Morgunblaðið - 01.02.2020, Síða 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
Það er með mikl-
um trega og söknuði
að ég kveð minn
besta vin og sam-
starfsfélaga til margra ára, Har-
ald Stefánsson, sem hefur nú farið
í sína hinstu för.
Okkar samstarf hófst þegar
Haraldur hóf störf í slökkviliðinu
á Keflavíkurflugvelli árið 1955.
Hafði undirritaður þá starfað þar
frá árinu 1952. Það kom fljótt í ljós
að hann var vel hæfur til starfsins,
bæði vegna hans mikla áhuga og
einnig að hann talaði enskuna al-
veg eins og innfæddur Banda-
ríkjamaður.
Haraldur fór fljótlega að stíga
upp stöðuhækkunarstigann og
var hann orðinn varaslökkviliðs-
stjóri árið 1986. Hann var verð-
ugur allra þeirra stöðuhækkana
sem hann hlaut. Sama ár fellur
Sveinn Eiríksson slökkviliðsstjóri
frá og tekur Haraldur þá við
slökkviliðsstjórastarfinu. Hann
tók einnig við framkvæmdastjórn
flugþjónustudeildar varnarliðsins
sem sér um snjóruðning og hál-
kuvarnir á flugbrautum og flug-
hlöðum.
Haraldur var mikill og góður
laxveiðimaður og held ég að hann
hafi veitt í flestöllum laxám á land-
inu. Hann kynntist bandarískum
manni sem var mikill áhugamaður
um laxveiðar og hann kom til Ís-
lands á hverju sumri til þess að
veiða með Haraldi.
Haraldur var meðlimur í Frí-
múrarareglunni og naut þess að
vinna innan reglunnar.
Slökkviliðið fékk mörg verð-
laun og viðurkenningar undir
stjórn Haraldar en hann fékk
einnig persónulegar viðurkenn-
ingar. Forseti Íslands sæmdi
Harald riddarakrossi hinnar ís-
lensku fálkaorðu og brunamála-
samtök Bandaríkjanna völdu
hann til þess að vera tekinn í
WORLD OF FAME sem er sá
mesti heiður sem nokkrum
slökkviliðsstjóra í Bandaríkjunum
getur hlotnast.
Yfirmenn flugvallarins, banda-
rískir officerar, báru fullt traust til
Haraldar og fékk hann allt sem til
starfseminnar þurfti.
Fyrir nokkrum árum varð Har-
aldur fyrir því að nýrun gáfu sig
og varð hann að fara í meðferð
sem útheimti innlögn á spítala
þrjá virka daga í viku fjóra tíma í
senn. Þetta var mikið áfall fyrir
Harald og alla fjölskyldu hans.
Fyrir stuttu fékk hann lungna-
bólgu og lést úr henni.
Eftirlifandi eiginkona Haraldar
er Erla Ingimarsdóttir og hefur
hún mátt þola mikla erfiðleika
þessi síðustu ár. En af dugnaði
barðist hún hetjubaráttu þar til
yfir lauk.
Ég þakka Haraldi kærlega fyr-
ir samfylgdina í gegnum árin og
guð blessi minningu hans.
Halldór Marteinsson.
Góður vinur minn, Halli Stef.,
hefur kvatt þennan heim. Hann
var yfirmaður minn í góð 40 ár og
það voru góð ár. Halli tók við sem
slökkviliðsstjóri árið 1986, þegar
Sveinn heitinn Eiríksson, þáver-
andi slökkviliðsstjóri, féll frá.
Halli var vel liðinn meðal starfs-
manna, klár og sérstaklega vel
fær í enskri tungu. Mér er það
minnisstætt að hlusta á fyrirlestra
sem Halli flutti á ensku, bæði hér
á landi og erlendis, hann einfald-
lega bar af, hans enska var flott-
ust. Árið 1991 gerði hann mig að
þjálfunarstjóra slökkviliðsins. Í
Haraldur
Stefánsson
✝ Haraldur Stef-ánsson fæddist
22. janúar 1937.
Hann lést 22. jan-
úar 2020.
Útför Haraldar
fór fram 31. janúar
2020.
kjölfarið hætti ég að
vinna vaktir og hafði
starfsaðstöðu nánast
við hlið hans, störf
okkar kröfðust þess
að við þurftum mikið
að sækja fundi og
ráðstefnur, bæði hér
á landi sem og er-
lendis. Það var mér
sérstök ánægja að
sitja fundi og ráð-
stefnur með okkar
manni, hann var ávallt sá sem
mest bar á. Honum var treyst,
hann vissi það rétta og lét í sér
heyra. Ég hef ekki tölu á þeim
ráðstefnum og fundum sem við
sóttum, þeir voru margir. Stund-
um sendi hann mig einan, einu
sinni alla leið til Havaí á fund um
notkun á sérstöku þjálfunartæki.
Slökkviliðið var flott þegar Halli
tók við af Sveini, hróður liðsins
bar af. Það er óhætt segja að und-
ir stjórn Halla lagaðist margt. Það
má líka þakka það ýmsu sem
breyttist hjá hernum og í sam-
félagi okkar. Halli var vel vakandi
yfir þeim möguleikum sem
slökkviliðinu og snjóruðningsdeild
þess stóð til boða, hér væri um
efni í heila bók að ræða. Ég get
ekki annað en minnst á tvo sér-
staka þætti sem okkar manni voru
mikilvægir og þótti vænt um. Lið-
ið fékk alþjóðlega vottun árið
2000, eftir fjögurra ára vinnu við
að heimfæra gæði starfa okkar og
öryggi. Einnig var honum hug-
stæð þátttaka okkar í samkeppni
slökkviliða innan varnarliða
Bandaríkjanna í brunavörnum,
sem voru okkar vinnuveitendur. Í
þessari samkeppni vorum við ár-
lega sigurvegarar eða í öðru sæti.
Velferð starfsmanna og liðsins var
honum mjög hugleikin, hér er af
svo miklu að taka að ekki er unnt
að koma meira að.
Síðustu árin sem hann starfaði
vann ég mikið honum, það kom
fyrir að ég leysti hann af í veik-
indum hans og þekkti því vel til
verkefna slökkviliðsstjóra. Þau
voru ærin, en í liðinu var valinn
maður í hverju rúmi, bæði í
slökkviliðinu og sjóruðningsdeild-
inni, þannig að það auðveldaði allt
utanumhald. Mér er margt
ógleymanlegt í okkar vináttu,
traustið stóð þar fremst, vináttan
og bróðurkærleikurinn. Við áttum
ánægjulega samleið í Frímúrara-
reglunni og Brunatæknifélagi Ís-
lands og í erlendum áhugafélög-
um um fag okkar. Um leið og ég
þakka þér fyrir vináttuna og fé-
lagsskapinn votta ég Erlu, afkom-
endum ykkar og vandamönnum
innilega samúð. Ég er full iss um
að H.H.H.H.o.j… mun greiða
götu þína að Hans heilaga altari ...
Sjáumst síðar í sumarlandinu,
kæri vinur.
Halldór Vilhjálmsson
Góður félagi, Haraldur Stef-
ánsson, fyrrverandi slökkviliðs-
stjóri á Keflavíkurflugvelli, er lát-
inn. Ég kynntist Haraldi þegar ég
fór að starfa í slökkviliðinu árið
1967 en Haraldur var þá í eldvarn-
areftirlitinu og skilaði því starfi
eins og öðru af mikilli prýði. Har-
aldur átti stóran þátt í að taka
saman það efni sem metið var til
þeirra viðurkenninga sem slökkvi-
liðinu hlotnaðist fyrir frábær störf
í gegnum árin.
Slökkvilið Keflavíkurflugvallar
var fyrsta slökkvilið hjá banda-
ríska varnarmálaráðuneytinu sem
tókst að uppfylla allar kröfur vott-
unar undir stjórn Haraldar.
Hann tók við sem slökkviliðs-
stjóri árið 1986. Haraldur lagði
mikla áherslu á að mennta sína
menn og auka víðsýni þeirra með
þátttöku í ráðstefnum og nám-
skeiðum. Hann vann virðingu yf-
irmanna flotastöðvarinnar og ís-
lenska utanríkisráðuneytisins,
enda gjarnan hafður í ráðum þeg-
ar taka þurfti stórar ákvarðanir er
vörðuðu m.a. flugvöllinn.
Haraldur var mikils metinn af
bandarískum slökkviliðsstjórum
sem störfuðu hjá hernum, fyrir
m.a. störf sín í þágu eldvarna. Þeir
völdu að minnast hans sem fyrr-
verandi félaga með því að setja
mynd af honum í „Hall of Fame“
sem er safn til heiðurs fyrrverandi
slökkviliðsstjórum sem skarað
hafa fram úr í brunamálum í
Bandaríkjunum.
Í tíð Haraldar var oft veitt að-
stoð til slökkviliða landsins og ým-
issa björgunarsveita bæði með
námskeiðum og æfingaaðstöðu,
þeim að mestu að kostnaðarlausu.
Einnig var mikil samvinna á milli
Brunamálastofnunar ríkisins og
slökkviliðsins sem tengdist
fræðslu og æfingaaðstöðu.
Haraldur var skipaður af utan-
ríkisráðuneytinu til að kanna
möguleika á að koma að stofnun
slökkviliðs fyrir Pristínaflugvöll í
Kósóvó, honum leist vel á hug-
myndina, þar sem þetta viðfangs-
efni gæti aukið þroska hans og
þekkingu. Hann skipaði fjóra
slökkviliðsmenn af vellinum í
verkefnið og þeir komu á fót
slökkviliði sem fékk alþjóðlega
viðurkenningu til að geta þjónað
flugvellinum.
Haraldur tók þátt í ýmsu fé-
lagsstarfi. Hann var einn af okkar
bestu laxveiðimönnum og hannaði
flugu sem víða er þekkt og heitir
Black Sheep (svarti sauðurinn).
Hann veiddi oft og hafði gaman af
því að segja góðar veiðisögur og
var frábær sögumaður. Hann var
einnig félagi í Frímúrarareglunni
og starfaði þar um árabil.
Hann var sæmdur stórriddara-
krossi íslensku fálkaorðunnar fyr-
ir vel unnin störf.
Haraldur var hrókur alls fagn-
aðar í góðra vina hóp.
Ég vil senda eiginkonu og
börnum mínar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Guðmundur Haraldsson.
Okkar innilegustu þakkir fyrir hlýhug og
samúð við andlát og útför okkar ástkæra
ÁRNA Þ. ÞORGRÍMSSONAR,
fv. flugumferðarstjóra,
sem lést mánudaginn 18. nóvember.
Helga Árnadóttir Árni Árnason
Þorgrímur St. Árnason Ásdís María Óskarsdóttir
Eiríka G. Árnadóttir Þórður M. Kjartansson
Ragnheiður Elín Árnadóttir Guðjón Ingi Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Emilía Ósk Guðjónsdóttir
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
SIGURLAUGUR ÞORKELSSON,
fv. skrifstofumaður,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund föstu-
daginn 24. janúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn
4. febrúar klukkan 13.
Halla H. Skjaldberg
Þorkell Sigurlaugsson Kristín H. Vignisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
STEFÁNS ARNAR STEFÁNSSONAR
vélaverkfræðings frá Húsavík,
Lundi 3, Kópavogi.
Gunnþórunn R. Þórhallsdóttir
Stefán Geir Stefánsson Anna María Gunnarsdóttir
Halla Stefánsdóttir
Finnur R. Stefánsson Steinunn Jónsdóttir
Rebekka Stefánsdóttir Emil Kárason
barnabörn og barnabarnabarn
Ástkær eiginkona, móðir, fóstra,
tengdamóðir, amma og langamma,
MATTHILDUR BIRNA BJÖRNSDÓTTIR,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
11. janúar.
Þökkum starfsfólki legudeildar fyrir hlýja og
góða umönnun.
Útför hefur farið fram.
Sturlaugur Björnsson
Elínborg Birna Sturlaugsd. Benedikt Þórisson
Björn Sturlaugsson Karen Sturlaugsson
Margrét Gunnarsdóttir Philippe Blanc
barnabörn og barnabarnabörn
Bróðir okkar, mágur og frændi,
SIGURÐUR ÞORLÁKSSON
frá Vík í Grindavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð
mánudaginn 27. janúar.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju
föstudaginn 7. febrúar klukkan 14.
Fyrir hönd aðstandenda,
Halldór Þorláksson
Kristólína Þorláksdóttir
Gísli Þorláksson
Gunnar Þorláksson
SKÚLI ÞORSTEINSSON,
barnakennari og bóndi
frá Læknisstöðum,
er látinn. Útför verður í Háteigskirkju
fimmtudaginn 6. febrúar klukkan 11.
Hólmfríður Aðalsteinsdóttir
Helga, Þorsteinn og Berglaug Skúlabörn
tengdabörn og barnabörn
Sálm. 86.11
biblian.is
Vísa mér veg þinn,
Drottinn, að ég
gangi í sannleika
þínum, gef mér
heilt hjarta, að ég
tigni nafn þitt.
Alúðarþakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur hjartahlýju og einstakan
stuðning við fráfall og útför okkar ástkæra
ÞORSTEINS ÁGÚSTSSONAR
á Syðra-Velli.
Margrét Jónsdóttir
Ingveldur Þorsteinsdóttir Andrés M. Haraldsson
Jón Gunnþór Þorsteinsson Ágúst Þorsteinsson
Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug og
fallegar kveðjur við andlát systur, mágkonu,
frænku, trúsystur og vinkonu margra,
RÓSU AÐALSTEINSDÓTTUR
frá Ási á Vopnafirði,
sem lést 16. desember 2019.
Ásmundur
Páll og Astrid
Katrín Stefanía, Enok Örn
Lýdía Linnéa og fjölskylda
Okkar innilegustu þakkir fyrir hlýhug og
samúð við andlát og útför okkar ástkæra
eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,
JÓNASAR SIGURÐAR MAGNÚSSONAR
rannsóknarlögreglumanns,
Logafold 131.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu og Lögreglukórinn.
Nanna Ólafsdóttir
Sigrún K. Jónasdóttir Eiríkur Ó. Jónsson
Anna H. Jónasd. Njåstad Arnstein Njåstad
Magnús Jónasson Þóra M. Guðmundsd. Bech
Helga Á. Jónasdóttir Hrafnkell Stefánsson
og barnabörn