrúar
klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlega bent á
Alzheimersamtökin.
Þorkell Daníel Eiríksson Anna Runólfsdóttir
Kristján Hermann Þorkelsson
Þorgerður Rán Þorkelsdóttir
Runólfur Mar Þorkelsson
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
HALLFRÍÐUR BJARNADÓTTIR,
Skólabraut 3, Seltjarnarnesi,
lést á Dvalarheimilinu Grund 20. janúar.
Útförin fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 5. febrúar klukkan 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en bent er á
Landspítali/Minningarkort.
Fjölskyldan
Ástkær eiginmaður minn,
GÍSLI HENDRIKSSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
9. desember. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna. Þeim er vildu
minnast hans er bent á Styrktarsjóð
Sólheima, Grímsnesi.
Rannveig Björg Albertsdóttir
systur og aðrir ástvinir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR,
Gúa,
lést á Heilbrigðisstofnun Hvammstanga
sunnudaginn 26. janúar sl. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fjölskyldan þakkar Soffíu Steinarsdóttir og öllu starfsfólki á
Heilbrigðisstofnuninni fyrir alúð, nærgætni og væntumþykju í
garð Guðrúnar á meðan hún dvaldi þar. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar
Hvammstanga: 0159-15-200135, kt. 711006-2140.
Jóhann Örn Ingimundarson Agla Sigríður Björnsdóttir
Svava Eyrún Ingimundard. Jónas Mikael Pétursson
Jón Ingi Ingimundarson Soffía H. Weisshappel
barnabörn og barnabarnabörn