Morgunblaðið - 01.02.2020, Page 40
KÖRFUBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Stjörnumenn eru komnir í kjörstöðu í
Dominos-deild karla í körfubolta eftir
89:84-sigur á Njarðvík á heimavelli í
16. umferðinni í gærkvöld. Sigurinn
var sá tólfti í röð hjá Stjörnumönnum,
sem náðu aftur fjögurra stiga forskoti
á toppi deildarinnar. Stjarnan mætir
Grindavík, Val og Þór Akureyri í
næstu þremur leikjum. Stjörnumenn
eru töluvert sigurstranglegri í öllum
leikjunum og fari allt eftir bókinni
verður Stjarnan jafnvel búin að
tryggja sér deildarmeistaratitilinn
annað árið í röð í byrjun mars. Síðasti
tapleikur Stjörnunnar kom 25. októ-
ber.
Stjörnumenn voru efstir í deildinni
yfir hátíðarnar og í staðinn fyrir að
dást að sjálfum sér náðu þeir í Urald
King og Gunnar Ólafsson og styrktu
sig enn frekar. Stjarnan er í sókn og
það er erfitt að sjá nokkurt lið vinna
Stjörnuna nægilega oft til að koma í
veg fyrir að liðið verði Íslandsmeist-
ari þegar upp er staðið. Eftir sjö sig-
urleiki í röð hefur Njarðvík nú tapað
þremur af síðustu fjórum. Njarðvík-
ingar eru skrefinu á eftir bestu liðum
landsins.
Staðan erfið fyrir Fjölni
Sigur Grindavíkur á Fjölni á heima-
velli var mikilvægur fyrir tvær sakir.
Annars vegar eru Grindvíkingar nú
jafnir Þór Þorlákshöfn á stigum í 8.-9.
sæti í slagnum um sæti í úrslitakeppn-
inni. Hins vegar eru þeir nú tveimur
stigum fyrir ofan Val sem er í fallsæti.
Seth Le Day spilaði sinn fyrsta leik
fyrir Grindavík og hann lofar góðu.
Bandaríkjamaðurinn skoraði 23 stig
og tók 10 fráköst. Sigtryggur Arnar
Björnsson skoraði einnig 23 stig. Lyk-
ilmenn Fjölnis náðu sér ekki almenni-
lega á strik og skoraði enginn meira
en 13 stig hjá gestunum.
Grindvíkingar vona að leikurinn sé
merki um það sem koma skal eftir
fimm tapleiki í röð í deildinni. Fjöln-
ismenn eru átta stigum frá öruggu
sæti þegar aðeins sex umferðir eru
eftir. Fjölnir er aðeins með einn sigur
til þessa og þarf ansi margt að breyt-
ast til að liðið fari ekki beint aftur nið-
ur í 1. deildina.
Stjörnumenn
í kjörstöðu
Kærkominn sigur Grindvíkinga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stjarna Nikolas Tomsick skýtur yfir Loga Gunnarsson í Garðabænum.
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
Holland
AZ Alkmaar – Waalwijk ......................... 4:0
Albert Guðmundsson hjá AZ er frá
keppni vegna meiðsla.
B-deild:
Excelsior – Breda .................................... 2:2
Elías Már Ómarsson lék fyrstu 84 mín-
úturnar með Excelsior.
Frakkland
B-deild:
Troyes – Grenoble................................... 1:2
Kristófer Ingi Kristinsson lék síðustu 17
mínúturnar með Grenoble.
England
B-deild:
Cardiff – Reading..................................... 1:1
Derby – Stoke........................................... 4:0
Olísdeild kvenna
HK – Stjarnan ...................................... 32:28
Staðan:
Fram 13 12 0 1 409:274 24
Valur 13 10 1 2 366:266 21
Stjarnan 14 6 3 5 349:340 15
HK 14 6 2 6 380:389 14
Haukar 13 5 2 6 283:314 12
ÍBV 13 4 2 7 286:311 10
KA/Þór 13 5 0 8 297:365 10
Afturelding 13 0 0 13 248:359 0
Grill 66 deild kvenna
Grótta – Víkingur ................................. 27:24
Staða efstu liða:
Fram U 14 14 0 0 470:326 28
FH 14 11 1 2 395:308 23
Selfoss 14 10 2 2 332:293 22
Grótta 15 10 1 4 382:359 21
ÍR 14 8 1 5 371:348 17
Valur U 15 7 1 7 412:398 15
Grill 66 deild karla
Grótta – Víkingur ................................. 25:26
Staða efstu liða:
Þór Ak. 10 8 2 0 307:264 18
Valur U 11 8 1 2 332:305 17
Grótta 11 7 0 4 318:309 14
Haukar U 10 6 1 3 294:262 13
Þróttur 11 4 2 5 325:315 10
FH U 11 4 1 6 315:329 9
Þýskaland
Leverkusen – Thüringer .................... 34:25
Hildigunnur Einarsdóttir var ekki í leik-
mannahópi Leverkusen.
B-deild:
Gummersbach – Lübeck-Schwartau 27:12
Sigtryggur Daði Rúnarsson skoraði 2
mörk fyrir Lübeck-Schwartau.
Danmörk
Bjerringbro/Silkeborg – Fredericia 33:29
Þráinn Orri Jónsson skoraði 1 mark fyr-
ir Bjerringbro/Silkeborg.
Kolding – Tvis Holstebro ................... 22:25
Ólafur Gústafsson og Árni Bragi Eyj-
ólfsson komust ekki á blað hjá Kolding.
Frakkland
Chambray – Bourg-de-Péage............ 21:22
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir skor-
aði 5 mörk fyrir Bourg-de-Péage.
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
GFCA – París SG ................................. 25:39
Guðjón Valur Sigurðsson lék með PSG
sem er komið í 8-liða úrslit.
Dominos-deild karla
Stjarnan – Njarðvík ............................. 89:84
Grindavík – Fjölnir............................... 91:75
Staðan:
Stjarnan 16 14 2 1460:1302 28
Keflavík 16 12 4 1425:1293 24
Tindastóll 16 10 6 1403:1336 20
KR 16 10 6 1387:1341 20
Haukar 16 10 6 1430:1366 20
Njarðvík 16 9 7 1364:1239 18
ÍR 16 8 8 1351:1436 16
Þór Þ. 16 6 10 1280:1314 12
Grindavik 16 6 10 1346:1415 12
Þór Ak. 16 5 11 1371:1523 10
Valur 16 5 11 1278:1389 10
Fjölnir 16 1 15 1354:1495 2
1. deild karla
Sindri – Skallagrímur .......................... 91:73
Staðan:
Höttur 16 14 2 1376:1199 28
Breiðablik 15 13 2 1529:1257 26
Hamar 15 13 2 1472:1307 26
Álftanes 16 8 8 1366:1395 16
Vestri 14 7 7 1231:1140 14
Selfoss 14 5 9 1076:1126 10
Sindri 13 2 11 1055:1181 4
Snæfell 15 2 13 1200:1481 4
Skallagrimur 14 2 12 1136:1355 4
NBA-deildin
Cleveland – Toronto......................... 109:115
Washington – Charlotte................... 121:107
Atlanta – Philadelphia ..................... 127:117
Boston – Golden State...................... 119:104
Denver – Utah .................................. 106:100
LA Clippers – Sacramento .............. 103:124
Jóhann Berg Guðmundsson verður
ekki með Burnley gegn Arsenal í
ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á
morgun vegna meiðsla í læri. Jó-
hann varð fyrir meiðslunum í bik-
arleik gegn Peterborough í byrjun
árs. Í fyrstu var talið að þau væru
ekki alvarleg og Jóhann yrði klár í
slaginn í næstu leiki. Nú er hins
vegar kominn tæpur mánuður síð-
an Jóhann meiddist og leikurinn á
morgun er sá fimmti sem hann
missir af. Hann fær síðan tvær vik-
ur til að verða klár fyrir næsta leik
Burnley sem er 15. febrúar.
Jóhann missir af
einum leik enn
Ljósmynd/Burnley
Burnley Jóhann Berg Guðmunds-
son er óheppinn með meiðsli.
Bourg-De-Péage vann dýrmætan
22:21-sigur á Chambray á útivelli í
frönsku A-deildinni í handbolta í
gærkvöld. Með sigrinum fjarlægð-
ist Bourg-De-Péage fallsætin.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir
átti góðan leik fyrir Bourg-De
Péage og var markahæst með fimm
mörk. Hrafnhildur hefur leikið vel
með liðinu á sínu fyrsta ári sem at-
vinnumaður erlendis.
Bourg-de-Péage er í sjöunda sæti
af tólf í frönsku A-deildinni með 30
stig, tveimur stigum fyrir ofan fall-
umspil.
Atkvæðamest í
dýrmætum sigri
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Frakkland Hrafnhildur Hanna
Þrastardóttir er að gera góða hluti.
HK er komið upp í fjórða sæti Ol-
ísdeildar kvenna í handbolta eftir
32:28-sigur á Stjörnunni á heima-
velli í fyrsta leik 14. umferðarinnar
í gærkvöld. Staðan í hálfleik var
16:12. Tókst Stjörnunni að minnka
muninn í eitt mark skömmu fyrir
leikslok, 29:28. HK skoraði hins
vegar þrjú síðustu mörkin og
tryggði sér sigur. Jóhanna Margrét
Sigurðardóttir átti afar góðan leik
fyrir HK og skoraði tíu mörk úr ell-
efu skotum. Valgerður Ýr Þor-
steinsdóttir bætti við sjö mörkum.
Stefanía Theodórsdóttir skoraði
átta fyrir Stjörnuna. Stjarnan er í
þriðja sæti með 15 stig og HK í
fjórða sæti með einu stigi minna.
Fjögur efstu sætin gefa þátt-
tökurétt í úrslitakeppninni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sjö Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir skorar eitt sjö marka sinna í gær.
HK í baráttuna um
sæti í úrslitakeppninni
Körfuknattleiksdeild Tindastóls gerði í gær nýja tveggja
ára samninga við sex leikmenn meistaraflokks karla,
sem og Jen Bezica, aðstoðarþjálfara liðsins.
Axel Kárason, Hannes Ingi Másson, Helgi Rafn
Viggósson, Jaka Brodnik, Pétur Rúnar Birgisson og Við-
ar Ágústsson gerðu allir nýja samninga sem gilda til árs-
ins 2022.
Helgi Rafn, Pétur Rúnar, Hannes Ingi og Viðar hafa
leikið með Tindastóli allan sinn feril. Axel, sem er uppal-
inn hjá Tindastóli, á eitt tímabil með Skallagrími og þá
lék hann í sjö ár í Danmörku. Brodnik kom til félagsins
frá Þór Þorlákshöfn fyrir tímabilið, eins og Baldur Þór
Ragnarsson, þjálfari Tindastóls.
Brodnik hefur tekið flest fráköst hjá Tindastóli á tímabilinu eða 7,4 að
meðaltali í leik. Pétur Rúnar hefur gefið flestar stoðsendingar, 4,1 að með-
altali. Tindastóll er í þriðja sæti deildarinnar með 20 stig, eins og KR og
Haukar. Þá er liðið komið í undanúrslit Geysisbikarsins.
Penninn á lofti á Króknum
Pétur Rúnar
Birgisson
Nígerski knattspyrnumaðurinn Odion Ighalo leikur með
Manchester United út leiktíðina hið minnsta. Enska fé-
lagið fær hann að láni frá Shanghai Shenhua í Kína þar
sem hann hefur skorað tíu mörk í sautján leikjum á tíma-
bilinu. Ighalo hefur leikið í Kína frá árinu 2017 en þar á
undan skoraði hann 33 mörk í 82 leikjum með Watford í
ensku úrvalsdeildinni. Marcus Rashford er að glíma við
meiðsli og eru fáir sóknarmenn til taks hjá United, því
var leitað til Ighalo.
Einn Íslendingur skipti um félag í gærkvöldi. Mosfell-
ingurinn Ísak Snær Þorvaldsson var lánaður til Fleetwo-
od í C-deildinni frá Norwich. Lánssamningurinn gildir
til loka leiktíðarinnar. Hinn 18 ára gamli Ísak Snær hefur leikið mjög vel
með varaliði Norwich á leiktíðinni og skorað eitt mark í 13 leikjum. Hinn
skrautlegi Joey Barton er knattspyrnustjóri Norwich. Fleiri fréttir af loka-
degi félagsskiptagluggans má nálgast á mbl.is/sport.
Óvænt orðinn leikmaður United
Odion
Ighalo