Morgunblaðið - 01.02.2020, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
Eftir að nýr áratugur rann upp
í tímatali sem margir jarðarbúar
miða við hafa verið tínd til dæmi
um íþróttafólk sem náð hefur
áföngum á fjórum mismunandi
áratugum.
Eitt af því sem fjallað hefur
verið um er sú staðreynd að
bandaríska tenniskonan Serena
Williams hefur unnið atvinnu-
mannamót í íþróttinni á fjórum
mismunandi áratugum.
Er það athyglisvert, þar sem
Williams kom ekki í heiminn fyrr
en í september árið 1981. Hún
náði hins vegar að komast í
fremstu röð áður en síðasta öld
var á enda. Náði meira að segja
að vinna fyrsta risamót sitt þeg-
ar hún sigraði í einliðaleik á
Opna bandaríska árið 1999.
Williams var ekki nema fjór-
tán ára þegar hún komst í fyrsta
skipti inn á atvinnumannamót.
en deila má um hversu heilbrigt
það er. Hún gerðist hins vegar
atvinnumaður þegar hún hafði
náð 16 ára aldri og þá gáfu for-
eldrarnir leyfi.
Tennisíþróttin er erfið og
æfingaálagið er mjög mikið. Þar
af leiðandi er um merkilegt af-
rek að ræða. Takist henni að
bæta við sigri í einliðaleik á
risamóti áður en hún lætur
staðar numið verður um enn
stærra afrek að ræða. Þá gæti
hún státað af sigri í einliðaleik á
risamótum á fjórum mismun-
andi áratugum.
Martinu Navratilovu tókst að
sigra á risamótum á fjórum mis-
munandi áratugum, eða frá
1978 til 2006. En þar var ekki
eingöngu um einliðaleik að
ræða. Navratilova hélt lengi
áfram að landa sigrum í tvennd-
arleik þegar leið á ferilinn. Síð-
asti risatitill hennar kom ekki
fyrr en árið 2006, þegar hún var
tæplega fimmtug.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Hleðsluhöllin: Selfoss – ÍBV.................. L16
KA-heimilið: KA – HK ........................... L18
TM-höllin: Stjarnan – ÍR ....................... L19
Kaplakriki: FH – Haukar ...................... L20
Framhús: Fram – Fjölnir....................... S16
Origo-höll: Valur – Afturelding ........ S17.15
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
KA-heimilið: KA/Þór – Afturelding...... L16
Ásvellir: Haukar – Fram................... L16.30
Origo-höllin: Valur – ÍBV....................... S15
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Kaplakriki: FH – Fylkir ........................ L17
Hleðsluhöllin: Selfoss – ÍR ............... L18.15
Framhús: Fram U – ÍBV U .............. S18.15
Kórinn: HK U – Fjölnir..................... S19.30
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Ásvellir: Haukar U – Þór Ak ................. L14
TM-höllin: Stjarnan U – KA U .............. S18
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Blue-höllin: Keflavík – Þór Ak.......... S19.15
Sauðárkrókur: Tindastóll – KR ........ S19.15
Hertz-hellirinn: ÍR – Haukar............ S19.15
IG-höllin: Þór Þ. – Fjölnir ................. S19.15
1. deild kvenna:
Blue-höllin: Keflavík b – Njarðvík ........ L16
Dalhús: Fjölnir – Grindavík b ............... L16
KNATTSPYRNA
Norðurlandsmót ka., Kjarnafæðismótið:
Boginn: KA – Þór............................... L13.30
Fótbolti.net mót karla:
Skessan: FH – Grindavík.................. L10.45
Kórinn: HK – Grótta ......................... L11.15
Samsung-völlur: Stjarnan – ÍBV ..... L11.30
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla, Hertz-deildin:
Akureyri: SA – SR............................. L16.45
REYKJAVÍKURLEIKAR
Frjálsíþróttamót RIG er í Laugardalshöll á
morgun kl. 16 til 18. Dagskráin að öðru
leyti er á rig.is.
UM HELGINA!
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Sænska handknattleiksliðið Guif í
Eskilstuna greindi frá því í gær að
það hefði nælt í markvörðinn Daníel
Frey Andrésson fyrir næsta keppn-
istímabil. Daníel leikur því með Val út
keppnistímabilið og heldur til Sví-
þjóðar í sumar. Hann lék áður með
Ricoh í efstu deild í Svíþjóð en kom
heim sumarið 2018.
„Þegar ég kom heim var alltaf
stefnan að fara út aftur ef mér byðist
eitthvað sem hentaði vel. Samningur
minn við Val rennur út í sumar og
mér fannst þetta spennandi. Ég hef
verið á þessu svæði því þetta er rétt
hjá Stokkhólmi þar sem ég var síðast.
Ég þekki mig nokkuð vel þarna,“
sagði Daníel þegar Morgunblaðið
hafði samband við hann í gær. „Ég
var ekki að velja á milli tilboða. Þetta
kom inn á borð til mín fyrir nokkrum
vikum og hefur verið í vinnslu í tvær
til þrjár vikur. Við komumst svo að
fínu samkomulagi.“
Búferlaflutningarnir til Svíþjóðar í
sumar koma til með að einfalda
einkalíf Daníels talsvert því hann á
sænska kærustu og er hún í námi í
Stokkhólmi.
„Hún býr í Stokkhólmi og því pass-
ar það mjög vel. Þar er hún í námi og
síðustu tvo vetur höfum við verið að
fljúga á milli. Guif er eina liðið á
þessu svæði sem er í efstu deild og
því er þetta góð niðurstaða.“
Meiri umgjörð í Svíþjóð
Daníel segir sænsku deildina ekki
ósvipaða þeirri íslensku hvað styrk-
leika varðar. Allra bestu liðin í Sví-
þjóð séu þó betri en allra bestu liðin
hér.
„Sænska deildin er sterkari en
Olísdeildin en munurinn er ekki gíg-
antískur. Danska deildin er auðvitað
besta deildin á Norðurlöndunum en
bestu liðin í Svíþjóð myndu vænt-
anlega vinna íslensku deildina ef
maður ber þetta saman. Bestu liðin á
Íslandi myndu einnig komast í úr-
slitakeppnina í Svíþjóð og gætu gert
ágæta hluti. Það er auðvitað munur á
umgjörðinni en hún er stærri og
meiri í kringum leikina í Svíþjóð,“
bendir Daníel á.
Hann nýtur reynslunnar af því að
spila í sænsku deildinni og veit út í
hvað hann er að fara. „Fyrst kom ég
til Eskilstuna í æfingaferð með FH
fyrir löngu. Síðan þá hef ég komið
þangað nokkrum sinnum. Auk þess
hafa nokkrir Íslendingar verið hjá fé-
laginu,“ sagði Daníel en Kristján
Andrésson lék og þjálfaði liðið. Hauk-
ur bróðir hans lék með liðinu. Fetuðu
þeir þá í fótspor föður síns, Andrésar
Kristjánssonar, sem lék með Guif og
þjálfaði síðar kvennalið félagsins.
Línumennirnir Heimir Óli Heimisson
og Atli Ævar Ingólfsson léku með lið-
inu og markvörðurinn Aron Rafn Eð-
varðsson.
Valsliðið að taka á sig mynd
Íslandsmótið er nýfarið í gang eftir
langt frí sem gert er vegna hátíða-
halda og landsliðsverkefna. Valur er í
3. sæti, fjórum stigum á eftir toppliði
Hauka, og liðið vann góðan útisigur á
ÍBV þegar deildin fór í gang á ný.
„Jú, það er hrikalega skemmtilegt
að vera kominn af stað aftur. Við
Valsarar erum vel stemmdir fyrir
seinni hluta tímabilsins. Eftir erfiða
byrjun í haust náðum við okkur vel á
strik. Við erum einnig með í Áskor-
endakeppni Evrópu og því verða
næstu mánuðir mjög spennandi. Við
erum með hrikalega öflugt lið og sér-
staklega þegar allir eru heilir. Staðan
á leikmannahópnum er betri núna en
stundum áður og síðustu mánuðir
hafa gengið nokkuð smurt. Manni
finnst eins og þetta sé allt að smella
nú þegar Magnús Óli og Agnar eru
báðir að komast í gott form,“ sagði
Daníel Freyr Andrésson í samtali við
Morgunblaðið.
Hentar vel að fara til Guif
Markvörðurinn Daníel Freyr Andrésson fer aftur til Svíþjóðar í sumar
Samdi við Íslendingalið Næstu mánuðir með Val verða spennandi
Morgunblaðið/Eggert
Í markinu Daníel Freyr Andrésson á vaktinni en Hafnfirðingurinn er á sínu öðru tímabili á Hlíðarenda.
Hilmar Snær Örvarsson úr Víkingi
vann sín þriðju gullverðlaun í Sló-
vakíu í gær á Evrópumótaröð IPC,
Alþjóðaólympíuhreyfingar fatl-
aðra. Hilmar keppti í svigi og sam-
anlagður tími hans eftir báðar ferð-
irnar var 1:50,49 mínútur.
Hilmar vann því tvö svigmót og
eitt stórsvigsmót í Slóvakíu í vik-
unni og er nú efstur á stigalista
Evrópumótaraðarinnar bæði í svigi
og stórsvigi. Hann kemur nú heim
en fer aftur utan í lok febrúar og
keppir í Zagreb á lokamóti Evrópu-
mótaraðarinnar.
Þriðja gull Hilm-
ars í Slóvakíu
Ljósmynd/ÍF
Þrenna Hilmar Snær Örvarsson
gerði það gott í Slóvakíu.
Tveir Íslendingar komust í úrslit í
sprettgöngu á norska meistara-
mótinu í skíðagöngu í Konnerud við
Drammen í gær. Isak Stianson Ped-
ersen varð í 24. sæti í tímatöku í
karlaflokki og Kristrún Guðnadóttir í
30. sæti í kvennaflokki en þrjátíu
efstu komust áfram í hvorum flokki.
Bæði féllu þau síðan út í undanriðlum
í úrslitakeppninni. Isak fékk 60,75
FIS-stig, sem er hans besti árangur í
sprettgöngu, og Kristrún náði sínum
næstbesta árangri og fékk 103,45
stig. Þau styrkja bæði stöðu sína á
heimslistanum.
Isak og Kristrún í
úrslitum í Noregi
Ljósmynd/SKI
Skíðaganga Kristrún Guðnadóttir
komst í úrslitin í Noregi.
Bandaríski körfuknattleiksmað-
urinn Mike Di Nunno sem varð Ís-
landsmeistari með KR-ingum á síð-
asta tímabili er kominn með
félagaskipti til Vesturbæjarfélags-
ins á nýjan leik og er löglegur með
þeim frá og með næsta leik.
Di Nunno er 29 ára gamall bak-
vörður og er með bæði bandarískt
og ítalskt vegabréf. Hann fór frá
KR-ingum til Leyma Coruna í
spænsku B-deildinni og hefur leikið
þar í vetur. Hann lék áður í Búlg-
aríu, Grikklandi og Bretlandi eftir
að hafa útskrifast frá Eastern Ken-
tucky-háskólanum árið 2013 og far-
ið í nýliðavalið fyrir NBA sama ár.
Di Nunno átti marga frábæra
leiki með KR í úrslitakeppninni síð-
asta vetur og gerði þar 17,9 stig að
meðaltali en hann skoraði m.a. 29
stig í síðasta úrslitaleiknum gegn
ÍR-ingum.
Ýmis skakkaföll
Á ýmsu hefur gengið hjá leik-
mannahópi KR í vetur. Á pappírum
eru margir snjallir bakverðir hjá
liðinu en margir hafa glímt við
meiðsli og erfitt að segja til um
hvernig þeim mun reiða af þegar á
líður. Björn Kristjánsson verður í
það minnsta ekki meira með eftir
að hafa farið í aðgerð. Brynjar Þór
Björnsson og Jón Arnór Stefánsson
hafa báðir glímt við meiðsli í vetur
og spilað leiki tæpir. Jakob Örn
Sigurðarson missti úr tvo leiki í jan-
úar. Þá var framherjinn kraftmikli,
Kristófer Acox, greindur með
nýrnasjúkdóm.
Di Nunno var gjarnan í hlutverki
leikstjórnanda þegar hann lék með
KR í fyrra og hans bíður væntan-
lega það hlutverk.
Morgunblaðið/Hari
Reyndur Michele Di Nunno hefur
komið víða við á sínum ferli.
Meistararnir þétta raðirnar
og endurheimta Di Nunno