Morgunblaðið - 01.02.2020, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020 31
Dalabyggð - hjúkrunarframkvæmdastjóri
Nánari upplýsingar:
Ari Eyberg (ari@intellecta.is)
Thelma kristín Kvaran (thelma@intellecta.is)
Umsóknarfrestur: 10. febrúar 2020.
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum
áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Gengið er út frá því að starfsmaðurinn verði búsettur í Dalabyggð.
Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf.
Dalabyggð óskar að ráða drífandi einstakling í starf hjúkrunarframkvæmdastjóra Dvalar- og hjúkrunarheimilisins
Silfurtúns í Búðardal. Leitað er að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi með faglega sýn. Á Dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Silfurtúni eru 10 hjúkrunarrými og 2 dvalarrými. Þar starfa um 15 starfsmenn. Um 100%
starfshlutfall er að ræða.
• Háskólagráða í hjúkrunarfræði er nauðsynleg,
framhaldsmenntun og reynsla er kostur
• Brennandi áhugi á þróun þjónustu og uppbyggingu
heimilisins
• Hæfni í mannlegum samskiptum og góður samstarfsvilji
• Frumkvæði, áreiðanleiki, drifkraftur, þrautseigja
• Reynsla og/eða þekking af rekstri. Þekking á RAI-mati
er æskileg
• Fagleg ábyrgð og forysta um hjúkrun og
þjónustu við íbúa
• Yfirsýn og mótun skipulags fyrir heimilið
• Stefnumótun, markmiðasetning og
árangursmælingar
• Uppbygging mannauðs og liðsheildar ásamt
ábyrgð á starfsmannamálum
• Umsjón með og ábyrgð á rekstri og stjórnun
heimilisins
Í Dalabyggð búa tæplega 700 manns, þar
af um 40% í Búðardal. Sveitarfélagið nær
frá Álftafirði á Snæfellsnesi til Gilsfjarðar á
mörkum Vestfjarða og býr yfir mikilli friðsæld
og náttúrufegurð.
Vel er búið að íbúum Dalabyggðar, öflugt
tómstundastarf fyrir börn, leik- og grunnskóli.
Meðal annarrar þjónustu má nefna matvöru-
verslun, heilsugæslu, banka, pósthús,
bifreiðaverkstæði, snyrtistofu, vínbúð,
veitingastaði og fjölbreytta ferðaþjónustu.
Nánari upplýsingar um þjónustu sveitar-
félagsins er að finna á www.dalir.is
Hæfnikröfur: Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
ÖRYGGISVÖRÐUR
SECURITY GUARD
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu
öryggisvarðar lausa til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar
2020. Frekari upplýsingar er að finna á
heimasíðu sendiráðsins:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Umsóknir skulu sendar í gegnum Electronic
Recruitment Application (ERA)
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking
an individual for the position of Security
Guard. The closing date for this postion is
February 9, 2020. Application instructions
and further information can be found on the
Embassy’s homepage:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Applications must be submitted through
Electronic Recruitment Application (ERA).
Atvinnuauglýsingar 569 1100