Morgunblaðið - 01.02.2020, Side 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
„Frumkvöðlar úr fortíð og nútíð“ er
yfirskrift tónleika sem haldnir verða
í Norðurljósum Hörpu á morgun kl.
16 og eru hluti af tónleikaröðinni
Sígildum sunnudögum í Hörpu. Þar
kemur fram Barokkbandið Brák
ásamt einleikurunum Francesco
Corti semballeikara og Elfu Rún
Kristinsdóttur fiðluleikara. Frum-
flutt verður verk eftir Hlyn A. Vilm-
ars sem pantað var sérstaklega af
Barokkbandinu Brák, tvær
strengjasinfóníur eftir Carl Philipp
Emanuel Bach, tvöfaldur konsert
fyrir fiðlu og sembal eftir Joseph
Haydn og tríó sónata eftir Johann
Friederich Fasch.
Frábær tónlistarmaður
„Við Francesco kynntumst 2006
þegar við unnum bæði fyrstu verð-
laun í alþjóðlegu Bach-keppninni í
Leipzig,“ segir Elfa Rún Kristins-
dóttir, sem er listrænn stjórnandi og
leiðari Barokkbandsins Brákar.
„Næstu árin á eftir spiluðum við
reglulega saman víðs vegar um
Evrópu, meðal annars hérna á
Íslandi. Síðan kom tíu ára hlé þar til
við hittumst fyrir tilviljun á tón-
listarhátíð fyrir tveimur árum. Þeg-
ar ég fór að hugsa með hverjum mig
langaði að spila Haydn-konsertinn
kom Francesco strax upp í hugann,
því hann er svo frábær tónlistar-
maður sem gott er að spila með,“
segir Elfa Rún þegar hún er innt eft-
ir samstarfinu við Francesco Corti,
sem að hennar sögn er einn fremsti
semballeikarinn í heiminum í dag og
starfar samhliða tónleikahaldi sem
prófessor við Schola Cantorum í
Basel í Sviss.
Skemmtilegur hljóðheimur
Spurð um verkefnavalið segist
Elfa Rún vera mikill aðdáandi bæði
Haydn og C.P.E. Bach. „Mig hefur
lengi langað til að spila þessi verk
hérna heima,“ segir Elfa Rún, sem
býr og starfar í Berlín þar sem hún
spilar reglulega tónlist eftir C.P.E.
Bach. „Konsertinn eftir Haydn hef-
ur líklega aldrei heyrst hér á landi
áður. Yfirskrift tónleikanna vísar til
þess að C.P.E. Bach var mjög fram-
sækinn og braut meðvitað upp
ríkjandi stíl þess tíma,“ segir Elfa
Rún og tekur fram að verkið eftir
Hlyn hafi verið pantað sérstaklega
fyrir tónleikana.
„Verkið hans Hlyns hentar mjög
vel fyrir barokksveit. Þetta er
skemmtilegur hljóðheimur og rytm-
ískur, sem passar mjög vel við
barokkband,“ segir Elfa Rún.
Frumkvöðlar úr
fortíð og nútíð
Brák Barokkbandið Brák kemur fram á Sígildum sunnudögum á morgun.
Francesco Corti leikur á sembal
þess að það er svo mikill fókus í tón-
inum,“ segir Una sem hefur verið að
semja tónlist síðasta áratuginn.
„Ég hef verið að semja töluvert
síðustu árin, enda fundið fyrir sterkri
þörf. Það gefur mér mikið að semja,“
segir Una og tekur fram að hún hafi
samið töluvert fyrir sólófiðlu. „Ég hef
líka samið mikið af kammerverkum,
sem mér finnst skemmtileg áskorun.
Síðustu verk sem ég hef samið fyrir
kammerhópa hafa verið fyrir söngv-
ara líka. „Myrkur og regn“ er fyrsta
verkið mitt þar sem blásarar eru í
brennidepli, sem er spennandi,“ segir
Una og tekur fram að hún hafi lært
mikið um blásturshljóðfærin af koll-
egum sínum í Kammersveit Reykja-
víkur. Aðspurð segist Una ekki spila
með Kammersveitinni á tónleikum
kvöldsins heldur ætli hún bara að
njóta þess að sitja úti í sal og hlusta.
„Ég hef átt mjög annríkt á Myrkum
músíkdögum og ákvað því að spila
ekki með á þessum tónleikum,“ segir
Una sem spilaði með Strokkvartett-
inum Sigga á opnunartónleikum tón-
listarhátíðarinnar um liðna helgi auk
þess sem hún spilaði nýjan fiðlukons-
ert eftir Veroniqe Vöku með Caput
Ensemble á miðvikudag.
Á lokatónleikum Myrkra músíkdaga,
sem fram fara í Norðurljósum Hörpu
í kvöld kl. 21.30, frumflytur Kammer-
sveit Reykjavíkur þrjú ný íslensk
verk. Um er að ræða Myrkur og regn
fyrir óbó, flautu, klarinett, píanó,
kontrabassa og rafgítar eftir Unu
Sveinbjarnardóttur en á óbóið leikur
Matthías Birgir Nardeau; Nature
Morte fyrir hörpu, simbalon og
kammersveit eftir Hauk Tómasson
þar sem einleikarar eru Katie Buck-
ley á hörpu og Frank Aarnink á
simbalon, en þau skipa Dúó Harp-
verk, og Ekkert kemur í hans stað
(Þrjár aðferðir við að lesa ljóðið Allt
deyr eftir Steinunni Sigurðardóttur)
fyrir mezzósópran og kammersveit
eftir Kolbein Bjarnason þar sem
Hildigunnur Einarsdóttir syngur ein-
söng. Stjórnandi í verkum Hauks og
Kolbeins er Rúnar Óskarsson.
Að auki flytur sveitin tvö erlend
verk sem ekki hafa heyrst áður á
Íslandi, Serenöðu fyrir klarinett,
fiðlu, kontrabassa, slagverk og píanó
eftir Alfred Schnittke og Magic With
Everyday Objects fyrir flautu, klar-
inett, rafgítar, kontrabassa og píanó
eftir Missy Mazzoli.
Melankólísk fúga
„Ég var innblásin af ljóði eftir
Snorra Hjartarson sem heitir „Myrk-
ur og regn“ úr ljóðaflokknum Á
Gnitaheiði frá árinu 1952 þegar ég
samdi verkið. Mér fannst ljóðið fanga
íslenska veturinn á ótrúlega fallegan
en einfaldan hátt,“ segir Una og rifj-
ar upp að það að sitja við glugga og
horfa á ljósið brotna í regndropunum
með myrkrið úti sem bakgrunn, líkt
og lýst er í ljóði Snorra, kallist á við
hennar eigin minningar úr æsku.
„Þetta er í raun fúga sem gengur á
milli hljóðfæra. Ég fékk strax óbóið á
heilann og ákvað að hafa það í lykil-
hlutverki í verkinu. Óbóið er svo mel-
ankólískt og getur verið líka verið
mjög einmanalegt hljóðfæri vegna
Spennt Kammersveitin leikur verk eftir Alfred Schnittke og Missy Mazzoli.
Myrkur og regn í
Norðurljósum í kvöld
Kammersveit Reykjavíkur frumflytur verk eftir Unu
Sveinbjarnardóttur, Hauk Tómasson og Kolbein Bjarnason
Af öðrum við-
burðum á Myrk-
um músíkdögum
má nefna að
listahópurinn
Hlökk verður
með tónlistar-
innsetningu í
Iðnó í dag kl. 19,
19.45 og 20.30.
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir,
Lilja María Ásmundsdóttir og
Ragnheiður Erla Björnsdóttir
stofnuðu Hlökk 2015 og sendu
frá sér sína fyrstu plötu í fyrra
sem nefnist Hulduhljóð. Platan
verður í dag „spiluð þrisvar sinn-
um í gegn en meðlimir Hlakkar
spinna í kringum tónlistina á
diskinum ásamt því að fara með
ljóð og texta,“ segir í tilkynningu.
Hulduhljóð
í Iðnó í dag
HLÖKK MEÐ ÞRENNU
Lilja María
Ásmundsdóttir
Árlegir styrktar-
tónleikar Rótarý
verða haldnir í
Salnum í Kópa-
vogi á morgun,
sunnudag, klukk-
an 16. Árlega
hljóta einn eða
tveir tónlistar-
menn í fram-
haldsnámi veg-
legan styrk úr
Tónlistarsjóði Rótarý og koma þá
fram á tónleikunum. Að þessu sinni
hljóta styrkinn söngkonan Álfheiður
Erla Guðmundsdóttir og fiðluleikar-
inn Rannveig Marta Sarc. Álfheiður
Erla flytur Ein Traum eftir Grieg og
Sevillana eftir Massanet og Rann-
veig Marta leikur Viennese Rhapso-
dic Fantasietta eftir Kreisler.
Aðrir listamenn sem koma fram
eru söngvararnir Hallveig Rúnars-
dóttir og Gissur Páll Gissurarson og
Helga Bryndís Masgnúsdóttir
píanóleikari. Flytja þau úrval söng-
laga og aría.
Tónlistarsjóður Rótarý hefur
styrkt efnilega unga tónlistarmenn í
framhaldsnámi frá árinu 2005.
Fyrstur til að hljóta styrkinn var
Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleik-
ari. Margir fleiri styrkþegar hafa
verið áberandi í tónlistarlífinu und-
anfarin ár, þeirra á meðal fiðluleik-
ararnir Ari Þór Vilhjálmsson og Elfa
Rún Kristins-
dóttir, Bragi
Bergþórsson ten-
ór, Melkorka
Ólafsdóttir
flautuleikari og
Fjölnir Ólafsson
og Jóhann Krist-
insson barítón-
söngvarar.
Álfheiður Erla
stundaði nám við
Söngskóla Sigurðar Demetz, meðal
annars hjá Hallveigu Rúnarsdóttur
og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur. Hún
lauk bakkalárnámi við Hanns Eis-
ler-tónlistarháskólann í Berlín árið
2018 og stundar þar nú meistara-
nám. Nýverið var Álfheiði boðið að
koma fram á meistaranámskeiði hjá
Renée Fleming í Carnegie Hall og
kemur hún þar fram á tónleikum í
vor. Hún hefur starfað með mörgum
þekktum stjórnendum og söngv-
urum í þýskum óperuhúsum.
Rannveig Marta hóf fiðlunám
fjögurra ára gömul við Allegro Su-
zuki-skólann. Hún lauk framhalds-
prófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 2014 og hefur lokið
bakkalárprófi frá Juilliard í New
York. Þar stundar hún nú meistara-
nám. Rannveig vann prufuspil fyrir
stöðu konsertmeistara Juilliard-
hljómsveitarinnar og hér heima
sigraði hún í Ungir einleikarar 2014.
Styrkþegar Rótarý
koma fram á tónleikum
Álfheiður Erla
Guðmundsdóttir
Rannveig
Marta Sarc
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
samlegt ka
nýmalað,
engin h lki.
á
y
–