Morgunblaðið - 01.02.2020, Page 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
Í blaðinu verður fjallað um
tísku, förðun, snyrtingu, heilsu,
fatnað, umhirðu húðarinnar,
dekur og fleira.
–– Meira fyrir lesendur
SÉRBLAÐ
SMARTLAND
BLAÐ
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 14. febrúar.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
BERGLIND GUÐRÚN BERGMANN
Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is
60 ára Sigurður er Ís-
firðingur og rekur sorp-
hirðufyrirtækið Kubb
ásamt eiginkonu sinni.
Hann situr í stjórn
Skógræktarfélags Ísa-
fjarðar.
Maki: Sigríður Laufey
Sigurðardóttir, f. 1972, framkvæmda-
stjóri Kubbs.
Börn: Dagný Ósk, f. 1980, Esther Sif,
1987, Sara Rós, f. 1991, Erla Rut, f. 1995,
og Pétur Örn, f. 2006. Stjúpdóttir er
Svanhildur Garðarsdóttir, f. 1984. Barna-
börnin eru orðin sjö.
Foreldrar: Óskar Örn Hálfdánarson, f.
1931, d. 2013, bifreiðarstjóri, og Dagný
Jóna Jóhannsdóttir, f. 1940, fv. fiskverka-
kona, búsett á Ísafirði.
Sigurður Guðmundur
Óskarsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér er alveg óhætt að taka minni-
háttar áhættu svona til tilbreytingar. Efldu
sjálfstraust þitt og leitaðu svara við spurn-
ingum.
20. apríl - 20. maí
Naut Fátt er verðmætara en góður vinur.
Hlauptu undir bagga með vini. Þú færð til-
boð sem þú getur varla hafnað.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér verður óvenju mikið úr verki
þessa dagana og afköstin eru eftir því.
Komdu böndum á eyðsluna.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert undir miklu álagi og þarft
nauðsynlega að draga úr því, því annars
áttu á hættu að það komi fram í líkam-
legum kvillum. Ekki kaupa óþarfa.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt miklu skipti að ná árangri í starfi
máttu ekki gleyma gleðinni. Þú færð fullt
af snjöllum hugmyndum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú rekur þig á að það er misjafn
sauður í mörgu fé. Sýndu fólki fram á að
þú sért traustsins verð/ur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að láta vinnuna ganga fyrir
öllu öðru svo þér takist að ljúka við þau
verkefni sem fyrir liggja. Verslun og við-
skipti ganga vel í dag.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Grípið tækifærið til að ferðast
eða auka þekkingu ykkar. Heimurinn
stöðvast ekki þótt eitthvað bjáti á svo þér
er best að halda áfram.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Einmitt þegar þú hélst að þú
værir laus við ákveðið mál, er því dembt
aftur á þitt borð. Fyrr eða síðar kemur
þinn tími, þú þarft bara að bíða þolinmóð/
ur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þið hjónin ættuð að setjast nið-
ur og gera fjárhagsáætlun. Búðu þig undir
að kynnast nýju fólki sem á eftir að hrista
upp í hugmyndum þínum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Byrjaðu á einhverju nýju í dag,
hvort sem það er að hugleiða, borða meira
grænmeti eða synda. Einhver leggur fyrir
þig gátu sem fær þig til að hugsa ýmislegt
upp á nýtt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hæfileikar þínir eru ótvíræðir og
vekja aðdáun annarra og stundum öfund.
Leggðu allt kapp á að finna farsæla lausn
á vandamáli svo þú getir sofið róleg/ur.
ursfélagi í Vitanum, félagi áhuga-
ljósmyndara á Akranesi, einnig
hefur hann hlotið margar viður-
kenningar fyrir fréttaljósmyndir í
gegnum árin.
Guðrún Guðlaugsdóttir skrifaði
kafla um Gunnar í bók sinni, Í
hörðum slag, og hann prýða einnig
70 myndir frá ævistarfi Gunnars.
Sigurður Bogi Sævarsson skrifaði
einnig kafla um Gunnar í bók
sinni, Fólk og fréttir. „Bókarkafl-
inn bar heitið Með fjórum for-
formaður deildarinnar í þrjú ár og
sat þá einnig í aðalstjórn Fram.
Stjórnin var afkastamikil en Gunn-
ar var formaður þegar skíðaskáli
Fram, Eldborg, var vígður 1993.
Gunnar var sæmdur gullmerki
Skíðasambands Íslands og gull-
merki Fram fyrir sín störf. Blaða-
mannafélag Íslands sæmdi Gunnar
gullmerki félagsins 2017. Gunnar
var sæmdur riddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu 1.1. 2018 fyrir
störf á fjölmiðlum. Hann er heið-
G
unnar Valberg Andrés-
son fæddist 1. febrúar
í Reykjavík og ólst
upp hjá móðurömmu
sinni í Stórholti 25.
„Æskuslóðirnar voru Holtin og ná-
grenni. Ég fór fyrst í sveit að
Hrappsstöðum í Vopnafirði sum-
arið sem ég varð átta ára gamall
og var næstu níu sumur og einn
vetur hjá því góða fólki sem ég hef
ætíð haldið góðu sambandi við.“
Gunnar gekk í Austurbæjar-
skóla og lauk þaðan unglingaprófi.
Hann byrjaði að vinna á dag-
blaðinu Tímanum nýorðinn 17 ára
gamall við myndamótagerð og fór
að taka myndir sem birtust í
Sunnudagsblaði Tímans strax
fyrsta starfsárið. Þar með var
starfsferillinn hafinn sem frétta-
ljósmyndari. „Ég fékk myndavél í
fermingargjöf og taldi mig hafa
auga fyrir að taka myndir en svo
þroskaðist ég á Tímanum hjá góðu
fólki.“
Árið 1978 hóf Gunnar störf við
ljósmyndadeild Vísis sem síðar
varð DV 1981 og starfaði þar til
ársins 2003. Hann hóf störf á
Fréttablaðinu 2003 og var þar til
starfsloka 1.5. 2018. Hann myndaði
því helstu stórviðburði þjóðarinnar
í rúm 50 ár. „Ég er afar þakklátur
fyrir að hafa sloppið í gegnum fer-
ilinn skammlaust. Ég hafði allan
tímann mjög gaman af vinnunni,
en það er gott að hafa fengið hvíld-
ina frá henni. Ég er forvitinn að
eðlisfari og alltaf haft löngun til að
segja söguna í mynd. Það rak
mann áfram til að vera með nefið
ofan í öllu en fréttaljósmyndun
getur líka verið erfitt starf.“
Gunnar tók að sér alls konar
ljósmyndastörf fyrir ýmiss konar
útgáfur og myndir hans hafa prýtt
margar bækur. Gunnar hefur
skrifað ferðagreinar tengdar
áhugamálum sínum eins og fjall-
göngum, hestamennsku og skíða-
mennsku. Hann sat í stjórn Blaða-
mannafélags Íslands um tíma.
Gunnar hefur verið Framari frá
fyrstu tíð. Hann var einn af stofn-
endum skíðadeildar Fram og starf-
aði í stjórninni í tíu ár og þar af
setum, en síðan þá tók ég myndir
af Guðna forseta, svo forsetarnir
eru orðnir fimm sem ég hef mynd-
að.“
Í dag eru áhugamál Gunnars
tengd hreyfingu. „Ég fer reglulega
í sund og ræktina og spila golf
hvenær sem færi gefst bæði að
sumri og vetri og bæði hér heima
og erlendis.“
Fjölskylda
Gunnar kvæntist hinn 23.11.
1974 Önnu K. Ágústsdóttur, f.
13.1. 1951. Þau eru búsett í Mos-
fellsbæ. Foreldrar Önnu: Hjónin
Ágúst Guðjónsson, f. 2.8. 1923, d.
28.7. 2004, múrari, bjó síðustu árin
í Breiðholti, og Svanhvít Gissurar-
dóttir, f 3.11. 1931, húsmóðir og
býr í Breiðholti. Þau gengu í
hjónaband 12.2. 1950.
Börn Gunnars og Önnu eru: 1)
Hrefna Kap, f. 16.6. 1969, kerf-
isfræðingur, býr í Hafnarfirði.
Börn: Hilmir Hrafn Hilmarsson, f.
26.5. 1996, Lýður Sveinsson, f.
17.7. 2002, og Arna Sveinsdóttir, f.
5.7. 2004, búa í foreldrahúsum; 2)
Alda Valberg, f 14.8. 1970, launa-
og stjórnsýslufulltrúi, býr í Breið-
holti. Maki: Karl Pálsson, f. 28.3.
1968, flugvirki. Börn þeirra:
Brynjar Karl, f. 7.7. 1990, Birkir, f.
21.10. 1994, og Gunnbjörn, f. 18.10.
1998, búa í foreldrahúsum. Barna-
börn: Gunnar Atli Brynjarsson, f.
22.6. 2011, og Þorbjörg Unnur
Birkisdóttir, f. 12.6. 2013; 3) Ágúst
Ævar, f. 22.9. 1976, grafískur
hönnuður og einn þriggja stofn-
enda hljómsveitarinnar Sigur Rós-
ar, býr í Reykjavík. Maki: Ilmur
Dögg Gísladóttir, f. 21.11. 1977,
forstöðumaður. Börn þeirra: Saga
Huld, f. 2.8. 2000, Ýmir Hugi, f.
15.4. 2003, og Úlfar Högni, f. 30.12.
2007, búa í foreldrahúsum; 4) Þor-
björg Svana, f. 26.10. 1979, hár-
snyrtir og útstillingahönnuður, býr
í Grafarvogi. Börn: Lilja Nótt Lár-
usdóttir, f. 29.9. 2001, Anna Lísa
Andrésdóttir, f. 8.10. 2008, og
Gunnar Rökkvi Andrésson, f. 21.9.
2010, búa í foreldrahúsum.
Hálfsystkini Gunnars sam-
mæðra: Þorbjörn Jóhann Sveins-
Gunnar V. Andrésson fréttaljósmyndari – 70 ára
Fjölskyldan Gunnar og Anna, börn, tengdabörn og barnabörn árið 2018.
Löngun til að segja söguna í mynd
Gengið á toppinn Gunnar á leiðinni
á Hvannadalshnúk, í þriðja sinn.
Ljósmyndarinn Gunnar vann við
fréttaljósmyndun í meira en 50 ár.
50 ára Þorsteinn er
frá Grenivík en býr í
Garðabæ. Hann er
með BS-gráðu í líf-
fræði frá HÍ og á og
rekur Handverks-
húsið. Hann varð Ís-
landsmeistari með KR
í fótbolta.
Maki: Lovísa Halldórsdóttir, f. 1981, gull-
smiður og eigandi By Lovísa skartgripir.
Börn: Kári Eldjárn, f. 1995, Þorbjörn Ey-
fjörð, f. 2003, og Þórhildur Salka, f. 2011.
Stjúpdætur eru Guðný Helga, f. 2005, og
Ingibjörg Agnes, f. 2010, Garðarsdætur.
Foreldrar: Jón Þorsteinsson, f. 1943,
sjómaður og húsasmiður, og Sigríður
Arnþórsdóttir, f. 1945, fv. verslunar-
maður. Þau eru búsett á Grenivík.
Þorsteinn Eyfjörð
Jónsson
Til hamingju með daginn
Katastaðir Sóley Ómarsdóttir fæddist 19.
mars 2019 kl. 1.30. Hún vó 14½ mörk og var
50 cm löng. Foreldrar hennar eru Halldís
Gríma Halldórsdóttir og Ómar Gunnarsson.
Nýr borgari