Morgunblaðið - 01.02.2020, Blaðsíða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Alþjóðlega samsýningin Línur
verður opnuð á fjórðu hæð Lista-
safnsins á Akureyri í dag kl. 15. Á
henni koma saman átta myndlist-
armenn frá sex löndum og fjórum
heimsálfum. Listamennirnir eru
Þjóðverjarnir Almuth Baumfalk og
Kristine Schnappenburg, Armando
Gomez frá Mexíkó, Japanarnir
Hiro Egami og Miyuki Kido, Rym
Karoui frá Túnis, Saulius Valius frá
Litáen og Lap Yip frá Hong Kong.
Sýningarstjóri er hins vegar ís-
lenskur, Mireya Samper, en hún á
að baki farsælan feril sem mynd-
listarmaður og er auk þess stofn-
andi og listrænn stjórnandi listahá-
tíðarinnar Ferskir vindar á
Reykjanesi.
Kontrapunktar
Mireya er spurð að því hvers
vegna þessir listamenn séu að sýna
saman og segir hún sjö af átta hafa
tekið þátt í Ferskum vindum. Hún
hafi því þekkt þá lengi og fylgst
með þeim í mörg ár en listamenn-
irnir hafi tekið þátt í hátíðinni á
mismunandi tímum. Hún hafi unnið
með listamönnunum öllum á ólíkum
tímum í ólíkum löndum.
„Mig langaði að setja saman
svona kontrapunkta sem eiga samt
einhvern veginn samleið. Þetta
varð niðurstaðan,“ segir Mireya og
að hún hafi í raun haft úr hundr-
uðum listamanna að velja. Þessir
átta hafi passað best saman fyrir
þessa tilteknu sýningu.
Sýningin nefnist Línur og segir
Mireya felast í honum hugmyndina
um að tengja saman ólíka heima og
Ísland við þá, byggja brýr milli
sálna og heimsálfa. „Ég er aðeins
að toga til okkar það að ef við opn-
um fyrir fræðslu og opnum fyrir
umheiminn öðlumst við þekkingu
og höfum þá meiri möguleika á að
skilja aðra menningarheima. Og
þegar maður gerir það eru meiri
möguleikar á því að mynda ein-
hvers konar frið í heiminum, ef fólk
hefur einhvers konar skilning
hvert á öðru,“ segir Mireya.
–Svo er línan elsta form mynd-
listarinnar …
„Já, akkúrat, og hún er mjög
óræð og flókin af því að þú getur
gert hvað sem er við hana en um
leið mjög hrein og bein, „pure“.
Mér finnst svo spennandi hug-
myndafræðin á bakvið línuna.“
Ólíkar nálganir
– Eru þessir myndlistarmenn
mjög ólíkir innbyrðis, sumir í hlut-
bundinni og aðrir í óhlutbundinni
list, svo dæmi sé tekið?
„Já, þau eru mjög ólík í nálgun
sinni, sum eru málarar, sum í inn-
setningum, sum í skúlptúr, sum að
vinna með ljósið og sum að vinna
með málverkið beint. Sum vinna
beint inn í rýmið og þess vegna
valdi ég þau líka saman, það kem-
ur svo mikil fjölbreytni með
þessu,“ svarar Mireya og er í
framhaldi spurð að því hvort ekki
hafi þá verið erfitt að raða verkum
þessara ólíku listamanna upp í
sýningarrýminu. „Við erum á
fjórðu hæðinni þar sem eru marg-
ir salir og þetta kom eiginlega
bara til mín, hvernig væri best að
raða þeim upp. Fyrst þegar ég fór
að hugsa um þetta fannst mér það
flókið en svo varð þetta ekki svo
flókið,“ segir hún.
Annars konar sköpun
–Klæjaði þig ekkert í fingurna
að fá að vera með og sýna með
hópnum? „Það hafa dálítið margir
spurt mig að því af hverju ég sé
ekki með en ég spáði bara ekkert
í það. Það er ekki pláss fyrir
fleiri hérna hvort eð er og ég
hleypti þeirri hugsun ekkert að.
Auðvitað hefði verið mjög gaman
að vera með en mér finnst það
ekki nauðsynlegt.“
– En finnst þér nauðsynlegt að
skipta á milli þess að vera lista-
maður og sýningarstjóri?
„Nei, það er ekki nauðsynlegt,
en mér finnst það mjög skemmti-
legt,“ segir Mireya. Sýningar-
stjórastarfið krefjist mikillar
orku, líkt og starf listamannsins.
„Þetta er annars konar sköpun
og maður gefur mikið af sér þeg-
ar maður er sýningarstjóri, á
annan hátt en þegar maður er að
gefa af sér í sinni eigin sköpun.
Maður er einhvers konar þjónn
samfélagsins og listamannanna
og er að reyna að búa eitthvað til
og gefa heiminum. Mér finnst
það rosalega skemmtilegt og
þykir vænt um að fá að gera
þetta, þetta er tækifæri fyrir
listamennina og tækifæri til að
færa samfélaginu listaverk sem
það fengi annars ekki,“ segir
Mireya.
Myndir frá Fukushima
Í Mjólkurbúðinni í Listagilinu
verður einnig opnuð sýning í dag
kl. 14. Þar sýnir japanska lista-
konan Shoko Miki og er Mireya
einnig sýningarstjóri þeirrar sýn-
ingar, sem nefnist Symparthy ’20
- 2. „Hún er með ljósmyndaverk
og er mikið að vitna í Fukus-
hima,“ segir Mireya og á þar við
kjarnorkuslysið sem varð í Fu-
kushima í Japan árið 2011. Miki
hefur myndað blóm sem vaxið
hafa upp úr jarðveginum við
kjarnorkuverið.
Boðið verður upp á listamanna-
spjall með sex af listamönnum
sýningarinnar Línur og Mireyu í
dag kl. 16 og stýrir safnstjórinn
Hlynur Hallsson umræðum.
Sunnudaginn 16. febrúar kl. 11
verður svo boðið upp á fjöl-
skylduleiðsögn um sýninguna.
Brýr milli sálna og heimsálfa
Línur, samsýning átta listamanna frá sex löndum, verður opnuð í Listasafninu á Akureyri
Samtenging ólíkra heima Línan er óræð og flókin en um leið hrein og bein, segir sýningarstjóri
Ljósmynd/Hlynur Þormóðsson
Samvinna Listamenn með sýningarstjóra, frá vinstri Lap Yip, Miyuki Kido, Almuth Baumfalk, Hiro Egami, Krist-
ine Schnappenburg, Mireya Samper, Armando Gomez og Saulius Valius. Fyrir framan þau er hundurinn Puntillia.
Tíu tónleikastaðir í borginni verða
með opið hús í dag frá kl. 13 til 18
og er viðburðurinn liður í Open
Club Day, degi opinna klúbba. Tón-
leikastaðir víða um Evrópu munu
opna dyr sínar að degi til fyrir gest-
um sem hafa áhuga á að kynna sér
starfsemi þeirra og er markmiðið,
skv. tilkynningu, að vekja athygli á
þeirri starfsemi sem fer fram á tón-
leikastöðum, þeim störfum sem þeir
skapa og því hlutverki sem þeir
gegna fyrir menningarlíf borga.
Tónlistarborgin Reykjavík hefur
veg og vanda af skipulagningu
dagsins hér á landi í samstarfi við
tónleikastaðina og mun Arnar Egg-
ert Thoroddsen fara með gesti í
tónlistarsafarí, leiða þá um tón-
leikastaði og segja sögur af þeim.
Gangan hefst við anddyri Hörpu kl.
13 og önnur kl. 15. Meiri upplýs-
ingar og heildardagskrá má finna á
tonlistarborgin.is.
Opið hús hjá tíu tónleikastöðum
Morgunblaðið/Guðmundur Rúnar
Prikið Einn þeirra tónleikastaða
sem verða með opið hús í dag.
Gallerí Fold opnar sýninguna Yfir-
lýst tilvera á verkum eftir Soffíu
Sæmundsdóttur í dag kl. 14. Í til-
kynningu segir að flestir þekki til-
finninguna sem fylgi því að njóta
góðs útsýnis í náttúrunni eða horfa
á landslag sem þjóti hjá bílglugga á
ferð en ólga í veðri og nýjar upplýs-
ingar um framvindu og breytingar
í náttúrunni ýti undir smæð manns-
ins í tilverunni og þá dugi ekki
lengur grænir og bláir litir og
penslar víki fyrir stórum spöðum til
að tjá innri veruleika ferðalangsins.
Soffía útskrifaðist frá grafík-
deild Myndlista- og handíðaskóla
Íslands 1991, lauk MFA-gráðu í
málun frá Mills College í Kaliforníu
2003 og hefur verið iðin við sýn-
ingahald og kennt myndlist um ára-
bil.
Yfirlýst tilvera
í Galleríi Fold
Náttúra Eitt af verkum Soffíu
Sæmundsdóttur á sýningunni.
Fagleg þjónusta fyrir fólk í framkvæmdum
flugger.is