Morgunblaðið - 01.02.2020, Page 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
Velkomin í Schevings-hús
Kvartett Óskar Guðjónsson, Einar Scheving, Eyþór Gunnarsson og Skúli Sverrisson skipa kvartettinn.
Og, eðlilega, sitthvað um þessa plötu
hér. Mi Casa, Su Casa kemur út í
kjölfar Intervals (2015) sem var unn-
in með sama kvartett. Þar á undan
kom hinn magnaða Land míns föður
út, sem var óður Einars til Íslands og
föður síns, Árna Sheving. Hún var
svona hliðarspor, eins og Einar segir
mér, og þar á undan var það svo
Cycles (2007) eins og ég hef nefnt.
Einar segir mér að meginhaus-
verkurinn sé venjulega að koma
þessum mannskap saman á sama
svæði sömu dagana, sem sé meira en
að segja það. Sjálf platan var svo
tekin upp á þremur dögum, í sept-
ember. Hljóðverið var Masterkey-
hljóðverið á Seltjarnarnesi sem
Sturla Mio Þórisson og Marketa Irg-
lová eiga. Sturla hljóðritaði og
blandaði en Lars Nilsson hljómjafn-
aði í Nilento-hljóðverinu í Svíþjóð.
Einar segir að tónlistin sé í raun
beint framhald af Intervals. Eðli
málsins samkvæmt sé hann að semja
með félaga sína í huga, á einhvern
hátt, og hver og einn fær visst rými
til að leika sér innan lagarammans.
Oftast hafi þeir spilað þetta beint
inn, og sumt fékk að standa. Einar
viðurkennir þó að með nútímatækni
sé hægt að sveigja hluti og beygja
eftir hentugleik ef þurfa þykir,
splæsa saman tökum o.s.frv. Svo far-
ið sé á persónulega nóturnar þarf ég
ekki að selja neinum neitt í þessum
pistli hvað innihaldið varðar. Það er
nóg að sjá nöfnin til að taka bók-
staflega andköf. Unaður er á að
hlýða og er hver og einn sannkall-
aður meistari á sínu sviði. Hér eru
tónlistarmenn sem geta svamlað um
í meginstraumnum af hægð og með
reisn en allir eru þeir um leið með
einkar glúrið nef fyrir tilrauna-
mennsku og skapandi sprettum sem
fara með þá út fyrir boxið. Mi Casa,
Su Casa dansar glæsilega á milli
þessara tveggja heima; aðgengileg-
ur og melódískur djass en á sama
tíma er dýpt þarna og sterk höfund-
areinkenni frá Einari sem maður
hefur fengið að kynnast í gegnum
þegar útkomnar plötur.
Mi Casa, Su Casa er m.a. til á
Spotify, Bandcamp, geisladiski og
vínil – og útgáfutónleikar verða 5.
febrúar í Kaldalóni, Hörpu (Múlinn –
djassklúbbur).
» Það er nóg að sjánöfnin til að taka bók-
staflega andköf. Unaður
er á að hlýða og er hver
og einn sannkallaður
meistari á sínu sviði.
Mi Casa, Su Casa nefn-
ist ný plata eftir Einar
Scheving. Fjórða plata
hans en sú þriðja sem
hann vinnur með kvart-
ettinum sínum.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég ræddi fyrst við EinarScheving árið 2007, vegnafyrstu sólóplötu hans, Cyc-
les. Þekkti manninn ekkert en hafði
hins vegar séð nafnið hans oft á
geisladiskum sem ég var að höndla
og hlusta á. Hittumst í herbergi í
FÍH og fengum okkur kaffi. Maður í
minni stöðu er búinn að tala við allt
tónlistarfólk Íslands – tvisvar – og
maður tengir eðli-
lega mismikið við
mannskapinn. En
ég og Einar náðum
strax svona dan-
dalavel saman. Er-
um á svipuðum
aldri en svo bara einhverjir töfrar.
Eftir þetta höfum við haldið þeim
sið, ómeðvitað, að hittast í kringum
plötuútgáfurnar hans og spjalla.
Stundum hef ég verið í formlegum
erindagjörðum, stundum ekki.
Nýjasta plata hans, Mi Casa, Su
Casa, kom út korter fyrir jól og með
honum þar, eins og svo oft áður, þeir
Óskar Guðjónsson, Eyþór Gunnars-
son og Skúli Sverrisson. Í þetta sinn
gat ég boðið Einari í formlega heim-
sókn til þess að ræða um plötuna og
segja alþjóð svo frá í gegnum þetta
blað, þennan pistil. Einar kíkti á mig
á þriðjudagskvöldi, við fengum okk-
ur chai-te og ég leyfði einhverri ný-
bylgju að malla undir (ætlaði að
ganga í augun á honum með því að
spila Eric Dolphy eða Miles en hætti
við. Aulahrollurinn náði mér).
Rætt var um heima og geima en
mest um tónlist náttúrlega. Rush,
Billy Cobham, þætti úr íslenskri
djasssögu og margt, margt fleira.
Íslenski dansflokkurinn hefur í tvo
mánuði unnið með norska dans-
flokknum Nagelhus Schia Produc-
tions í Ósló að sviðsetningu á verk-
inu DuEls eftir Ernu Ómarsdóttur
og Damien Jalet. Verkið verður
frumsýnt í Vigeland-safninu í Ósló í
dag og eru átta sýningar fyrirhug-
aðar. Dansarar Íd, þær Elín Signý
W. Ragnarsdóttir, Halla Þórðar-
dóttir og Þyri Huld Árnadóttir,
taka þátt í verkinu ásamt Ernu Óm-
arsdóttur listdansstjóra og með
þeim eru dansarar frá Nagelhus og
átta lærlingar við Apprentice Men-
tor Program (AMP) sem er verk-
efni norska dansflokksins.
Íd og Nagelhus
sýna saman DuEls
Kraftur Úr sýningunni DuEls í Noregi.
Ingvar E. Sig-
urðsson vann til
verðlauna fyrir
leik sinn í kvik-
myndinni Hvítur,
hvítur dagur eft-
ir Hlyn Pálmason
á kvikmynda-
hátíðinni Premi-
ers plans d’An-
gers sem fór
fram í Angers í
Frakklandi 17.-26. janúar. Eru það
fjórðu verðlaunin sem Ingvar hlýt-
ur fyrir leik sinn í myndinni, sem
var frumsýnd á Critics’ Week í
Cannes í fyrrasumar.
Hlaut verðlaun
á hátíð í Angers
Ingvar í Hvítum,
hvítum degi.
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
LOKAKAFLINN
Í SKYWALKER SÖGUNNI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
6 ÓSKARSTILNEFNINGAR ÓSKARSTILNEFNINGAR11
Rás 2
FBL
LEIKSTÝRÐ AF CLINT EASTWOOD